Morgunblaðið - 21.06.1996, Síða 4

Morgunblaðið - 21.06.1996, Síða 4
KNATTSPYRNA Sanngjamt en strembið hjá KR-ingum og Skagamönnum Morgunblaðið/Árni Sæberg ÍVAR Ingimundarson stekkur hér hærra en „unglingarnir" hjá Val í leik 1. deildarliðs og ungmennaliðs Vals á Hlíðar- enda í gærkvöldi. Fyrstu deildarllðið vann örugglega 7:0. BIKARMEISTARAR KR og ís- landsmeistarar IA komust í hann krappann í 32-liða úrslit- um bikarkeppninnar f gær- kvöldi. KR vann Magna 3:0 og Skagamenn unnu Hött á Egils- stöðum 3:1, en jaf nt var í báð- um leikjunum íhálfleik. Annars voru úrslit f bikarkeppninni nánast eftir bókinni þar sem efri deildarliðin höfðu betur gegn liðum úr neðri deildunum. Magnamenn voru ákveðnir í byrjun gegn KR og fljótlega átti Brynjar Ottarsson þrumuskot utan vítateigs sem Skapti Kristján Finnboga- Hallgrímsson son varði mjög vel í skrifar horn. KR-ingar voru síðan mun meira með boltann og fengu nokkur góð færi, Ríkharður Daðason það besta en Jón Helgi Pétursson varði meist- aralega frá honum í dauðafæri. Skömmu fyrir leikhlé átti Jóhann Tryggvi Arnarson, Magnamaður, svo fallegt skot í þverslána en KR-ingar ógnuðu nokkrum sinnum hinum megin áður en flautað var til leikhlés. Einar Þór Daníelsson og Ólafur Kristjánsson komu inn á er seinni hálfleikurinn hófst í stað Guðmund- ar Benediktssonar og Sigurðar Arn- ar Jónssonar og það var Einar sem braut ísinn er 67 mín. voru liðnar. Skoraði þá með fallegu skoti neðst í hægra hornið beint úr aukaspyrnu rétt utan vítateigs. Segja má að það hafi verið afbragðs gott hjá 4. deild- arliðinu að halda hreinu svo lengi. Tíu mín. síðar skoraði Þorsteinn ÚRSLIT Knattspyrna Bikarkeppni KSÍ, 32-liða úrslit: Keflavík U23 - Keflavík...........0:3 - Eysteinn Hauksson, Óli Þór Magnússon og Sverrir Þór Sverrisson. Fram U23 - Breiðablik.............0:2 - Kristófer Sigurgeirsson, Kjartan Einars- son. Leiknir R. - Þór Ak............ 1:3 Þorvaldur Guðmundsson - Bjarni Svein- björnsson, Hreinn Hringsson og Zoran Zilcic. Dalvík - Leiftur.................0:7 - Sverrir Sverrisson 2, Páll Guðmundsson 2, Ratislav Lazorik, Jón Þór Andrésson, Sindri Bjarnason. Víkingur Ól. - Fylkir.............1:5 Árni Hermannsson - Kristinn Tómasson 3, Þórhallur Dan Jóhannsson og Erlendur Þór Gunnarsson. Sindri - Stjarnan................2:5 Purecevic 2 - Goran Micic, Rúnar Sigtryggs- son, Ingólfur Ingólfsson, Valdimar Kristó- fersson 2 Magni-KR.........................0:3 -Einar Þór Daníelsson, Þorsteinn Jónsson, Hilmar Björnsson. Víkingur R. - Skallagr...........1:3 Hörður Theódórsson - Sindri Grétarsson 2, Bjöm Axelsson. Höttur-ÍA........................1:3 Siguður Magnússon - Haraldur Ingólfsson, Jóhannes Harðarson, Bjarni Guðjónsson. Ægir - Grindavík..................0:5 Ólafur Ingólfsson 2, Grétar Einarsson, Zor- an Ljubecic, Kekic Siusa. ValurU23-Valur...................0:7 - Sigþór Júlíusson 3, Jón S. Helgason, ívar Ingimarsson, Jón Þórðarson, Sigur- björn Hreiðarsson. Jónsson með skalla eftir hornspyrnu og þótti mörgum það vel við hæfi því hann er frá Grenivík og hóf ferilinn með Magna. Hilmar Björns- son innsiglaði svo sigurinn með marki af stuttu færi tveimur mín. fyrir leikslok. Sigur KR var mjög sanngjarn en heimamenn komu þeim greinilega í opna skjöldu með mikilli baráttu. Vörn þeirra var mjög góð með Bjarna Áskelsson og Jón Helga markvörð sem bestu menn, og þeir ógnuðu marki meistaranna nokkr- um sinnum. Skömmu áður en Einar Þór gerði fyrsta mark leiksins hafði Kristján markvörður t.a.m. varið glæsilega skot eins heimamannsins af stuttu færi. Höttur komst yfir Sigurður Magnússon kom heima- mönnum í Hetti á Egilsstöðum á bragðið er hann gerði fyrsta mark leiksins gegn Islandsmeisturum Skagamanna snemma leiks. Har- aldur Ingólfsson náði síðan að jafna fyrir ÍA fyrir leikhlé. í síðari hálf- leik var jafnræði framan af og heimamenn báru enga virðingu fyr- ir Skagamönnum en urðu að gefa eftir í lokin og þá komu tvö mörk á síðustu 15 mínútunum, fyrst Jó- hannes Harðarson og síðan Bjarni Guðjónsson. Metaðsókn var á leikinn og komu á sjöunda hundrað áhorfendur til að fylgjast með leiknum. Veður var einnig með besta móti. Leikurinn þótti mikil skemmtun fyrir Aust- firðinga. Framlengt í Víkinni Einn leik varð að framlengja í gær, en það var viðureign Víkings og Skallagríms í Víkinni. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 1:1. Sindri Grétarsson tryggði síðan sæti Skallagríms í 16-liða úrslitum með tveimur mörkum í framleng- ingunni. Tveir fengu rautt Tveimur leikmönnum var vísað af leikvelli hjá Breiðabliki í fyrri hálfleik á móti unglingaliði Fram á Valbjarnarvelli. Það voru þeir Arnar Grétarsson og Þórhallur Hinriksson sem fengu rautt spjald og verða því báðir í leikbanni í næsta deild- arleik gegn ÍA á mánudagskvöld. Þrátt fyrri að Blikar væru tveimur færri sigruðu þeir 2:0 og eru komn- ir áfram. Kristinn með þrennu Kristinn Tómasson úr Fylki var annar tveggja leikmanna sem náði að gera þrennu í bikarleikjunum í gærkvöldi. Það gerði hann í 5:1 sigri á Víkingi í Olafsvík. Sjö mörk Leifturs og Vals Leiftur burstaði granna sína í Dalvík með sjö mörkum gegn engu eftir að staðan í hálfleik hafði verið 4:0. Sverrir Sverrisson og Páll Guð- mundsson gerðu tvö mörk hvor. Sömu úrslit urðu í leik Vals og ungmennaliðs Vals, 7:0. Sigþór Júl- íusson gerði þrennu í leiknum. 1. deildarlið Keflvíkinga lagði ungmennalið félagsins í Keflavík 3:0. Grindavík sigraði Ægi 5:0 og gerði Ólafur Ingólfsson tvö marka Grindvíkinga. Öruggt hjá Þór Þórsarar gerðu góða ferð í Breið- holtið og unnu Leikni 3:1 eftir að hafa komist í 3:0. Halldór Áskels- son, sem hefur verið meiddur lengi, lék með Þór í gær — kom inná sem varamaður. Stjarnan skein á Höfn Stjarnan vann Sindra örugglega á Höfn í Hornafirði, 5:2. Valdimar Kristófersson gerði tvö marka Garðbæinga, en Purecevic gerði bæði mörk heimamanna. FOLK ■ ÞRÁTT fyrir slakt gengi Rússa hefur Oleg Romantsev, landsliðsþjálfari, ekki í hyggju að segja af sér. Hann segir að nú verði að huga vel að undirbúningi liðsins fyrir næstu heimsmeistara- keppni,“ sagði Romantsev sem tók við landsliðinu af Pavel Sa- dyrin eftir HM 1994. ■ PAVEL Nedved, miðvallar- leikmaður Tékka, fékk annað gula spjaldið sitt í keppninni gegn Rússum á miðvikudag og tekur út leikbann í leiknum gegn Portú- gal í Birmingham á sunnudaginn. Fyrirliðinn Miroslav Kadlec, sem tók út leikbann gegn Rússum, verður með á sunnudag. ■ GARY McAllister, sem mis- notaði vítaspyrnuna á móti Eng- lendingum, gaf ungum skoskum aðdáenda sínum, Luke Myring sem er 12 ára, skóna sem hann notaði í leiknum. Annar skoskur knattspyrnuáhugamaður bauð síð- an 50 pund í skóna, en Luke sagði NEI. ■ TONY Adams, fyrirliði enska landsliðsins og Darren Anderton æfðu ekki með enska landsliðinu í gær vegna meiðsla. Þeir eiga báðir í hnémeiðslum og eins eru þeir Jamie Rdnapp og Steve Howey meiddir og verða ekki með. Paul Ince tekur út leikbann á morgun og talið líklegt að David Platt taki stöðu hans á miðjunni. ■ BERTI Vogts er ekki ánægður með að geta ekki stillt upp sterk- asta liði sínu á móti Króatíu á sunnudag. Margir leikmenn liðsins eiga í meiðslum og Thomas Strunz verður í leikbanni eftir brottreksturinn í leiknum á móti ítölum. Thomas Helmer og Stef- an Reuter meiddust á móti ítölum og Rene Schneider meiddist á æfingu auk þess sem fækkaði um tvo í hópnum er Jiirgen Kohler og Mario Basler fóru heim meiddir eftir fyrsta leik- inn. ■ CHRISTOPH Daum, sem var rekinn frá tyrkneska liðinu Be- siktas í vor, verður næsti þjálfari Bayer Leverkusen. Daum, sem er 42 ára, sagðist búast við að gera þriggja ára samning við þýska félagið. Hann gerði Stutt- gart að þýskum meistara árið 1992 og lék Eyjólfur Sverrisson undir stjórn hans þar og eins fór hann með Daum til Besikts og varð meistari 1995. ■ BIXENTE Lizarazu, varnar- maður franska landsliðsins og Bordeaux, er á leið til Athletic Bilbao á Spáni. „Þetta er mjög góður samningur, en hann er ekki spurning um peninga,“ sagði Liz- arazu, sem er 27 ára. ■ GIUSEPPE Giannini leikmað- ur og fyrirliði Roma hefur ákveð- ið að yfirgefa félagið eftir að hafa leikið með því í 15 ár. Þessi 31 árs gamli kappi hefur gert tveggja ára samning við austurríska félag- ið Sturm Graz. ■ „EG eignaðist aðeins einn vin hjá Roma - knöttinn, aðrir sem ég kynntist voru félagar. En eitt er víst að ég verð áfram stuðnings- maður Roma. í Austurríki er leik- ið á laugardögum og ég reikna með að vera á meðal áhorfenda á Ólympíuleikvanginum í Róm á sunnudögum," sagði Giannini er hann kvaddi stuðningsmenn sína. Hann lék yfir 500 1. deildaleiki með Roma og skoraði í þeim 49 mörk. Sættir milli JSI og Vernharðs Á stjórnarfundi Júdósambands íslands í gær var komist að sam- komulagi við Vernharð Þorleifsson vegna yfirlýsinga hans og ásakana í garð stjórnar JSÍ og landsliðsþjálfara. „Vernharð hefur beðist velvirðingar og beiðni hans hefur verið tekin til greina,“ segir í tilkynningu frá sljórn JSÍ. Vernharð verður því þátttakandi fyrir íslands hönd á Ólympíu- leikunum og hann og Michal Vachun fara þangað eftir að hafa unnið saman að undirbúningi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.