Morgunblaðið - 16.06.1996, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUMARFRÍ Á ÍSLANDI
„ÞAÐ ER ódýrast og best að
taka með sér nesti. Flestum
finnst gaman að stoppa bílinn
og setjast upp í brekku einhvers
staðar með nestið sitt,“ segir
Laufey Steingrímsdóttir, nær-
ingarfræðingur, þegar hún er
innt eftir því hvaða ráð hún
geti gefið fjölskyldum á ferða-
lagi um mataræði.
Þegar Laufey tal-.
ar um nesti, þá á hún
ekki bara við smurð-
ar samlokur og kaffi
á brúsa.
„Það er til dæmis
hægt að útbúa kart-
öflusalat, sjóða
nautatungu eða
grilla kjúklinga-
leggi og taka þetta
með í ferðina. Ef
fjölskyldan vill eitt-
hvað sætt í eftirrétt
er gott að eiga köku
í boxi. Nesti af þessu
tagi gæti enst fjöl-
skyldunni vel í upp-
hafi ferðalagsins, en
auðvitað endist það ekki í lengri
ferðir."
Fisk og grænmeti á grilliA
fslendingar eru allra þjóða
iðnastir við að draga fram grill-
ið í sumarfríinu. „Grillið er ág-
ætt inn á milli, en það er vissu-
lega hæpið ef fólk ætlar sér að
borða þunga kjötmáltíð af grill-
inu alla daga. Það reynist flest-
um of mikið af þvi góða. Það
má líka benda fólki á að víðast
hvar er hægt að nálgast ferskan
og góðan fisk á grillið. Með hon-
um er hægt að bera ýmislegt
grillað grænmeti, til dæmis tóm-
ata, sem er lostæti," segir hún.
Til að fá tilbreytingu frá nest-
inu og grillinu segist Laufey
sjálf gjarnan koma við í bænda-
gistingu, þar sem hún fái ís-
lenskan heimilismat. „Auðvitað
kostar það sitt að kaupa tilbúinn
mat, en skyndifæði kostar líka
sitt og það er svo miklu
skemmtilegra að kynnast því
hvernig fólkið í landinu býr.“
Kjöt I brauði eða
hamborgari með sósu?
Fyrst Laufey nefndi skyndi-
fæði er hún innt eftir því hvort
slíkur matur sé allur af hinu
illa. „Nei, það þarf alls ekki að
vera slæmt að fá sér hamborg-
ara eða pítsu af og til. Ham-
borgari, sem er jú bara kjöt í
brauði, er ekki slæmur, en
kokkteilsósan og alls konar
gums af því tagi sem fylgir
gerir máltíðina miklu óheppi-
legri en hún þyrfti að vera.“
Laufey segir að margt gott
sé að finna í þjóðvegasjoppun-
um svokölluðu, en hún segist
þó oft sakna þess að geta ekki
keypt epli, appelsín-
ur, banana og aðra
ávexti í stykkjatali.
Ekki megi setja svo
strangar heil-
brigðisreglur að
sjoppunum sé gert
ókleift að selja slíka
hollustu.
„Eg hef líka rekið
migáþaðáferða-
lögum um landið að
það getur verið erf-
itt að finna verslanir
sem selja léttmjólk.
Margir krakkar
hafa vanist létt-
mjólkinni og fáist
hún ekki biðja þeir
frekar um gosdrykk
en nýmjólk. Það væri því mjög
gott ef léttmjólkin væri víðar á
boðstólum og ekki væri verra
ef hún fengist í litlum fernum."
Tilbreyting mikilvægari
en sælgæti
Margir kannast við það á ferð-
um sínum, að krakkarnir í aftur-
sætinu vilja gjarnan koma við í
sjoppu og fá eitthvað gott í
munninn. „Sælgæti á auðvitað
rétt á sér í fríinu, en það verður
auðvitað að takmarka það eins
og endranær," segir Laufey. „Is-
inn er tvímælalaust bestur og
ég bendi á að ís úr vél er miklu
fituminni en sá sem seldur er í
pökkum. Poppkorn er líka syk-
urlaust og tiltölulega mein-
laust.“
Laufey segir að oft sé hrein-
asti óþarfi að koma við í sjopp-
unni og kaupa nammi. „Krökk-
um finnst oft alveg eins gott að
fá flatköku með hangikjöti, til
að narta í á leiðinni. Það er líka
ágætt að hafa með sér gulræt-
ur, sem börnin geta nagað.
Krakkar verða oft leiðir á að
silja í bíl og vilja tilbreytingu,
en tilbreytingin þarf ekki að
vera sjoppuferð. Það er hægt
að vinna vel úr því sem býðst
og auðvitað mega reglurnar
ekki vera of einstrengingslegar
þegar fjölskyldan ætlar að njóta
sumarfrísins." ■
Laufey
Steingrímsdóttir
SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996 D 13
-------------------------U—
Sumaráætlun m/s Heriólfs
Heriólfur li§.
Gildir frá 20. maí til 1. sept. 1996
Vegna Þjóðhátíðár Vestmannaeyja
breytist áætlunin sem hér segir:
Sunnudaginn 4. ágúst verður aðeins ein
ferð frá Vestmannaeyjum kl. 13.00
ogfrá Þorlákshöfn kl. 16.00
Mánudaginn 5. ágúst er brottför frá
Eyjum kl. 11.00 og kl. 18.00 og frá
Þorlákshöfn kl. 14.30 og kl. 21.30
Aukaferðir verða 31. júlí og
6. ágúst og þá frá Vestmannaeyjum
kl. 15.30 og frá Þorlákshöfri kl. 19.00
Að öðru leyti gildir sumaráætlunin.
SUMARAÆTLUIM 1996
Frá Vestmannaeyjum Frá Þorlákshöfn
8.15 12.00
Alla daga
Aukaferðir eru á:
Fimmtud-, föstud-,
og sunnudögum
15.30
19.00
Allar frekari upplýsingar
er að fá í:
Vestmannaeyjum: Sírni
481-2800, fax 481-2991.
Þorlákshöfn: Sími 483-3413,
fax 483-3924.
Reykjavík: Sími 552-2300
(aðeins urn rútuferðir).
Áætlaóur siglingatími milli lands og
Ey)a eru 2.45 klst.
HERJÓLFUR brúar bilið
UTIVISTARBUÐIN
TJALDBORGIN ER RISIN
Frábært verð
og
vönduð
hústjöld
Fimm
stærðir
Verð frá kr.
29.950
iDífÉ
PEAK
Fjölskyldutjöld 4ra til 8 manna
Kulutjöld 3ja til 5 manna
tmsfmm- ------------
ADVENDURE
Fimm gerðir af skemmtilega útfærðum kúlutjöldum Verð frá kr. 7.900
Komið og skoðið hina veglegu tjaldborg okkar við Umferðamiðstöðina
Einnig mikið úrval af svefnpokum, bakpokum og ferðavörum.
Sendum íslenskan myndabækling með verðum.
S?o*t
LEIGANI
LEIGA.N
ÚTIVISTARBÚÐIN Vatnsmýrarvegi 9.101 Reykjavík.lceland
ALLY TIL UTILEGU
tel.551 3072.Fax 561 3082