Morgunblaðið - 16.06.1996, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 16.06.1996, Qupperneq 24
n : I f’[: t (]’)'Ar' 24 D SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996 SUMARFRÍ Á ÍSLAINIDI MORGUNBLAÐIÐ i b Ekki bara síld á Siglufirði SÍLDARÆVINTÝRIÐ á Siglufirði og Síldarminjasafnið þar er löngu orðið landsfrægt, en gestir skipta orðið þúsundum. En fjörðurinn hefur ýmislegt fleira að bjóða. Meðal þess sem hægt er að nefna sem afþreyingarefni er golfvöllur, sundlaug, billiardstofa og leirdúfu- svæði auk þess sem söltunarsýn- ingar verða í allt sumar á föstu- dögum og laugardögum. Einnig verða dansleikir eða skemmtanir á vegum Hótels Læks og Bíókaffí um hveija helgi í sumar. Gönguferðir Gönguhópar, sem leggja leið sína um óbyggðir, eru sífellt að verða vinsælli. Fyrir slíka hópa sem og einstaklinga er Sigluíjörður kjörinn dvalarstaður því baðan er hægt að fínna skemmtilegar gönguleiðir í allar áttir. Hægt er að ganga yfír Siglufjarðarskarð, sem liggur í um 650 metra hæð. Úr Siglufjarðar- skarði er létt og skemmtileg göngu- leið norður á Illviðrishnjúk, 895 m og hæsta íjallið á þessum slóðum. Þaðan er mikið og fagurt útsýni. Síðan er góð gönguleið þaðan norð- ur á Stráka. Tvær leiðir er hægt að ganga út á Siglunes, annars vegar fýrir Nesskriður og hins vegar upp Kálfsdal, niður í Nesdal og þaðan á Siglunes. Öll byggð á Siglunesi er nú komin í eyði, en þar var m.a. herseta á sínum tíma svo og ein elsta hákarlaverstöð landsins. Héðinsijörður, sem er um fímm kílómetrar að lengd og einn kfló- metri að breidd, lagðist í eyði 1951. Héðinsfjarðarvatn er inni í firðinum og er þar allgóð silungsveiði. Eitt mesta flugslys á íslandi varð þar 1947 er áætlunarflugvél frá Reykjavík til Akureyrar með tutt- ugu og fimm manns innanborðs lenti í Hestfjalli sem rís vestan megin fjarðarins og fórust allir um borð. Frá Siglufírði til Héðinsfjarð- ar eru tvær leiðir taldar æskilegast- ar, þ.e. yfír Hestaskarð sem liggur í u.þ.b. 680 m hæð svo og yfir Hólsskarð sem er talsvert léttari leið þótt hún sé þónokkuð lengri. Einnig er hægt að ganga frá Siglu- fírði yfír til Olafsfjarðar með eða án viðkomu í Hvanndölum. Bátsferðir Bátsferðir til útsýnis, á skak eða sjóstöng er upplifun sem höfð- ar til mjög margra og sé -farið út fyrir Siglufjörð er ekki ólíklegt að rekast á stórhveli jafnt sem FRÁ SiGLUFIRÐI er hægt að ganga út á Siglunes, annars vegar fyrir Nesskriður og hins vegar upp Kálfsdal. smáhveli. Fyrir þá sem áhuga hafa á að sigla til Grímseyjar og þar með stíga fæti norður fyrir heimskautsbaug er stysta sjólína þangað frá Siglufirði eða u.þ.b. 30 sjómílur. Sendlherra ferðamanna Að sögn Jóns Ólafs Björgvins- sonar ferðamálafulltrúa hafa Sigl- fírðingar ákveðið að leggja metnað sinn í góða þjónustu og sína róm- uðu gestrisni og vonandi munu ferðamenn fínna að þeir eru vel- komnir í þennan litla útgerðarbæ og segist Jón, sem sjálfur hefur kallað sig sendiherra allra ferða- manna á Siglufírði, vera boðinn og búinn að vera fólki til aðstoðar með hvaðeina sem upp kann að koma. ■ SI Forsíðusliilkan, Laufey Bfaraadóttir, Nr. 8 1996 * tferð kr 399 GERIR SUMARID SKEMMTILEGRA! Hamraverk smíðar heilsórs sumarhús af ýmsum stærðum FYRIRTÆKIÐ Hamraverk hf. í Hafnarfirði smíðar heils- árs sumarhús og býður hús af ýmsum stærðum. Hvert hús er hægt að fá afhent á mismunandi byggingarstigi og er verðið þá að sjálfsögðu einnig misjafnt. Minnsta húsið frá Hamra- verki er 30 fermetrar með tveimur svefnherbergjum, en það stærsta er 60 fermetrar með þremur svefnherbergj- um og útigeymslu. Bygging- arstig húsanna eru þijú: Hægt er að fá þau afhent fokheld, en fullfrágengin að utan og er verönd fyrir fram- an hús þá frágengin. Inni í verðinu er flutningur á hús- inu allt að 120 kílómetra frá Reykjavík og vinna við að koma því fyrir á framtíðar- staðnum. Ef fólk óskar eftir að kaupa hús á næsta bygg- ingarstigi, þá þýðir það að milliveggir eru uppsettir og einangraðir, innihurðir komnar í, rafmagnsrör og dósir í alla veggi, en þó á eftir að draga í og neyslu- vatnslagnir eru tilbúnar til tengingar. Á þriðja stigi er húsið tilbúið, gólfin lögð parketti, eldhúsinnrétting uppsett með vaski og blönd- unartækjum, fataskápar standa klárir og rúmin líka, hreinlætistæki á baði tilbúin til notkunar og svo mætti áfram telja. Innréttingar í húsin geta verið breytilegar. Hægt er að breyta herbergjaskipan, gluggastaðsetningum og fá spegilmyndir af húsunum. Fyrirtækið gerir einnig fast tilboð í undirstöður, rotþró, vegalögn, bílastæði, stærri verönd, heitan pott og fleira. Frá 1,8 upp í 5,3 milljónir Sem dæmi um verð á sumarhúsum frá Hamraverki má nefna, að minnsta húsið kostar tæpar 1,8 milljónir á fyrsta byggingarstigi, 2,5 á öðru byggingarstigi og full- búið kostar það tæpar 2,8. Samsvarandi verð á stærsta húsinu er 3,6 mil^ónir, 4,8 milljónir og 5,3 milljónir. ■

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.