Morgunblaðið - 22.06.1996, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ1996 15
100% hækkun hluta-
bréfa á tveimur árum
MIKIL hækkun hefur orðið á þing-
vísitölu hlutabréfa hérlendis á síð-
ustu árum. Nemur hækkunin
100% á síðustu tveimur árum.
Hlutabréfavísitalan hækkaði um
rúm 33% fyrstu fimm mánuði
þessa árs eða jafnmikið og allt
árið í fyrra.
Þá er ekki tekið tillit til þeirra
fyrirtækja sem skráð eru á Opna
tilboðsmarkaðnum en gengi
margra þeirra hefur einnig stigið
mjög í verði.
Þetta kemur fram í greiningu á
hlutabréfamarkaðnum, sem Kaup-
þing hf. gefur út. Þar er fullyrt
að hlutabréf hafi óvíða ef nokkurs
staðar í heiminum hækkað al-
mennt jafnmikið og á íslandi á
þessu tímabili.
Kaupþing telur ekki
ástæðu til að óttast
bakslag
Frá áramótum hafa mestar
hækkanir orðið á hlutabréfum í
Marel, Skagstrendingi og Síldar-
vinnslunni af félögum á Verð-
bréfaþingi íslands en á Opna til-
boðsmarkaðnum voru það hluta-
bréf í Hraðfrystihúsi Eskifjarðar,
Tæknivali, Pharmaco og SIF sem
hækkuðu mest. Ef litið er á ein-
stakar atvinnugreinar sést að
hlutabréf í sjávarútvegsfyrirtækj-
um hafa hækkað mest eða um 50%
að meðaltali, olíufélögin koma næst
með 35% og þar á eftir flutninga-
fyrirtæki með tæpa 25% hækkun.
Skammt er í að fyrirtæki birti
milliuppgjör og segir í umsögn
Kaupþings að fróðlegt verði að sjá
útkomuna. „Þá skýrist hvaða félög
standa undir undangengnum
hækkunum og hvaða félög gefi
tilefni til áframhaldandi ábatavon-
ar. Almennt má búast við góðri
afkomu fyrirtækja á yfirstandandi
ári, og á meðan búsældin varir er
ekki ástæða til að óttast almennt
bakslag þrátt fyrir óvenju miklar
hækkanir á undanförnum misser-
um Velta hlutabréfaviðskipta hef-
ur aukist gríðarlega og nýsett lög
um fjármagnstekjuskatt munu enn
efla verslun með hlutabréf. Sú
ráðstöfun eykur stöðugleika mark-
aðarins, dýpkar hann og styrkir,“
segir í umsögninni.
Nýrri framleiðsluvöru Össurar hf. vel tekið erlendis
Góður árangur á
alþjóðlegri stoð-
tækjasýningu
STOÐTÆKJAFYRIRTÆKIÐ Öss-
ur hf. hefur ráðist í víðtæka kynn-
ingu á nýjustu framleiðsluvöru
sinni, Icex, erlendis. Um er að
ræða tækni, sem notuð er við
framleiðslu á gervifótum og þykir
byltingarkennd. Framleiðslan
byggist á flókinni koltrefjatækni
og helstu kostir hennar eru þeir
að með henni tekur smíði gervifót-
ar mun skemmri tíma en áður.
Þá eru gæði smíðinnar meiri en
áður hafa þekkst að sögn forráða-
manna fyrirtækisins.
Fyrirtækið kynnti Icex á alþjóð-
legu stoðtækjasýningunni Inter-
bor, sem haldin var í Noregi í síð-
ustu viku. Um eitt þúsund læknar
og stoðtækjafræðingar sóttu sýn-
inguna og vakti hún gífurlega at-
hygli meðal þeirra að sögn Jóns
Sigurðssonar, forstjóra Ossurar.
Er þetta í fyrsta sinn sem þessi
tækni er sýnd opinberlega en fyr-
irtækið hefur unnið að þróun
hennar í hálft annað ár.
Nýr fótur meðan beðið er
Icex tæknin samanstendur af
koltrefjaefni, sem notað er í gervi-
fætur og tæki, sem notað er við
smíðina. Jón segir að með tækn-
inni taki smíði gervifóta aðeins
einn til einn og hálfan klukkutíma
og því geti sjúklingurinn beðið
eftir fótnum. Með ríkjandi tækni
á Vesturlöndum taki smiðin 8-15
tíma og kosti sjúklinginn margar
heimsóknir til stoðtækjafræðings-
ins. „Við fengum frábærar mót-
tökur á sýningunni og áætlum að
tveir þriðju hlutar sýningargesta
hafi kynnt sér tæknina. Sumir
þeirra sögðu að þetta væri mesta
bylting á sviði stoðtækja í mörg
ár.“
Jón segir að Össuri hf. hafi
þegar borist margar pantanir á
búnaðinum og að næsta skref sé
að kenna væntanlegum kaupend-
um að nota hann. „Við krefjumst
þess að þeir sem kaupa tæknina
sæki námskeið hjá okkur. Við
erum því að undirbúa umfangs-
mikið kennsluverkefni fyrir evr-
ópska kaupendur og hefst það í
ágúst. I því skyni erum við að
koma okkur upp kennsluaðstöðu
í fyrirtæki okkar í Manchester í
Englandi. Annars var sýningin í
Noregi aðeins fyrsti áfanginn að
því marki að kynna tæknina um
allan heim. Næsti áfangi felst í
þátttöku Össurar á stórri stoð-
tækjasýningu, sem haldin verður
í Bandaríkjunum í október. Auk
þess mun fyrirtækið taka þátt í
sýningum í Frakklandi, Spáni og
Sviss á þessu ári.“
Um tvö hundruð manns eru nú
með gervifætur, sem smíðaðir eru
með Icex tækninni og segir Jón að
reynslan af þeim sé alls staðar góð.
Á myndinni sést smíði gervifótar
með Icex-tækninni sýnd í bás Öss-
urar hf. á stoðtækjasýningunni.
Litlar
breyting-
ar á vísi-
tölum
VÍSITALA byggingar-
kostnaðar hefur hækkað um
2,7% síðastliðna tólf mánuði.
Undanfarna þijá mánuði hef-
ur vísitala byggingarkostnað-
ar hækkað um 0,1%, sem
jafngildir 0,4% verðbólgu á
ári.
í frétt frá Hagstofunni
kemur fram að vísitala bygg-
ingarkostnaðar eftir verðlagi
um miðjan júní 1996 reyndist
vera 209,9 stig og hækkar
um 0,05 frá maímánuði. Vísi-
talan gildir fyrir júlí.
Launavísitala miðað við
meðallaun í maí er 147,8 stig,
óbreytt frá fyrri mánuði.
Samsvarandi launavísitala,
sem gildir við útreikning
greiðslumarks fasteignaveðl-
ána er 3230 stig í júlí.
Leiga fyrir íbúðarhúsnæði
og atvinnuhúsnæði, sem sam-
kvæmt samningum fylgir
vísitölu húsnæðiskostnaðar
eða breytingum meðallauna,
hækkar um 0,4% frá og með
1. júlí 1996. Reiknast þessi
hækkun á þá leigu sem er í
júní 1996. Leiga helst þó
óbreytt næstu tvo mánuði,
þ.e. í ágúst og september
1996.
STARCRAFT ARCTICLINE
fellihýsi
FYRIR
ISLENSKAR
AÐSTÆÐUR
Aðalfundur íslenska fjársjóðsins hf.
Innra virði
hækkaði um 57%
á 7 mánuðum
INNRA virði eigna íslenska fjár-
sjóðsins hf. hefur hækkað um 57%
frá stofnun sjóðsins í nóvember
síðastliðnum. Hluthafar eru nú
713 talsins og og nema heildar-
eignir alls 197 milljónum króna.
Sjóðurinn var stofnaður af
Landsbréfum hf. á síðasta ári og
er ætlað að fjárfesta í íslenskum
fyrirtækjum tengdum sjávar-
útvegi og í nýjum, vaxandi at-
vinnugreinum, sem þykja arð-
vænlegar.
Bjartsýni um framtíð íslensk
sjávarútvegs einkenndi skýrslu
stjórnar íslenska fjársjóðsins á
fyrsta aðalfundi hans sem hald-
inn var þann 14. júní s.l. í ræðu
Björns Líndal, stjórnarformanns,
kom fram að öll verðbréfaeign
sjóðsins hefur verið fest í hluta-
bréfum. Þar af eru 71% eignar-
innar fest í fyrirtækjum í sjávar-
útvegi, 13% í fyrirtækjum í sölu
sjávarafurða, 6% í fyrirtækjum í
lyfjaframleiðslu og lyfjainnflutn-
ingi, 5% í iðnfyrirtækjum og 5%
í tölvufyrirtækjum. Samtals
dreifist hlutabréfaeignin á 24
fyrirtæki, þar af eru 12 í sjáv-
arútvegi og 2 í sölu sjávarafurða.
„Mikil framþróun á sér nú stað
í íslenskum sjávarútvegi. Fisk-
vinnsla og -veiðar eru í örri þróun
og starfsemi innan þessara
greina hefur að undanförnu ein-
kennst af hagræðingu, auknum
sóknarfærum og aukinni verð-
mætasköpun. Einnig er mikill
uppgangur og hröð framþróun
hjá iðnfyrirtækjum sem byggja á
hugviti tengdu sjávarútvegi svo
og hjá íslenskum hugbúnaðarfyr-
irtækjum. Þá má nefna útrás ís-
lenskra fyrirtækja á erlendum
vettvangi, jafnt útgerðarfélaga
sem sölusamtaka, og þau víð-
tæku áhrif sem verkefni á þeirra
vegum hafa þegar haft og munu
í framtíðinni hafa á íslensk iðn-
fyrirtæki sem framleiða vörur
fyrir sjávarútveg," sagði Björn í
ræðu sinni.
Stjórn íslenska fjársjóðsins
hefur ákveðið að heimila kaup á
hlutabréfum fyrirtækja sem ekki
hafa skráð hlutab'réf sín á al-
mennum markaði, fyrir allt að
15% af eignum sjóðsins þó að
hámarki 3% í einstöku félagi.
AÐRIR BJ0ÐA EKKIBETUR:
Ryðvörn, stormfestingar, 12 V ísettur rafgeymir og teng-
ing fyrir bfl, blaðfjöðrun, 12" dekk, íslenskt kúlutengi,
öflugur hitari og margt, margt fleira!
Meira en 25 ára reynsla á íslandi
og góður vitnisburður eigenda
sýna best að Camp-let er yfirburða
tjaidvagn fyrir okkar aðstæður.
\s'
jfse*
CÍ5U JÓNSSON ehf
Bíidshöfða 14 112 Reykjavík S. 587 6644
— áreiðanleiki ár eftir ár —