Morgunblaðið - 16.06.1996, Page 39
CíJCÍÁJflMUDífOM
MORGUNBLAÐIÐ
,— ------------— — —• SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996 © 39
SUMARFRÍ Á ÍSLANDI
Listasafn
Bókasafn
Sædýrasafn
Bflafeija
Áætlunarflugvöllur Flugbraut
Miðbær
Bifreiðaverkstæði Eldunaraðstaða
Sturta
Bátsferðir
Athyglisv. staður Sorpgámar
Heitur pottur Þvottavél
Sjóstangaveiði Vélsieðar til leigu Vatnsþotur til leigu Reiðlyól til leigu Bátartilieigu
Þjónustumerki
og leikur
MEÐ auknum ferðalögum og
þar með síaukinni þjónustu
fyrir ferðamenn fer ýmsum
umferðarmerkjum einnig
fjölgandi.
Nú er ekki
einungis
þörf á nauð-
synlegum
viðvörunum
um blind-
hæð, krappa
beygju,
vegavinnu,
steinkast og
fleira í þeim
dúr, sem all-
ir ferðalang-
ar kunna
vonandi
utan að,
heldur þurfa
ferðamenn
einnig að
vita hvar þeir geta fundið
athyglisverða staði, hvar
hægt er að leita aðstoðar ef
billinn bilar, hvar hægt er að
leigja hest ef sá gállinn er á
mönnum, hvar hægt er að
leggja hjólhýsinu, komast í
þvottavél, leigja sér sumar-
hús, elda mat eða komast í
sturtu.
Svokölluð þjónustumerki,
sem ættu að upplýsa ferða-
langa um allt þetta og meira
til, eru nú 62 talsins. Nú ætti
enginn að velkjast í vafa um
hvar næsta sorpgám, íþrótta-
hús, ferða-
inanna-
verslun,
banka, sæ-
dýrasafn
eða bakarí
er að finna.
Þar sem
merki þessi
eru mörg ný
af nálinni er
hluti þeirra
birtur hér
lesendum til
glöggvunar.
Þegar sum-
arfríið
rennur upp
og ekið er
af stað um
landið ætti því öll fjölskyldan
að vita hvað þessi merki þýða.
Það gæti líka verið skemmti-
legt fyrir yngsta fólkið í fjöl-
skyldunni að gista á merk-
ingu skiltanna og mamma og
pabbi geta þá fylgst með
hvort afkvæmin skilja merk-
ingarnar rétt. Þannig gæti öll
fjölskyldan skemmt sér og um
leið áttað sig betur á öllum
skiltunum. ■
Flóran
í MIÐRI höfuðborginni er lystigarð-
ur, Grasagarður Reykjavíkur, þar
sem gestir geta skoðað 3500 jurtir
á 2,5 hektara svæði. Þrátt fyrir að
margir viti af garðinum og komi
þangað oft, þá eru ýmsir sem ekki
gera sér grein fyrir hvað leynist á
bak við myndarleg trén í Laugardaln-
um. Gestir í Reykjavík og höfuðbúár-
borgar sjálfir ættu að gefa sér tíma
til að líta þar við. Þeim frídegi væri
vel varið og að auki er Grasagarður-
inn við hliðina á Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum, tjaldstæði borgarinn-
ar, Laugardalslauginni og öðrum
íþróttamannvirkjum.
# f #•
i frunu
Grasagarðurinn var stofnaður á
175 ára afmæli Reykjavíkurborgar
árið 1961 og er rekinn af borginni.
í garðinum er að finna sérstakt horn,
þar sem flóra íslands er kynnt. Þar
eru nú 300-350 tegundir af þeim
u.þ.b. 485 háplöntum, sem teljast til
íslensku flórunnar. Plöntunum er að
mestu raðað eftir ættum, sem gefur
tækifæri til að bera saman náskyldar
tegundir og skoða muninn á þeim.
Allar plöntur í garðinum eru merktar
íslensku og latnesku tegunda- og
ættaheiti og getið heimkynna þeirra.
Erlendar, fjölærar jurtir setja mik-
inn svip á garðinn og eru um 1500
talsins. Þá geta gestir
rölt um garðskála og
skoðað þær jurtir sem
þola ekki íslenskan
vetur. Gestimir sjálfír
geta snætt nesti í ská-
lanum eða keypt sér
kaffibolla. Skammt
undan eru „uppeldis-
reitir“, þar sem plönt-
um er skýlt fyrir frosti
og næðingi fyrstu
árin.
Arboretum kallast
yngsti hluti garðsins,
en það er latneskt
heiti á svæði sem ætl-
að er undir trjásafn.
Með tíð og tíma geta
gestir því rölt þar um
og skoðað ólíkar trjá-
tegundir.
Loks má svo nefna,
að í Grasagarðinum
eru tvö listaverk.
Annað þeirra er stytt-
an Sköpun eftir Helga
Gíslason, en hitt verk-
ið var sett upp á síð-
asta ári og stendur í
miðjum garðinum og
er það vatnslistaverk-
ið Fyssa eftir Rúrí.
Grasagarðurinn er
opinn frá kl. 8-22
virka daga og frá kl.
10-22 um helgar.
RNANN
.. VATHSLAUQ Hf,
ÁRMÚU 22*106 REVKdAVÍK
« 561 36®3 * FAX 561 -2664
Heilsupottar frá Normann
Látið heilsupottana
frá Nonnaim veita
Íjölslíy’ldunni notalegar
stundir írá anistri
hversdagsleikans.
Sæti og legubelddr eru
löguð að líkamanum.
Vatnsnudd og loítnudd
fáanlegt eftir óskiun
kaupanda.
Ljós, hitamælar,
klórbúnaður o.fl. aukahlutir
f\Tirliggjandi.
Framleiddir úr gæða aciyl.
Leiðandi fyrirtæki í sölu
heilsupotta með eða án
nudds ásamt fylgihlutum
og búnaði.