Morgunblaðið - 22.06.1996, Page 4

Morgunblaðið - 22.06.1996, Page 4
4 LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Hverfisgötu breytt og Hafnarstræti lokað til frambúðar Verulegar breytingar á umferð um miðborgina GATNAMÁLASTJÓRI og borgar- verkfræðingurinn í Reykjavík kynntu í gær fyrirhugaðar breytingar á Hverfisgötu, lokun Hafnarstrætis til frambúðar og breytt fyrirkomulag skiptistöðvar og aksturs Strætis- vagna Reykjavíkur. Vinna við breytingar á Hverfis- götu hefst 23. júní nk., en fram- kvæmdum lýkur fyrri hluta ágúst- mánaðar. Eftir breytingarnar verður í tilraunaskyni í eitt ár leyfður akst- ur strætisvagna og leigubíla í vestur- átt, en öll almenn umferð verður leyfð í austurátt. Auk breytinga á akstursstefnu verða gerðar ýmsar endurbætur til að auka öryggi gang- andi vegfarenda og fegra umhverfið. Torg við Þjóðleikhúsið Vegna framkvæmdanna verður Hverfisgötu lokað framan við Þjóð- leikhúsið og síðar við Vitatorg. Hins vegar verður opið fyrir akstur að þessum stöðum og milli þeirra. Þver- götur að Hverfisgötu verða yfirleitt opnar og hægt er að komast akandi að flestum húsum við götuna, svo íbúar ættu ekki að verða fyrir telj- andi óþægindum vegna lokunarinn- ar. Á Hverfisgötu verður upphækk- uðum og hellulögðum gangbrautum með miðeyjum og tijágróðri komið fyrir við öll gatnamót þar sem ekki verða umferðarljós. Við Þjóðleikhúsið verður lögð áhersla á hæga umferð með þrengingum og steinlögn, ásamt gróðri og lágri lýsingu. Þar verður reynt að laða fram torgmyndun, þó svo akandi umferð fari þar um. í miðeyju torgsins verður komið fyrir stuðlabergi sem ætlað er að mynda samspil við byggingarstíl Þjóðleik- hússins. Hafnarstræti Iokað Hafnarstræti verður lokað til frambúðar fyrir allri umferð milli Pósthússtrætis og Lækjargötu, og hefjast framkvæmdir þar um miðjan júlí. Þessi breyting er meðal annars gerð til þess að strætisvagnar og leigubílar eigi þar greiðari leið. Ráð- ist verður í ýmsar breytingar á svæð- inu milli Hafnarstrætis og Tryggva- götu næst Lækjargötu, en þar verður skiptistöð Strætisvagna Reykjavíkur. Hin nýja skiptistöð mun verða miðstöð þjónustu SVR í miðborginni. Við hönnun svæðisins hefur verið lögð áhersla á þjónustuhlutverk strætisvagnanna og tekur staðsetn- ing vagnanna og frágangur svæðis- ins sérstakt mið af því. Yfirborð svæðisins verður endurnýjað, og m.a. mun hellulögn verða sniðin að þörf- um sjónskertra og hreyfihamlaðra. Breytt leiðakerfi SVR Með tvístefnuakstri um Hverfis- götu verður SVR kleift að sinna þörf- um viðskiptavina sinna betur en ver- ið hefur. Akstursleiðir strætisvagna færast nær verslunum og annarri þjónustu, en með núverandi skipulagi þurfa vagnar að aka Sæbraut til vesturs eftir hádegi og geta því ekki sinnt vegfarendum á svæðinu frá Hlemmi að Lækjartorgi. Umbætur þessar koma til með að valda verulegum breytingum á akstri um miðbæ Reykjavíkur. Algeng akstursleið til austur hefur verið eft- ir Hafnarstræti og upp Hverfisgötu, en við lokun Hafnarstrætis er þess- ari umferð einkum beint út á Geirs- götu og Sæbraut. Ljóst er því að hraður gegnumakstur um Hverfís- götuna mun minnka, ökuhraði lækka og aukin hluti umferðar um götuna verður af hálfu þeirra sem beinlínis eiga þangað erindi. Heildarfjárveit- ingar til þessara framkvæmda nema 78 milljónum króna. Þessi hluti Hafnar- strætis verður lokaður til frambúðar en þar verður skiptistöð SVR Hverfisgötu verður lokað við Þjóðleikhús frá 23. júní og fram í ágúst Hverfisgata verbur ab tvístefnugötu UMFERÐ um miöbæ Reykjavíkur mun breytast verulega með tvístefnuakstri um Hverfisgötu ogjomjn Hafnar strætis Fljótlega verður götunni einnig lokað við Vitastíg. Þvergötur verða yfirleitt opnar og hægt að aka að flestum húsum. ge/rsgata TRYGGVAG. HAFNARSTR? AUSTURSTRÆTI KIRKJUSTR: T Hlemmur fe 5 1 £ CO Hverfa íÁrbæ Safnaðarheimili Árbœjarkirkju, laugardaginn 22. júní kl. 14:00. Vinir vors og blóma munu skemmta en einnig verða á dagskrá ávörp og fyrirspurnir. Dragast ís- lenskir náms- menn aftur úr? ÍSLENSKIR grunnskólanemendur fá ekki nema um 70% af þeirri kennslu sem almennt tíðkast í lönd- um Evrópusambandsins. Þetta get- ur leitt til þess að íslenskir náms- menn dragist aftur úr evrópskum félögum sínum. Þetta kemur fram í grein eftir Jónínu Gissurardóttur félagsfræðing í fréttabréfi VSÍ, Af vettvangi. í greininni segir frá viðamikilli könnun sem gerð var á vegum Evrópusambandsins á skipan skólatíma grunnskólabarna í lönd- um sambandsins og voru Noregur og ísland tekin þar með. Á súluritinu má sjá árlegan kennslustundafjölda 9 ára barna og kemur þar í ljós mikill munur. Þessi aldurshópur íslenskra barna fær ekki nema 554 klukkustunda kennslu á ári og er því í neðsta sæti. Til samanburðar má nefna að í Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi fá grunnskólabörn frá 660 til 712 klukkustunda kennslu á ári. ísland sker sig úr þar sem al- mennir frídagar eru annars vegar. Hérlendis eru þeir taldir tiu en í hinum löndunum yfirleitt á bilinu Vigdís Finnboga- dóttir í við- tali við Veru Fjarstæða að kona geti ekki tekið við af konu í VIÐTALI í nýútkomnu tölu- blaði tímaritsins Veru segir Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, að fráleitt sé að hugsa sér að önnur kona geti ekki fetað í fótspor hennar í forsetaembætti. I viðtalinu segir Vigdís meðal annars að enginn vafi leiki á því að staða kvenna hafi breyst mikið á síðastliðn- um sextán árum. Það sjáist á því að árið 1979 hafi konur einungis verið 5% alþingis- manna, en í dag sé hlutfallið orðið 25,4%. Hún segir að fullkomnu lýðræði verði þó ekki náð fyrr en konur verði jafn margar körlum í stjórn- málum, enda séu þær helm- ingur þjóðfélagsþegna. Um forsetaembættið segir Vigdís að fráleitt sé að ætla að kona geti ekki fetað í fót- spor hennar. „Umræðan um það að nú sé kominn tími til að fá karlmann í embættið fer fyrir btjóstið á mér. Sum- ir halda að þetta sé eitthvert hól um mig og að kona eigi ekki að fara í mín spor - en mér finnst umræðan lúta að því að koma þessu öllu aftur á byijunarreit. Ef við lítum til fimmtíu og tveggja ára lýðveldis og drögum frá sext- án ár þá fáum við þijátíu og sex ár. í sextán ár hefur kona gegnt embættinu en karlar hins vegar í þijátíu og sex ár. Er það ekki undarlegt að nokkrum skuli detta slíkt fjarstæðuhjal í hug að kona geti ekki tekið við starfi af konu?“ Vigdís segir að sér finnist mikið bakslag komið í kven- réttindabaráttuna og að stöðnun ríki í jafnréttismál- um. Hún telur að jafnréttis- baráttan geti ekki borið árangur nema konur fái karla í lið með sér og að nauðsyn sé að kalla líka til karlkyns fulltrúa þegar ræða skal mál- efni kvenna. Vigdís segist ennfremur ætla að vinna áfram að því að bæta stöðu kvenna í heiminum eftir að hún lætur af embætti forseta íslands. Fjöldi árlegra kennslustunda í löndum ESB 600 800 1000 fjórir til sjö. Þar við bætast svo tólf starfsdagar kennara hér á landi en þeir virðast hvergi tíðkast í sam- anburðarlöndunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.