Morgunblaðið - 22.06.1996, Síða 1
80 SÍÐUR B/C
139. TBL. 84. ÁRG.
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
Olympíueldinum
miðlað
ÓLYMPÍUELDURINN er enn á
ferðinni til Atlanta í Bandaríkj-
unum þar sem Ólympíuleikarnir
hefjast 19. júlí. í fyrrakvöld lá
leiðin til Hvíta hússins í Wash-
ington og í gær var aftur lagt
uppáð lokinni veglegri athöfn.
Carla McGhee, sem er í kvenna-
landsliði Bandaríkjanna í körfu-
knattleik, tók þá við eldinum frá
Bill Clinton forseta. Skoðana-
könnun, sem birt var í síðustu
viku, sýndi, að Clinton hefði
ekki nema sex prósentustig
umfram Bob Dole, frambjóð-
anda repúblikana og keppinaut
sinn í forsetakosningunum í
haust, en tvær nýjar kannanir í
þessari viku sýna, að munurinn
er nú 20 prósentustig. Virðist
því sem umræðan um Whitewat-
er-málið og önnur gagnrýni
repúblikana á Clinton hríni lítt
á honum.
Jeltsín talínn víss um
stuðning Javlínskís
Lebed dregur til baka allt um „valdaránstilraunina“
Moskvu. Reuter.
BÚIST er við, að umbótasinninn
Grígorí Javlínskí ákveði um helgina
hvaða afstöðu hann tekur í síðari
umferð forsetakosninganna í Rúss-
landi en sumir samhetja hans hafa
þegar lýst yfir stuðningi við Borís
Jeltsín forseta. Alexander Lebed,
hinn nýi yfirmaður rússneska ör-
yggisráðsins, hefur dregið til baka
ásakanir á hendur nokkrum hers-
höfðingjum um, að þeir hafi ætlað
að þrýsta á Jeltsín að hætta við
brottrekstur Pavels Gratsjovs, fyrr-
verandi varnarmálaráðherra.
Javlínskí og flokkur hans, Jabl-
oko eða Eplið, fengu 5,5 millj. at-
kvæða í fyrri umferð forsetakosn-
inganna 16. júní og Jeltsín þarf á
þeim að halda í síðari umferðinni
3. júlí til að sigra Gennadí Zjúg-
anov, frambjóðanda kommúnista.
Óbein stuðningsyfirlýsing
Javlínskí hefur stundum haft stór
orð um Jeltsín og stjórn hans en
hann er ákveðinn andkommúnisti
og því mun hann aldrei styðja Zjúg-
anov. í gær skoraði hann raunar á
stuðningsmenn sína að kjósa ekki
Zjúganov og hann komst næst því
að lýsa yfir
stuðningi við
Jeltsín með því
að skora einnig
á þá að kjósa
ekki gegn báð-
um frambjóð-
endum því að
það myndi gagn-
ast Zjúganov.
Búist er við, að
samþykkt verði
á flokksþingi
Jabloko um helgina að hvetja til
stuðnings við Jeltsín.
Þingmaðurinn Vladímír Kúkín og
einn af stofnendum Jabloko sagði
í gær, að ekki væri 'um annað að
ræða en styðja Jeltsín og undir það
hafa aðrir frammámenn í flokknum
tekið. Javlínski hefur fagnað því,
að Jeltsín skuli hafa rekið þijá harð-
línumenn úr stjórn sinni og sumir
fréttaskýrendur telja hann líklegan
til að þiggja ráðherraembætti í
næstu stjórn sigri Jeltsín.
Lebed dregur í land
Lebed, yfirmaður öiyggisráðsins,
dró í gær til baka ásakanir um, að
nokkrir hershöfðingjar hefðu ætlað
að þrýsta_ á Jeltsín að reka ekki
Gratsjov. í fyrstu sagði hann, að um
valdaránstilraun hefði verið að ræða
en nú, að málið væri aðeins það, að
blaðafulltrúi Gratsjov hefði reynt að
fá deildir hersins til að skora á Jelts-
ín að hrófla ekki við varnarmálaráð-
herranum.
Jeltsín neitaði í gær að fallast á
frumvarpsdrög um það hvernig for-
setaskipti eigi að fara fram og vís-
aði því aftur til þingsins eða dúm-
unnar þar sem kommúnistar og
stuðningsmenn þeirra eru í meiri-
hluta. Sagði aðstoðarmaður hans,
að drögin væru „hættuieg" vegna
þess að þau gerðu ráð fyrir að valda-
skiptin gætu farið fram annars stað-
ar en i Moskvu. Það gæti leitt til
að upp risi annar forseti í landinu.
Samkomulag tókst í kúariðudeilu Evrópusambandsins og Bretlands
Reuter
FRANSKIR bændur efndu til mótmæla í 75 bæjum víða um Frakkland í gær og kom
sums staðar til átaka með þeim og lögreglunni. Voru þeir að krefjast aukinnar aðstoð-
ar vegna hruns í nautakjötssölu en það eru ekki aðeins breskir bændur, sem hafa orðið
illa úti vegna kúariðunnar, heldur einnig starfsbræður þeirra á meginlandinu. I Frakk-
landi hefur salan minnkað um allt að 30%. Hér er verið að bera brúðu í líki John
Majors, forsætisráðherra Bretlands, á bál fyrir framan byggingu Evrópuþingsins í Stras-
borg en Frakkar telja Breta eiga mesta sök á hvernig komið er.
„Sigri“
Majors fá-
lega tekið
heima fyrir
Flórens. Reuter.
LEIÐTOGAR Evrópusambandsins, ESB, náðu sam-
komulagi í gær í kúariðudeilunni við Breta og verð-
ur útflutningsbannið á breskum nautgripaafurðum
afnumið í áföngum. Á móti munu Bretar taka upp
eðlilegt samstarf við önnur ríki bandalagsins og
hætta að tefja fyrir samþykktum þess. John Maj-
or, forsætisráðherra Bretlands, fagnaði samkomu-
laginu sem sigri en breska stjórnarandstaðan vísar
því á bug og jafnvel hans eigin flokksmenn hafa
um það efasemdir.
Klaus Kinkel, utanríkisráðherra Þýskalands,
fagnaði málamiðluninni og Malcolm Rifkind, utan-
ríkisráðherra Bretlands, sagði, að orðið hefði verið
við tveimur meginkröfum bresku stjórnariiinar.
Samt eru engar tímasetningar í samkomulaginu
og talið er, að deilur um hvort skilyrði vísinda-
manna fyrir afléttingu bannsins hafi verið uppfyllt
geti dregið hana á langinn um marga mánuði eða ár.
ESB ákvað útflutningsbannið 27. mars sl. þegar
upplýst var í Bretlandi, að hugsanlega væru tengsl
á milli kúariðu og Creutzfeldt-Jakob-sjúkdómsins í
mönnum.
Gremja innan ESB
Samkvæmt samkomulaginu getur þriðja ríki
sótt um það til framkvæmdastjórnar ESB að fá
að flytja inn breskt nautakjöt og verður slík um-
sókn þá afgreidd í samráði við vísindamenn. Þá
er einnig kveðið á um aukin fjárframlög til að
bæta kúabændum að nokkru þann skaða, sem
þeir hafa orðið fyrir.
Mikil gremja er innan Evrópusambandsins
vegna framferðis Breta í kúariðudeilunni og Klaus
Hánsch, forseti Evrópuþingsins, sagði í gær, að
koma yrði í veg fyrir, að það endurtæki sig. Ann-
ars væri hætta á, að önnur ríki færu að leika
sama leikinn. Jean-Luc Dehaene, forsætisráðherra
Belgíu, tók enn dýpra í árinni og sagði, að fram-
vegis ætti að beita refsiaðgerðum gegn ríkjum,
sem höguðu sér svona.
Franskir embættismenn sögðu, að John Major,
forsætisráðherra Bretlands, sem á undir högg að
sækja fyrir Evrópuandstæðingum í breska ílialds-
flokknum, hefði þurft á samningi að halda, sem
hann gæti túlkað sem sigur sinn. Sögðu þeir, að
lyktirnar væru þó enginn sigur fyrir hann og eng-
inn sérstakur ósigur heldur.
Robin Cook, talsmaður Verkamannaflokksins í
utanríkismálum, sagði í gær, að nú væri Ijóst, að
útflutningsbannið stæði enn þegar gengið yrði til
kosninga á næsta ári og jafnvel samflokksmenn
Majors óttast, að ekki sé allt sem sýnist með sig-
ur hans í kúariðudeilunni.
Semja má
um Gólan-
hæðir
Jerúsalem. Reuter.
DAVID Levy, nýskipaður ut-
anríkisráðherra Israels, segist
ekki útiloka málamiðlun í
deilu ísraela og Sýrlendinga
um Gólanhæðir. Kom þetta
fram í viðtali við Levy i gær.
Fréttaskýrendur segja Levy
vera hvað hófsamastan þeirra
er skipa ríkisstjórn Benjamins
Netanyahus, sem tók við völd-
um nú í vikunni. Levy lét fyrst
í ljós í janúar að sér þætti
rétt að hluta Gólan-hæða yrði
skilað gegn því að friður
kæmist á.
í drögum að stjórnarstefnu,
sem gerð voru opinber fyrr í
vikunni, segir að ísraelar
muni halda yfirráðum yfir
Gólanhæðum, sem þeir tóku
í stríði við Sýrlendinga 1967.
Arabaleiðtogar funda
í dag hefst í Kaíró fundur
leiðtoga arabaríkja, þar sem
ræða á hvemig þrýsta megi á
stjórn Netanyahus um að
halda áfram friðarumleitunum
í Mið-Austurlöndum. Komu
utanríksráðherrar ríkjanna
saman til fundar í gær.
Netanyahu kallaði ráðherra
sína á fund í gær, þar sem
rætt var brotthvarf ísraelskra
hermanna frá borginni Hebron
á Vesturbakkanum, svo sem
kveðið er á um í samningi sem
fráfarandi ríkisstjórn gerði á
síðasta ári. Á fundinum voru
engar ákvarðanir teknar.