Morgunblaðið - 16.06.1996, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
SUMARFRÍ Á ÍSLANDI
SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996
D 35
_ I
Morgunblaðið/Sverrir
Heimili farfuglanna
VIÐA um land er að finna gisti-
staði, sem kallast því skemmti-
lega nafni Farfuglaheimili. Ekki
eru þessi heimili þó ætluð fyrir
fiðraða ferðalanga, heldur þá
sem vilja ódýra gistingu með
möguleikum til sjálfsþjónustu á
sem flestum sviðum. Gisting er
í rúmi með sæng og kodda, þann-
ig að ferðalöngum nægir að
koma með eigin sængurföt eða
fá þau leigð á staðnum. Einnig
geta þeir notað eigin svefnpoka
ef þeir kjósa það frekar.
A flestum farfuglaheimilum
eru herbergi tveggja til fjögurra
manna og leitast er við að hafa
sérstök fjölskylduherbergi.
Hreinlætis- og snyrtiaðstaða er
að sjálfsögðu á heimilunum, en
gestir leggja sjálfir til hand-
klæði, sápu og annað þess hátt-
ar. Gestir geta svo sjálfir notað
eldhúsið á staðnum til að elda
sér eigin mat, en mörg heimil-
anna selja einnig mat.
Öruggara að panta
Ekki er nauðsynlegt að panta
gistingu á farfuglaheimilunum,
en það er þó alltaf öruggara.
Sérstaklega ætti fólk að panta
ef það óskar eftir fjölskylduher-
bergi og hópar ættu vissulega
að hafa vaðið fyrir neðan sig og
panta.
Þrjátíu farfuglaheimili eru um
allt land og á kortinu hér á síð-
unni geta ferðalangar áttað sig
á staðsetningu þeirra. Skrifstofa
Bandalags íslenskra farfugla,
sem staðsett er á farfuglaheimil-
inu í Reykjavík að Sundlaugavegi
34, við hliðina á sundlauginni í
Laugardal, veitir allar nánari
upplýsingar. ■
Sérferdir
f rá hvirfli
til ilja
FERÐAÞJÓNUSTAN Frá hvirfli
til ilja er nýstofnað fyrirtæki sem
sérhæfir sig í stuttum sérferðum.
Þar eru skipulagðar ferðir fyrir
starfsmannafélög og alls kyns
hópa fólks sem hefur áhuga á
stuttum skemmtiferðum hvert á
land sem er.
Fólk getur lagt fram hugmynd-
ir um ferðir, en-meðal þeirra ferða
sem Frá hvirfli til ilja bendir á
eru: Helgarferð á Snæfellsnes með
siglingu um Breiðafjörð, tveggja
til þriggja tíma gönguferð um Við-
ey, dagsferð um Reykjanes, dags-
ferð á Egluslóðir í Borgarfirði,
dagsferð á Njáluslóðir og tveggja
daga ferð til Vestmannaeyja með
siglingu umhverfis Heimaey. ■
Útileikhús í
skóginum
ÚTILEIKHÚS verður í gangi á
hveiju miðvikudagskvöldi frá júní-
lokum og fram undir miðjan ágúst.
Leikhúsið er staðsett í Selskógi,
sem er útivistarsvæði Egilsstaða. Á
dagskrá verður austfirskt efni á
þjóðlegu nótunum og eru það
heimamenn sem setja upp.
Þjóðdansafélagið Fiðrildin á
Fljótsdalshéraði sjá um að halda
hita á gestum, bæði með sýningu
og með því að fá gesti í dansinn í
hléi. Atriðin eru samin af Austfirð-
ingum og eins eru það heimamenn
sem leika. ■
AI
CARDINAL VEIÐIHJOL
- uppáhald allra veiðimanna
Cardinal veiöihjólin hafa löngum sannaö kosti sína
fyrir íslenskum veiöimönnum. Eldri geröir Cardinal
hjólanna eru sjálfsöguöu ennþá til en Cardinal fjöl-
skyldan hefur stækkaö því nú eru komin Cardinál
Black Max hjól sem hafa þá yfirburöi yfir önnur hjöl
að þau eru framleidd úr sterkri og léttri álblöndu.
Hjólin koma meö kúlulegum og eru mjög létt í með-
förum. Auka spóla fylgir.
Heitl Þyngd . Gírhlutfall Verö
Cardiriaí Black Max 3 365 g 5,2:1 7.520 kr.
Cardinal Black Max 4 415 g 4,8:1 7.864 kr.
Cardinal Black Max 5 435 g 4,8:1 8.548 kr.
Einnig eru nú komin Cardinal Titan hjól sem eru gerö
úr sterkri Carbon Fiber blöndu. Hjólin koma meö
kúlulegum og aukaspólu.
Helti Þyngd Gírhlutfall Verö
Cardlnal Tltan 3 280 g 5,2:1 4.490 kr.
Cardinal Tltan 4 330 g 4,8:1 4.922 kr.
Cardinal Tltan 5 330 g 4,8:1 5.643 kr.
A Ui ■“
SrADU
Garcia
Umboösaðlli: Verslunin Veiöimaöurinn, Hafnarstræti 5, slmi: 551 4800
NAVIGARE útivistarfatnaður
á alla fjölskylduna!
Frábær vind- og vatnsheldur útivistarfatnaður með
mjög góða útöndun. Frábært verð!
Barnagallar st. 98-122 frá kr. 2.990.-
St. 128-176 frá kr. 7.980.-
Fullorðinsgallar og stakir jakkar frá kr. 9.990.-
hí-point æfingagallar á börn og fullorðna.
Vandaðir, þægilegir og fallegir gallar á góðu verði!
Barnagallar frá kr. 3.990.- Fullorðins frá kr. 4.990.-
★★★★
Mest seldu úthristar- og
gönguskór f heimil
'BCHTAMAÐUUINN
LAUGAVEGI 23 • SlMI 551 5599
Kvenskór frá
kr. 4.990.-
SympaTex skór frá
kr. 8.990.-
Barnaskór
frá kr. 3.990.-
Herraskór frá
kr. 5.490.-