Morgunblaðið - 16.06.1996, Page 22

Morgunblaðið - 16.06.1996, Page 22
22 D SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ SUMARFRÍ Á ÍSLANDI „Kauptu leirtau, ég keypti húsbíl!" „ÞAÐ ÞÝDDI ekkert að reyna að fá eiginmanninn í tjaldútilegu, hann mátti bara ekki heyra á það minnst. Við höfðum lítillega velt því fyrir okkur að kaupa húsbíl og þegar ég var stödd í útlöndum fyrir sex árum ásamt dóttur okkar, Guðrúnu Andreu, þá hringi eiginmaðurinn í mig og sagði mér að nú hefðu þeir feðgamir skoðað húsbíl og hann hefði ákveðið að kaupa hann. Nú ættum við mæðgumar að drífa okk- ur I IKEA og kaupa potta, leirtau og hnífapör." Þetta segir Ása Guðmundardótt- ir, húsbflaeigandi og er greinilega mjög sátt við hugdettu eiginmanns- ins, Einars Finnssonar og sonarins Finns Inga. Bíllinn sem þeir feðgar féllu fyrir er Toyota Coaster, árgerð 1981 og hafði hann verið í eigu Akureyrings, sem innréttaði hann sem húsbfl árið 1985. Ása og Einar létu sprauta bflinn fyrir tveimur árum. Fjögurra mánaða ferðalangur Bfllinn er í raun lítill sumarbústaður. Aftast eru bekkir og borð, en á nóttunni er borðið fellt niður og mynd- ast þá svefnpláss fyrir tvo. Þar fyrir framan er gaselda- vél, vaskur, ísskáp- ur sem gengur fyrir gasi og nægilegt skápapláss. Fyrir miðjum bfl er sal- emi. Þar fyrir framan em tvö sæti, sem breytast í tveggja manna svefnpláss og fremst eru tvö sæti, fyrir ökumann og farþega hans. Auk talstöðvar og farsíma em geislaspilari í bflnum. Öryggisbelti era fyrir Ú'óra fullorðna og Ása og Einar hafa nýlega sett búnað svo hægt sé að festa barnabflstól tryggilega. Dóttursonurinn Einar Óli, sem er fjögurra mánaða, fór nefnilega í sína fyrstu húsbílaferð um hvíta- sunnuna. Bfllinn kostaði tvær milljónir þeg- ar þau festu kaup á honum fyrir tæpum sex ámm. „Ég efast um að við myndum ferðast mikið innan- lands ef við ættum hann ekki,“ seg- ir Ása. „Það þarf ekki meirapróf til að aka bíl af þessari stærð. Ein- ar er að vísu með slíkt próf, sem er nú ekkert verra, en ég get alveg eins sest undir stýri.“ Nánast aldrei heima Ása og Einar ráku kranabílafyr- irtæki og hún segir að þau hafi aldrei tekið sér almennilegt frí, en eftir að þau eignuðust bflinn fóm þau að skreppa út úr bænum eina og eina helgi. Fyrirtækið seldu þau hins vegar árið 1992 og „eft- ÁSA, dóttír hennar Guðrún Andrea og yngstí ferðalangurinn Einar Óli. ir það höfum við nánast aldrei ver- ið heima um helgar á sumrin," seg- ir hún. Þau hjónin hafa farið um allar trissur á bílnum. „Við förum nú ekki í fjallaferðir, en þó höfum við komið í Land- mannalaugar og inn að Ófæmfossi og bfllinn skilar okkur auðveldlega í Þórsmörkina. Við vomm í rúma viku á Ströndum í fyrra, höfum eytt þremur vikum á Vestfjörðum og í sumar ætlum við að fara Austfirði.“_ Þegar Ása er innt eft- ir því hvort ekki sé nú einhvern galia að finna á þessum ferðamáta segir húp að svo sé ekki. „Ég finn alla vega enga galla. Ein- ar hefur að vísu á orði að hann vildi gjarnan stærri bfl, því þessi sé svo þröngur, en ég hef nú strítt honum á því að það sé vegna þess að hann sé alltaf að breikka. Bfllinn hentar okkur vel, enda emm við oft- ast tvö á ferð, en krakkarnir slást í hópinn af og til.“ Móttökurnar mættu vera betri Ef finna á ein- hveija galla við ferðamátann þá segir Ása að móttökur á sumum tjaldstæðum séu slæmar. „Sums staðar þurfum við að borga fullt gjald, en samt verðum Skipulagðar ferðir að Heklu KRISTJÁN ÁRNASON í Stóra-Klofa í Holta- og Land- sveit og sonur hans Árni bjóða í sumar ferðir á Hekluslóðir. Kristján áætlar að vera með ferð- ir frá Hellu á morgnana, en ekið verður sem leið liggur upp Land- sveit með stoppi á Hekluminja- safninu á Brúarlundi. Ekið er inn á Dómadalsleið af Landvegi í Skjólkvíar þar sem sjá má úfið hraun sem myndaðist í gosinu 1970. Um fimm klukkustunda viðdvöl verður við fjallið, áður en ekið er aftur niður á Hellu með áætlaðri komu um kl. 19. Einnig munu þeir feðgar bjóða ferðir eftír séróskum einstakl- inga og hópa með lengri eða skemmri viðdvöl við fjallið. Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadðttir KAFFI og heimabakað góðgætí, auk merkilegra upplýsingar um eitt frægasta eldfjall í heimi, bíða ferðalanga sem fara í Hekluminjasafnið á Brúarlundi í Holta- og Landsveit. NÝLEGA opnaði Hekluminja- safnið á Brúarlundi í Holta- og Landsveit eftir vetrarlokun, en þetta er annað starfsár þess. Ýmsar nýjungar eru á döfinni hjá forráðamönnum safnsins, en um leið og safnið opnar að þessu sinni er hægt að sjá málverka- sýningu ungs listamanns úr sveitinni. Á safninu er saga Heklu og Heklugosa rakin með texta, teikningum, gömlum Heklu- myndum, ljósmyndum, jarð- fræðikortum, vikur- og hraun- sfynum og á ýmsan annan hátt. A safninu eru gamlir munir, myndir og uppstoppuð dýr og Hekla í aðal- hlutverkinu síðar í sumar munu bætast við safnið fleiri sýnishorn úr jurta- og dýraríki Heklusvæðisins. Hægt er að skoða litskyggnu- myndir, bækur, úrklippur og nýja 15 mínútna sjónvarpsmynd um Heklu eftir Hrönn Kristins- dóttur. Fram eftir sumri munu hanga uppi í kaffiteríu safnsins mál- verk eftir 16 ára filippeyskan pilt sem búsettur er í Holta- og Landsveit, Engilbert Vignis Tangolamos. Hann flutti til ís- lands fyrir þrem árum og hefur notað þann tíma vel til að mála. Engilbert þykir mjög efnilegur, en hann hefur enn sem komið er ekkert lært til myndlistar. Myndirnar á sýningunni eru flestar af filippeysku landslagi og eru allar til sölu. Heklumiðstöðin á Brúarlundi er við þjóðveg nr. 26, Landveg, um 20 km frá hringveginum og verður safnið opið alla daga í sumar kl. 10-18. ■ AH Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir KRISTJÁN og Árni bjóða ferðir með fjallabifreið að Heklu í sumar. Fjalladrottningin sjálf í baksýn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.