Morgunblaðið - 21.06.1996, Blaðsíða 1
t-
f
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1996
tfgtutWafrUk
I FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ
BLAD
KNATTSPYRNA
Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson
BIKARMEISTARAR KR sóttu Magna heim á Grenivík í bikarkeppni KSÍ í gærkvöldi. KR sigraði 3:0 eftir að staðan
í hálfleik hafði verið 0:0. Hér sækja KR-ingarnar Hilmar Björnsson og Guðmundur Benediktsson að marki
Magna en tii varnar eru Jón Helgi Pétursson, markvörður, Ægir Jóhannsson (nr. 4) og Elður Pálmason.
Rúnar skoraði
í sigurleik
RÚNAR Kristinsson skoraði
fyrra mark Örgryte í 2:0-sigri
liðsins á Malmö í sænsku úr-
valsdeildinni í knattspyrnu i
gær. Markið sem Rúnar gerði
úr vítaspyrnu er það fimmta
sem hann skorar í sumar og
er hann markahæsti leikmað-
ur liðsins auk þess að vera
meðal markahæstu leik-
manna deildarinnar.
f öðrum leikjum gærdags-
ins bar Umeá sigurorð af
Halmstad 2:1, Degerfors lagði
Oddevold 1:0 á heimaveili,
Trelleborg og Helsjngborg skildu með skiptan
hlut 1:1, loks lagði Öster lið Norrköping 1:0.
Við sigurinn færðist Örgryte upp í 6. sæti
með 15 stig en Gautaborg er sem fyrr efst með
24 stig ásamt Helsingborg.
Nýr þjálfari ráð-
inn hjá Sundfé-
lagi Hafnarfjarðar
ENGLENDINGURINN Brian Marshall hefur
verið ráðinn aðalþjálfari Sundfélags Hafnar-
fjarðar næstu fjögur árin. Hann tekur við af
Þjóðveijanum Klaus Jiirgen Ohk, sem hefur
verið ráðinn sem landsliðsþjálfari Lúxemborg-
ara.
Marshall hefur verið aðstoðarþjálfari í Birm-
ingham og er vel menntaður i sundþjálfun. Hann
hefur þjálfað alla aldurshópa frá því 1989 og
unnið m.a. með sundmenn úr ólympíuliði Breta.
Kvennalandsliðið
keppir á Möltu
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í körfuknattleik
tekur þátt í „Promotion cup“ sem fram fer á
Möltu 24. júní til 2. júlí. Átta smáþjóðir Evrópu
taka þátt í mótinu og er ísland í riðli með And-
orra, Kýpur og Möltu. í hinum riðlinum eru
Gíbraltar, Lúxemborg, Wales og Albanía.
Sigurður Ingimundarson, landsliðsþjálfari,
hefur valið eftirtaldar stúlkur til keppni (lands-
leikjafjöldi innan sviga): Kristín Blöndal (7),
Hanna Kjartansdóttir (16), Linda Stefánsdóttir
(27), Anna Dís Sveinbjörnsdóttir (14), Erla Reyn-
isdóttir (3), Alda Leif Jónsdóttir (0), Kristln Jóns-
dóttir (2), Birna Valgarðsdóttir (2), Erla Þor-
steinsdóttir (3), Helga Þorvaldsdóttir (8), Anna
María Sveinsdóttir (36) og Guðbjðrg Norðfjörð
(23.).
Rúnar
Eftir bókinni
ENGIN óvænt úrslit urðu í
þeim ellefu leiiyum sem fram
fóru í gærkvöldi í 32-liða úr-
slitum bikarkeppni KSÍ í
karlaflokki. Bikarmeistarar
KR hófu titilvörn sína I Greni-
vík með 3:0 sigri á heima-
mönnum, en jafnt var 0:0 í _
hálfleik. íslandsmeistai-ar f A
heimsóttu baráttuglaða leik-
menn 3. deildarliðs Hattar á
Egilsstöðum. ÍA hafði betur í
ieiknum, 3:1, en jafnt var í
leikhléi, 1:1. Metaðsókn var á
leikinn - tæplega sjöhundruð
manns. Einn leik þurfti að
framlengja en það var viður-
eign 2. deildar félaganna Vík-
ings og Skallagríms á Víking-
sveili. Jafnt var að loknum
venjulegum leiktíma 1:1, en
Skaliagrímur hafði betur í
framlengingunni með tveimur
mörkum frá Sindra Grétars-
syni.
KORFUKNATTLEIKUR
Jackson verður
áfram með Chicago
Stjórn Chicago Bulls gerði í
gær eins árs samning við
þjálfara sinn Phil Jackson, en
fyrri samningur rann út um leið
og keppnistímabilinu lauk um síð-
astliðna helgf. Fyrir þennan eins
árs samnign fær Phil Jackson
sem svarar til 132 milljóna króna
í laun. Sem kunnugt er hefur
Jackson þjálfað Chicago undanf-
arin ár og stýrt liðinu til fjögurra
meistaratitla á sex árum. Til sam-
anburðar má geta þess að hann
fékk sem nemur þriðjungi af
þessari upphæð í laun fyrir ný-
lokna leiktíð. Jackson hafði fyrir
skömmu látið í það skína að hugs-
anlega tæki hann sér eins ár hlé
frá þjálfun þegar nýloknu tíma-
bili lyki.
Með samningi þessum er miklu
fargi létt af eiganda Chicago,
Jerry Reinsdorf, því annar maður
úr hans herbúðum sem er með
lausan samning, snillingurinn
Michael Jackson, hefur lýst því
yfir að hann hafi ekki áhuga á
að leika undir stjórn annars þjálf-
ara en Jacksons. Nú er það mál
í höfn og næsta verkefni eigand-
ans tekur við, að semja við Jord-
an og einnig hinn skrautlega
Dennis Rodman sem liðinu er
einnig mjög mikilvægur.
Það er hins vegar ljóst að
Reinsdorf verður að reiða fram
hærri upphæð til þess að ná
samningum við þessa tvo snjöllu
leikmenn. Jordan hefur látið hafa
eftir sér að hann vilji fá 1,2 millj-
arða króna fyrir hvert tímabil og
Rodman hefur orðað tölur sem
eru um það bil helmingi lægri
fyrir sambærilegt tímabil.
SKYLDI Phil Jackson hampa
öðrum bikar næsta vor sem
þjálfari Chicago?
FRJALSIÞROTTIR / CARL LEWIS KEPPIRIATLAIMTA / B2