Morgunblaðið - 21.06.1996, Qupperneq 1
v'^.t
■ STERKASTl MAÐUR HEIMS/3 ■ MISMUNANPI MYNDARAMMAR/4
■ BÍÓSÝNINGAR - TIL HVERS7/6 ■ HVÍTLAUKUR í OSTAKÖKU OG ÍS/7
■ TRYLLITÆKI AUGNANNA/8 ■ SKARTGRIPIR ÚR PLASTLEIR/8 ■
Flug-
hræðsla
FLUGFÆLNI hrjáir margan manninn hér
á landi. Til að draga úr því vandamáli er
algengt að fólk fái sér áfengi eða lyf en
til eru betri og skynsamlegri leiðir.
í könnun á flughræðslu meðal íslendinga
kom í ljós að flugfælni bagar um fjórðung
kvenna hér á landi og að íbúar á höfuðborg-
arsvæðinu eru flughræddari en Iands-
byggðarfólk. Einnig kom þar í ljós að ótt-
inn við flugferðir er algengastur hjá fólki
á milli þrítugs og fertugs.
í meirihluta tilfella upplifir fólk flugferð
sem vekur upp óttann hjá því en einnig
er algengt að menn verði fælnir af um-
gengni við einhvern sem er flughræddur.
Stundum nægir einfaldlega að heyra frá-
sagnir eða lesa fréttir af flugslysum til að
vekja upp mikinn ótta. ■
2
T eiknifígúrur
hasla sér völl á
hálsbindamarkaðinum
FLÓRAN á hálsbindamarkaðinum er mjög fjöl-
breytt í sumar. Látlausu sígildu slifsin njóta
nú sem fyrr mikilla vinsælda en
einnig virð
ist vera
rými
fyrir
eitthvað
nýtt og
spennandi,
sem er jafnframt meira áber-
andi. Meðal annars hefur það færst í
vöxt að karlmenn skarti stórum og
breiðum teiknimynda- eða fígúruslifs-
um. „Það þykir svalt að vera öðruvísi og
allt er gert til að skapa sér sérstöðu, fígú-
rubindin eru einn angi af því,“ segir Þórir
Árnason, afgreiðslumaður í herrafataversl-
uninni Bogart.
Þórir leggur áherslu á að karlmenn geti
vel farið á veitinga- og skemmtistaði án þess
að vera með hálsbindi. „Ungir menn nota bindi
og jakkaföt mun minna en þeir sem eldri eru.
Þó er langt frá því það þyki hallærislegt að
vera í jakkafötum og með bindi, það fer bara
allt eftir hvert tilefnið er. í dag getur allt
gengið upp, svo í raun er þetta bara spurning-
in um að þora. íslenskir karlmenn virðast þó
vera frekar fastheldnir ef miðað er við það sem
viðgengst í útlöndum," segir Þórir.
Verslunarmennirnir í Herraríkinu segja, að
á markaðinum megi finna ótrúlegar útfærslur
af hálsbindum. ,Gróf eða fín, mjó eða breið.
Bara að nefna það. Jafnframt eru að þeirra
mati allir litir í tísku, bæði sterkir og daufir.
Að sögn afgreiðslumannanna í Herraríkinu,
seldist í fyrrasumar mikið af slifsum með dýra-
myndum á, meðal annars svínum, hestum og
hreindýrum. Þeir áætla að teiknifígúrubindin
muni ná vinsældum í sumar.
Svava Eyjólfsdóttir í verslun Guðsteins seg-
ir bindatískuna vera miklu fijálslegri en fyrir
nokkrum árum.„Ef þig langar til að
vera öðruvísi þá getur þú það,“
segir Svava.
Hjá Guðsteini
^ hefur til að
mynda tölu-
vert selst af
hárauðum og
skærbláum bindum
með gulum böngsum. „Það
eru ákveðnar manngerðir
sem hrífast af svona
bindum, en skemmti-
legast er hvað tísk-
an er orðin miklu
afslappaðri en
áður,“ segir
Svava. É
Morgunblaðið/Kristinn
indaður morgunmatur^
m 5
8 tegundir
mmmam
Crest tannkrem
178,
2 fyrir I