Morgunblaðið - 16.06.1996, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996 D 11
SUMARFRÍ Á ÍSLANDI
Hjólaó á
vit móður
náttúru
„STÍGÐU á sveif með lífinu," er
kjörorð íslenska fjallahjólaklúbbs-
ins. Markmið klúbbsins er að fá sem
flesta til að fara ferða sinna á hjóli
og komast í náið samband við móð-
ur náttúru, takast á við hana, skilja
hana og virða, eins og segir í upp-
lýsingabæklingi klúbbsins.
Ferðadeild íslenska fjallahjóla-
klúbbsins skipuleggur ferðalög um
allt land. Allar ferðir eru skipulagð-
ar með það í huga að sem flestir
geti tekið þátt í þeim. Vegalengdir
í helgarferðum eru 40-70 kílómetr-
ar á dag í rólegri yfirferð. Til að
vera viss um að eiga ekki í vandræð-
um í ferðum klúbbsins er fólk hvatt
til að fara t.d. helgarferð á Þing-
völl með allan viðlegubúnað eða
hjóla Bláfjallahringinn. Ef þaðtekst
er viðkomandi fullfær í allar ferðir.
Ferflir vifl allra hæfi
Um næstu helgi, eða 21.-23. júní
verður Snæfellsnes skoðað á sumar-
sólstöðum. Ekið verður að Búðum
og hjólaðar um 50 kílómetra dag-
leiðir um náttúruperlurnar undir
jökli. Laugardaginn 29. júní verður
bytjendaferð, létt lautarferð í ná-
grenni Reykjavíkur og er mæting
kl. 12 við veitingastaðinn Víbon á
mótum Bústaðavegar og Reykja-
nesbrautar, en þar er alltaf safnast
saman fyrir byijendaferðir.
í júlí eru skipulagðar fjölbreyttar
ferðir. Helgina 6.-7. júlí verður far-
ið að Hagavatni. Ekið verður að
Hvítárvatni og hjólað yfir að Haga-
vatni. Gist í skála eða tjaldi. Á
sunnudegi veðrur hjólað niður að
Gullfossi og Geysi, áður en haldið
er til Reykjavíkur á ný með rútu.
Dagleiðir eru u.þ.b. 50 km.
Fjallahjólamót í Skorradal
13. júlí verður lautarferð upp í
Heiðmörk fyrir byijendur og helg-
ina 19.-21. júlí verður fjallahjólamót
í Skorradal. Mótið er haldið í sam-
vinnu við Skátafélag Akraness og
er gist í tjaldi eða skála. Farið verð-
ur í hjólreiðaferðir og fræðst um
allt sem varðar hjólreiðar. Dagleiðir
eru 50-60 kílómetrar.
Helgina 27.-28. júlí verður svo-
kölluð hjólaganga á Skessuhorn.
Akraborgin verður tekin upp á
Akranes, þaðan hjólað upp á
Skarðsheiði og gengið á Skessu-
horn. Þetta er tjaldferð og dagleiðir
eru 40 km. Þátttakendur verða að
ÞAÐ GETIJR verið ánægjulegt að ferðast einn á hjóli, en svo er líka
hægt að slást í för með íslenska fjallahjólaklúbbnum.
sjálfsögðu að hafa gönguskóna
með.
Út í óvissuna í ágúst
Um verslunarmannahelgina fer
fjallahjólaklúbburinn í óvissuferð,
víðsfjarri vafasamri bílaumferð.
Óvissuferðir eru ákveðnar með
skömmum fyrirvara í samræmi við
áhuga, getu og fjölda þátttakenda.
Þá er einnig tekið tillit til veðurs
og bílaumferðar.
Dagana 10.-11. ágúst verður
Hlöðuvallaferð. Hjólað eða ekið á
Þingvelli og troðningur suður undir
Skjaldbreið hjólaður að skála FÍ
undir hlíðum Hlöðufells. Á sunnu-
degi verður hjólaður línuvegurinn
norðan við Skjaldbreið að Þingvöll-
um, þaðan sem hjólað er eða ekið
í bæinn. Dagleiðir á hjóli eru 50
kílómetrar, en 100 km ef þátttak-
endur hjóla úr bænum.
Þann 15. ágúst verður þriðja
lautarferð sumarsins fyrir byijend-
ur og fer nú hver að verða síðastur
að slást í hópinn með Fjallahjóla-
klúbbnum þetta sumarið.
Hjólað á hálendifl
24.-25. ágúst verður óvissuferð,
en þó kannski ekki alveg svo óviss,
því upplýsingabæklingur Pjalla-
hjólaklúbbsins er með hálfkveðnar
vísur um „besta tímann til hálendis-
ferða“.
Svo mikið er víst að stefnan verð-
ur tekin á hálendið helgina 6.-8.
september. Þá verður ekið til Land-
mannalauga á föstudagskvöldi og
gist í skála FÍ. Á laugardegi verður
hjóluð Krakatindsleið í hæðóttu
landslagi u.þ.b. 45 km að Dalakofa
norður við Laufafell. Á sunnudegi
verða hjólaðir 70 km niður að Hellu
og þaðan ekið í bæinn.
Margir nota fjallahjólið sitt ein-
göngu innanbæjar, en nú geta þeir
gert bragarbót á í sumarfríinu og
ferðast um með Fjallahjólaklúbbn-
um. Svo er ekki ólíklegt að í geymsl-
um leynist góð fjallahjól og er þá
ekki tími til kominn að dusta af
þeim rykið? ■
fyrir alla fjölskylduna
Á 70 ára afmælisári 66°N hefur úrvaliö af sport- og
útivistarfatnaði aldrei verið meira. Stöðug þróun hefur
átt sér stað í framleiðsluaðferðum og unnið er úr bestu
fáanlegum efnum á hverjum tíma.
SIX-TEX öndunarfatnaðurinn, sem unninn er úr
hágæðaefninu ENTRANT Gll, er einn sá vin-
sælasti í dag enda mætir hann kröfum hörðustu
neytenda landsins.
POLARTEC FLEECE, EÐALFLÍS er mjúkur
og hlýr fatnaður með mikið einangrunargildi,
framleiddur í þremur mismunandi þykktum.
66°N eru^þeir fyrstu á íslandi sem framleiða
EÐALFLÍS úr vindheldu- og vatnsfráhrindandi efni
í verslunum 66°N er einnig mikið úrval af regn-
og hlífðarfatnaði, úlpum og kuldagöllum á börn
og fullorðna.
SJOKLÆÐAGERÐIN HF.
SKÚLAGÖTU 51 SÍMI 552 7425,
FAXAFENI 12 SÍMI 588 6600,
ÚTILÍF GLÆSIBÆ SÍMI 581 2922