Morgunblaðið - 16.06.1996, Page 10

Morgunblaðið - 16.06.1996, Page 10
MORGUNBLAÐIÐ 10 D SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996_________________________ SUMARFRÍ Á ÍSLANDI Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson SIGLING inn í Klettshelli er reynsla sem gestir Vestmannaeyja ættu ekki að láta framhjá sér fara. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson HRAUNIÐ, sem rann í eldgosinu á Heimaey árið 1973, dregur ferðamenn að. Valsað um í Vestmanna- eyjum FYRIR ferðamenn sem hyggjast heimsækja Vestmannaeyjar eru ýmsir kostir á ferðamáta til Eyja. Flugleiðir og íslandsflug halda uppi nokkrum áætlanaferðum dag hvern til Eyja auk þess sem Flug- félag Vestmannaeyja annast leiguflug milli lands og Eyja. Flug- félag Vestmannaeyja flýgur mest milli Bakkaflugvallar í Landeyjum og Eyja og eru margar ferðir fam- ar á dag milli þessara staða enda tekur flugið ekki nema um sjö mínútur. Þá eru einnig tíðar ferðir milli Eyja og Selfoss. Fyrir þá ferðalanga sem vilja fara sjóleiðina og jafnvel taka bílinn með þá sigl- ir Heijólfur daglega milli Þorláks- hafnar og Eyja og yfir sumarmán- uðina eru tvær ferðir á fimmtu- dögum, föstudögum og sunnudög- um. Fuglarnir heilla Fyrir þá er sækja Eyjamar heim er um margt að velja. Náttúran og fuglalífið í sínum fjölbreytileik er það sem dregur flesta ferða- menn til Eyja en það er margt annað sem einnig heillar. Fyrir þá sem koma með bíla sína með eru margir staðir sem hægt er að skoða. Verksummerki eftir eldgos- ið árið 1973 er það sem allir skoða. Hægt er að aka um nýja hraunið og upp í Eldfellsgíg og skoða nýja landið sem_ myndaðist í eldsum- brotunum. Á Eldfellshrauni er svo- kallaður Gaujulundur, sem er gróðurvin sem eldri hjón í Eyjum hafa komið upp í smá lægð á miðju hrauninu og er vert fyrir fólk að skoða þennan fallega lund. Allir sem koma til Eyja verða að sjá sprang og flesta daga eru krakkar að sprangi í spröngunni sem er í berginu beint vestur af Strand- vegi. Ferð suður í Stórhöfða, þar sem mestur vindhraði hefur mælst á íslandi, er nauðsynleg, en þar sést vel til allra átta og einnig má þar fylgjast með fuglalífinu og sjá lundann á flugi. í Eyjum er 18 holu golfvöllur sem hlotið hefur lof fyrir nátt- úrufegurð og dregur sífellt fleiri golfáhugamenn til Eyja, en í sum- ar verður Landsmótið í golfi hald- ið á vellinum. Áhugaverð sögn Náttúrugripasafnið, við Heiðar- veg, og byggðarsafnið, við Ráð- húströð, eru staðir sem áhuga- verðir eru fyrir ferðamenn að heimsækja, en í náttúrugripasafn- inu eru lifandi fiskar og önnur sjávardýr í búrum auk fjölda upp- stoppaðra dýra og fallegs steina- safns. í byggðarsafninu má finna marga merkilega hluti úr sögu Eyjanna og þar hefur verið komið upp sérstökum bás þar sem eld- gosið á Heimaey er rifjað upp. Söfnin í Eyjum eru opin um sumar- tímann alla daga klukkan 11 til 17. Kvikmyndasýningar fyrir ferðamenn eru í Félagsheimilinu við Heiðarveg þar sem sýnd er nýgerð mynd um eldgosið á Heimaey og uppbygginguna eftir gos en sýningar á myndinni eru alla daga klukkan 13, 15 og 17. Allir sem heimsækja Vest- mannaeyjar ættu að reyna að komast í siglingu þar sem komist er í návígi við fuglalífið og sjávar- hellar skoðaðir. Með skemmti- ferðabátnum PH Víking er hægt að komast í slíkar siglingar og kostar ferðin 1600 krónur. PH Víking fer í tvær siglingar hvern dag og tekur siglingin um eina klukkustund og fimmtán mínútur. Farið er frá Nausthamarsbryggju klukkan 11 og klukkan 16. Siglt er umhverfis Heimaey, farið í Klettshelli, Fjósin og fleiri staði og ef veður leyfir er stundum siglt út undir Brand og fuglalífið skoð- að. í Klettshelli eru stundum haldnir hljómleikar þar sem leikið er á lúðra og er hljómurinn í hellin- um með ólíkindum og allir sem í þessar ferðir fara koma heillaðir til baka. Fyrir þá sem koma fljúgandi til Eyja, eru ekki með bíl eða vilja fá skoðunarferð um Eyjarnar und- ir leiðsögn, er boðið upp á slíkar ferðir hjá Páli Helgasyni. Þessar ferðir eru farnar í tengslum við áætlunarflug á morgnana og eftir hádegi og kosta 1600 krónur. Lagt er af stað frá Flugstöðinni upp úr klukkan átta í fyrri ferðina og aftur klukkan 14 og tekur skoð- unarferðin um tvo tíma. Farið er vítt og breitt um Heimaey, sögu- legir staðir skoðaðir og sagan rak- in. Einnig er stoppað á nokkrum stöðum, farið úr rútunum og litast um. í Eyjum er starfrækt upplýs- ingamiðstöð fyrir ferðamenn þar sem hægt er að fá allar upplýs- ingar varðandi skoðunarferðir, gistingu, matsölustaði eða hvað- eina sem ferðamenn vanhagar um. Upplýsingamiðstöðin er staðsett á Vestmannabraut 38. ■ Grímur ISLAND •Vatnajök •Reykjav maaHEmgm Sigit mílli lands og Eyja Þ AÐ tekur tvær og hálfa klukkustund að sigla með Herjólfi á milli Vest- mannaeyja og Þorláks- hafnar. Ferjan sem var tekin í notkun árið 1992, er rúmgóð með tveggja og fjögurra manna klef- um, stórri kaffiteríu með matseðli, krá og sjón- varpssal með bíóstólum. Fimm hundruð farþegai- komast í feijuna í hverri ferð og bílageymslan tek- ur um 70 fólksbíla. Far- gjald fyrir fullorðna aðra leið er 1.300 krónur, elli- lífeyrisþegar og börn á aldrinum 6-12 ára greiða 650 krónur, en ókeypis er fyrir börn yngri en 6 ára. Hægt er að panta svefnrými og kostar upp- búið rúm 650 krónur, en rúm með teppi og kodda 325 krónur. Fyrir fólksbíl af veiyulegri stærð þarf að greiða 1.300 krónur, fyrir stóra fólksbUa eða húsbíla 2.600 og fyrir mótorhjól 800 krónur. Síðan er hægt að fá fjöl- skylduafslátt þar sem einn fuUorðinn greiðir fuUt fargjald, en aðrir fullorðnir fá 50% afslátt. Einnig er hægt að kaupa sérstök afsláttarkort. Sumaráætlun Heijólfs er í gildi fram til 1. sept- ember nk. Feijan fer alla daga kl. 8.15 frá Vest- mannaeyjum og frá Þor- lákshöfnkl. 12.00. Á fimmtudögum, föstudög- um og sunnudögum fer feijan líka frá Vest- mannaeyjum kl. 15.30 og fráÞorlákshöfnkl. 19.00. Rútuferðir eru frá Um- ferðarmiðstöðinni í Reykjavíkkl. 10.45 og 17.30 í tengslum við brott- för Herjólfs frá Þorláks- höfn. ■

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.