Morgunblaðið - 22.06.1996, Síða 13

Morgunblaðið - 22.06.1996, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996 13 AKUREYRI Mjólkursamlag Kaupfélags Eyfirðinga veitir viðurkenningar Þijátíu ogtveir framleiðendur með úrvalsmjólk ^.J| lk J k. r. ÞRJÁTÍU og tveir mjólkurfram- leiðendur á samlagssvæði Mjólk- ursamlags Kaupfélags Eyfirðinga hlutu viðurkenningu fyrir fram- leiðslu á úrvalsmjólk, en þetta er í fjórtánda sinn sem samlagið veitir slíka viðurkenningu. Forsvarsmenn Mjólkursam- lagsins skilgreina úrvalsmjólk m.a. þannig að gerlainnihald fari aldrei yfir 30 þúsund gerla í milli- litra, að meðaltalsfrumutala sé undir 300 þúsund í millilítra, mjólkin lendi alltaf í 1. flokki við flokkun í hitaþolnum og kulda- kærum gerlum og að aldrei hafi orðið vart fúkkalyfja og/eða ann- arra efna sem rýrt geta gæði mjólkurinnar. Einnig hefur að- koma og umgengni í fjósi og mjólkurhúsi ævinlega verið góð að mati mjólkureftirlitsmanna. Sverrir Sverrisson á Neðri- Vindheimum í Glæsibæjarhreppi hlaut viðurkenningu fyrir fram- leiðslu á úrvalsmjólk níunda árið í röð, en hann ásamt Árna Her- mannssyni á Ytri-Bægisá í Glæsi- bæjarhreppi hafa lagt inn úrvals- mjólk í 12 ár af þeim 14 sem viður- kenningin hefur verið veitt. Sig- urður Jónasson i Efstalandi í Oxnadalshreppi og Félagsbúið á Eyvindarstöðum hafa lagt inn úrvalsmjólk í 11 ár af 14. Þeir sem hlutu viðurkenningu eru: Eiríkur Helgason, Ytra-Gili, Hjörtur Haraldsson, Víðigerði, Ólafur Andri Thorlacius, Óxna- felli, Sveinn Sigmundsson, Vatns- enda, Haukur Berg, Fífilgerði, Árni Sigurjónsson, Leifshúsi, Stefán Tryggvason, Þórisstöðum, Sverrir Sverrisson, Neðri-Vind- heimum, Árni Hermannsson, Ytri- Bægisá, Árni Þórisson, Auð- brekku, Kristján Buhl, Ytri-Reist- ará, Félagsbúið Torfufelli, Fé- lagsbúið Viliingadal, Hermann Jónsson, Barká, Félagsbúið Syðri- Bægisá, Sigurður Jónasson, Efstalandi, Sigurður Gíslason, Steinsstöðum, Þorsteinn Rútsson, Þverá, Aðalsteinn Hreinsson, Auðnum, Kristinn Ásmundsson, Morgunblaðið/Margrét Þóra Höfða, Sökkubúið, Sökku, Stefán K. Jónsson, Hofi, Svana Halldórs- dóttir, Melum, Gunnlaugur Tryggvason, Þorsteinsstöðum, Guðmundur Gunnlaugsson, Göngustöðum, Gunnlaugur Sig- urðsson, Klaufabrekku, Atli Frið- björnsson, Hóli, Sölvi Hjaltason, Hreiðarsstöðum, Hjálmar Her- bertsson, Steindyrum, Þorleifur Karlsson, Hóli, Hafsteinn Pálsson, Miðkoti, og Félagsbúið í Böðvars- Framkvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar hf. Nauðsynlegt að auka sam- starf atvinnuþróunarfélaga BJARNI Kristinsson, fram- kvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar hf., segir nauðsynlegt að endurskipuleggja upplýsinga- streymi og auka samstarf atvinnu- þróunarfélaga í landinu, sem þó eru að hluta til í samkeppni og efla tengsl atvinnuráðgjafa. Hann segir að til þessa hafi samskiptin verið háð því hve mikinn áhuga einstak- lingarnir sem sinna þessum málum hafi, því ekkert heildarskipulag er til að vinna eftir. Þá sé staða hinna ýmsu félaga mjög mismunandi. Bjarni segir jafnframt að þessi vinna sé að hluta til hafin. „Á síðasta ári var töluverðum tíma varið til að kynna hugmyndir okkar um breytingar fyrir fram- kvæmdavaldinu en sem kunnugt er hefur núverandi ríkisstjóm boðað breytingar á þessu skipulagi. Þessi yinna hefur þó engan árangur borið enn. Núverandi staða er þannig að iðnaðarráðuneytið hefur komið á fót kerfi sem gerir að hluta til það sama og atvinnuráðgjafar eru að gera um allt land. Starfstöðin er að sjálfsögðu í Reykjavík en þeir sem eru að huga að nýsköpun landsbyggðinni geta hringt í grænt símanúmer." Bjarni segir að ekkert samband hafi verið haft við starfandi at- vinnuráðgjafa um þessar breyting- ar. Skýringin var sögð sú að at- vinnuráðgjöfin heyri undir annað ráðuneyti og að iðnaðarráðuneytið gæti ekki blandað sér í málefni annarra ráðuneyta. „Eftir stendur að skipulagið er jafn óskilvirkt og áður og engu minni ástæða en áður að taka allt skipulag- ið til endurskoðunar. Með endur- skipulagningu væri hægt að gera allt kerfið mun skilvirkara og betra fyrir sama eða jafnvel minna fé. Það gerir málið ekki betra að nú er minna fé varið í styrki til frumkvöðla og erfiðara að nálgast það, sem er mjög bagalegt fyrir framgang nýrra hug- mynda,“ segir Bjami. Atvinnumál brenna á sveitarstj órnarmönnum Hann segir að atvinnumál brenni að vanda mjög á sveitarstjórnar- mönnum og víða hafi sveitastjórnir haft mikil afskipti af atvinnulífi með beinum eða óbeinum hætti. Fjármörgnun á rekstri atvinnuþró- unarfélags sé því ekkert annað en óbein afskipti af atvinnulífinu og líta má á þá fjármuni sem framlög til atvinnumála. „Það er full þörf á að huga að skipulagi og samþættingu þeirra aðila sem þjóna atvinnulífinu á veg- um sveitarfélagana og hins opin- bera. Meðan þessi þjónusta er á vegum margra aðila er nauðsynlegt að góð samvinna geti átt sér stað milli þessara aðila til að tryggja eðlilega verkaskiptingu og upplýs- ingastreymi.“ Ný stjórn IFE var kjörinn á aðal- fundi félagsins í vikunni og er hún þannig skipuð: Daníel Árnason, Sig- ríður Stefánsdóttir, Rögnvaldur Skíði Friðbjörnsson, Árni K. Bjarnason, Valtýr Sigurbjarnarson, Sigurður Jóhannesson og Hákon Hákonarson. J ónsmessuvaka á Nonnaslóðum JÓNSMESSUVAKA sem Minjasafn- ið á Akureyri og Zontaklúbbur Akur- eyrar standa fyrir verður haldin næstkomandi sunnudagskvöld, 23. júní, og hefst kl. 22. Dagskráin hefst í Minjasafnskirkj- unni þar sem flutt verður erindi um Jónsmessuna. Að því loknu verður boðið upp á gönguferð með leiðsögn um Nonnaslóðir í Innbænum en Zon- taklúbburinn hefur unnið að merk- ingum á þessari gönguleið. Gengið verður frá Minjasafnskirkjunni upp eftir gamla kirkjugarðsstígnum og upp á Höfða. Þar verður staðnæmst við minjastaði og notið mikilfenglegs útsýnis af Höfðanum. Gengið verður niður Búðagil og inn eftir Aðalstræti að safnhúsunum. í lok gönguferðar verða seldar veitingar í Zontahúsi. Gítartónleikar á Listasumari ÞÓRÓLFUR Stefánsson gítarieikari heldur tónleika í Deiglunni annað kvöld, sunnudagskvöldið 23. júní og hefjast þeir kl. 20.30. Á efnisskrá eru verk eftir Alfonso Mundarr, Johann Merz, Piazzola og Jón Ásgeirsson. Þórólfur er fæddur á Sauðárkróki, hann stundaði nám við gítardeild Tónlistarskóla Sigursveins D. Krist- inssonar og fór í framhaidsnám til Stokkhólms. ------» ♦ ♦---- Messur AKUREYRARKIRKJA: Kvöldmessa kl. 21 annað kvöld, sunnudagskvöld, Jónsmessunótt. Ath. breyttan messu- tíma. Einsöngur: Micael Jón Clarke. Mikill almennur söngur. HJÁLPRÆÐISHERINN: Almenn samkoma kl. 20 annað kvöld, sunnu- dagskvöld, bæn kl. 19.30. HVÍTASUNNUKIRKJAN: Sam- koma í umsjá ungs fólks kl. 20.30 í kvöld, laugardagskvöld. Vakninga- samkoma kl. 20 annað kvöld, ræðu- maður Quentin Stewart. KAÞÓLSKA KIRKJAN við Eyrar- landsveg; Messa kl. 18. á laugardag og kl. 11. á sunnudag. KVÍABEKKJARKIRKJA í Ólafs- firði: Messa, sunnudag kl. 11, Jóns- messa skírara. Morgunblaðið/Þórhallur Jónsson Atta manns á slysadeild HARÐUR árekstur varð á Leiru- vegi um miðnætti aðfaranótt föstudags. Tveir fólksbílar skullu saman og voru 8 manns fluttir á slysadeild FSA, 3 úr öðrum bíln- um og 5 úr hinum. Bílarnir voru báðir á austur- leið og ætlaði ökumaður fremri bílsins að snúa við á sama tíma og ökumaður hins bilsins ætlaði að aka framúr. Bílarnir skullu saman af miklu afli og voru báð- ir óökufærir á eftir. Meiðsli fólksins eru ekki talin mjög al- varleg, en það slasaðist m.a. á liöfði, hálsi og baki. ALLAN SOLAR- HRINGINN ;577 4200 48 siina hugmyndabæklingur fyrir gorðinn þinn. Pontuðu ókeypis eintnk! Landslags- arkitektinn leggur línurnar! Okeypis ráðgjíifarþjóiuisla BM»Vailá Björn Jóhannsson landslagsarkitekt aðstoðar þig við að útfæra skemmtilega innkeyrslu, gangstíg, verönd, blómabeð eða annað með vörum frá BM-Vallá og veitir margvísleg góð ráð um lausnir í garðinum. Hringdu í 577 4200 og pantaðu tíma. Grænt númer 800 4200. Hafðu með þér grunnmynd af húsi og lóð í kvarða 1:100 og útlitsteikningu eða góða ljósmynd af húsinu. Netfang: bmvalla.sala@skima.is BM'VALLA Breiðhöfða 3 112 Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.