Morgunblaðið - 16.06.1996, Page 33
KiAJír.'i
.ar HUÐACiuviMug Q S8
MORGUNBLAÐIÐ__________________________
SUMARFRÍ Á ÍSLAIMDI
ÚTIVIST skipuleggur fjölda gönguferða yfir Fimmvörðuháls, en þessi ferðalangur hefur ákveðið að
ÚTIVIST býður upp á ferðir um ís-
land og leggur félagið áherslu á upp-
byggingu gönguleiða, byggingu
fjallaskála, kynningarstarf um ferðir
á íslandi og uppgræðslu landsins.
Ferðimar em fjölbreyttar og ættu
allir að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi, jafn rólegasta fjölskyldufólk
sem vönustu fjallagarpar.
Útivist skipuleggur í sumar bæði
lengri og styttri ferðir af ýmsum toga,
náttúruskoðunarferðir, bakpokaferð-
ir, söguferðir, skemmtiferðir, rútu-
ferðir, jeppaferðir, trússferðir, ferðir
fýrir unglinga og fleira. Af dagsferð-
um má nefna, að 23. júní verður Jóns-
messunæturganga úr Sleggjubeins-
dal, yfir Húsmúla í Marardal. Helgar-
ferðir í júní eru t.d. ganga á Snæfell-
sjökul, í Bása eða yfir Fimmvörðu-
háls á sumarsólstöðum, helgina
21.-23. júní. Næstu helgi á eftir,
28.-30. júní verða ferðir í Bása og
Kerlingarfjöll með gönguferðum við
allra hæfí og ökuferð um helstu staði
í Skaftárhreppi. Sömu helgi verður
gönguferð yfir Fimmvörðuháls.
Leggjabrjótur og
læknlngajurtir
í júlí eru ekki síður fjölbreyttar
ferðir. Þann 14. verður til dæmis
farin dagsferð yfir Leggjabrjót, hina
fornu leið milli Þingvallasveitar og
Hvalfjarðar og önnur forn leið verður
farin 28. júlí, þegar gengin verður
Selvogsgatan, milli Hafnarfjarðar og
Selvogs. Af helgarferðum í júlí er
t.d. vert að skoða Mýrdalsjökul helg-
ina 5.-7., sömu helgi verður farið í
Bása, Lakagíga og yfír Fimmvörðu-
háls. Jurtum verður safnað í Þjórs-
árdal 6.-7. júlí, bæði lækningajurtum
og jurtum sem henta í te og aðra
drykki. Komið verður við að Stöng
og í Þjóðveldisbænum. Síðar í júlí
láta þarfasta þjóninn um gönguna.
Út um
allt með
Útivist
verður t.d. farið í Hítardal helgina
12.-14. júlí og í Skaftárdal 26.-28.
júlí, þar sem ferðafélagar gista og
ganga síðan að Leiðólfsfelli. Fimm-
vörðuhálsi verður að sjálfsögðu sinnt
í nokkrum ferðum í júlí og göngu-
garpar koma þá oftar en ekki við í
Básum. Fimmvörðuhálsferðirnar eru
hinar fjölbreyttustu og er einnig boð-
ið upp á slíkar ferðir í miðri viku,-
fyrir þá sem ekki komast um helgar.
I ágúst verður farið í dagsferð að
Heklu, arkað Reykjaveginn og upp
á Högnhöfða, svo dæmi séu tekin.
Verslunarmannahelgl á fjöllum
Verslunarmannahelgina nýta
göngugarpar í Útivist sér rækilega.
Þá er m.a. skipulögð ferð í Bása, þar
sem hægt er að velja um gönguleið-
ir um nágrennið, farið frá Básum
upp á Fimmvörðuháls og haldið í
Landmannalaugar með samkomu-
tjald í farteskinu. Þá verður farið í
Núpsstaðarskóg og er hægt að velja
um gönguferð við allra hæfi, eða
strembnari göngu fyrir vant göngu-
fólk.
Vilji ferðalangar reyna eitthvað
nýtt um verslunarmannahelgina þá
skipuleggur Útivist nú í fyrsta sinn
ferð um Lakagíga, Sveinstind og
Skælinga. Þessa miklu ferðahelgi er
einnig gönguferð frá Ólafsfirði í
Héðinsíjörð, þar sem gist er um nótt-
ina og síðan gengið til Siglufjarðar,
þar sem síldarævintýri verður í full-
um gangi.
Ýmsar aðrar helgarferðir eru i
boði í ágúst og ber þar hæst ýmsar
ferðir á Fimmvörðuháls. Þá má
nefna, að 23.-25. ágúst heldur Úti-
vist í pysjuferð út í Vestmannaeyjar.
Að sjálfsögðu verður gengið um
Heimaey þvera og endilanga og siglt
í kringum hana að auki.
Um mánaðamótin ágúst-septemb-
er fagnar Útivistarfólk 5 ára afmæli
Fimmvörðuskála og slær upp fagnaði
i skálanum, auk þess sem ýmsar
gönguleiðir á svæðinu verða skoðað-
ar nánar.
Sumarleyfi með Útlvist
Útivist skipuleggur ýmsar lengri
sumarleyfisferðir. Þeir sem ætla sér
í slíkar ferðir ættu að panta tíman-
lega. Fargjaldið verður að greiða viku
fyrir brottför, en fararstjórar halda
undirbúningsfundi fyrir allar sumar-
leyfisferðir, venjulega um einni viku
fyrir brottför. Þar er fjallað um ferða-
tilhögun, útbúnað og annað sem
máli skiptir.
Sumarleyfisferðirnar í ár eru hátt
í 30 talsins og verður að ráðleggja
lesendum að hafa samband við Uti-
vist til að fá alla nánari upplýsingar.
Svo aðeins sé stiklað á stóru um
áfangastaðina, þá verður m.a. haldið
í sólstöðuferð á Ingjaldssand, farið í
Emstrur og Bása, Landmannalaug-
ar, Núpsstaðarskóg, Aðalvík og
Hornvík, um Austfirði og Austfjarða-
fjöll, Austurda! og Nýjabæjarfjöll,
Lónsöræfi, Ingólfsfjörð og Reykja-
flörð, gengið „Laugaveginn", og far-
ið um Vatnajökul á vélsleðum.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996 D 33
TILBOÐSRÉTTIR
TOURIST MENU
3Í,
Fyrir alla fjölskylduna
heima og heiman
Veitingastaðir viða um land innan
Sambands veitinga- og gistihúsa bjóða
TILBOÐSRÉTTI SVG, þar sem áhersla er
lögð á staðgóðan mat á góðu verði.
TILBOÐSRÉTTIR gilda allt árið.
Hádegisverður Kvöldverður
Forréttur eða súpa, kjöt- eða fiskréttur, kaffi. 800-1000 kr. 1000-1700 kr.
Börn 0 til 5 ára: ókeypis Börn 6 til 12 ára: 50% afsláttur
Upplýsingar um þátttakendur fást
meðal annars á upplýsingamið-
stöðvum ferðamanna um land allt.
Aukin og endurbætt útgáfa með sérstakri leiðsögn
um Reykjavík, en óbreytt verð kr. 2.980,-
AíslenskaA
BÓKAÚTGÁFAN
Siðumúla 11 • Sími 581 3999
Fiffiéeiueiraiffi - Femsiueiu - Fmmmíibul
Lyktllirm að sogo
og serkeimum laaásios
€1
'WVWW'GULA I! ✓ Okeypis
IEjí upplýsingar um
562*6262 vörur og þjónustu