Morgunblaðið - 22.06.1996, Síða 23
Upphafsmynd með fnrmála
UPPHAFSMYNDIN er nánast sjónarhorn „guðs“ af himni, tekið
úr krana eða þyrlu ofar skýjum, af skýjaflákum sem girða fyrir
jörðu. Hvell kirkjuklukka rýfur þögnina og myndin tekur við sér
og skimar eftir glymjandanum í gegnum skýin og til jarðar. Smám
saman kemur í Ijós að lengst þar á jörðu niðri klúkir lítil sveit, af-
girt skriðjöklum og brunasöndum. Myndin þrengist eins og aug-
anu sé sérstaklega beint að stað sem hér eftir er nefndur
Kirkjustaður við sjó. Þaðan berst hringingin hvella.
Formáli sem kemur yfir myndina: „Séra Jón Magnússon lauk
Skálholtsskóla með láði og vígðist anno 1643 að afskekktri sóknar-
kirkju á Vestfjörðum. Hann gekk að eiga ekkju fyrirrennara síns
sem fylgdi brauðinu. Ekkjan var nær þrjátíu árum eldri. Séra Jón
veiktist er frá leið af ókennilegum sjúkdómi og er það uppliaf
kunnustu galdramála íslenskrar sögu.“
síðan íslendingar uppgötvuðu að
hægt er að borða rækjur og humar.
Öldum saman flaut síld upp í fjör-
urnar hringinn í kringum landið, en
fáum datt til hugar að leggja sér
hana til munns.
íslendingar eru trúlega hirðingj-
ar sem koma af steppum Asíu og
hafa aldrei verið sjómenn í eðli sínu
eða kunnað að meðhöndla sjávaraf-
urðir. Árið 1264, þegar við töpum
sjálfstæðinu, er ekki eitt einasta
skip til í landinu. Þau höfðu öll fúnað
undan landsmönnum. Þegar við töp-
uðum sjálfstæðinu vorum við að
gera eins konar EES-samning
þeirra tíma. Konungur tryggði sigl-
ingar hingað. Ef við hefðum ekki
haft vit á að tapa sjálfstæðinu 1264
hefðum við líklega dáið út.“
Hrafn segir að ýmislegt fleira
varðandi íslenska sögu megi skoða í
nýju Ijósi:
„Islendingar lögðu niður þræla-
hald vegna þess að það var of dýrt
fyrir þá. Menn báru ábyrgð á þræl-
um sínum og það var of kostnaðar-
samt. Þess í stað var tekið upp vista-
band með hjúum, vegna þess að
menn báru enga
ábyrgð á hjúunum
og gátu hent þeim
út á gaddinn þegar
þeim sýndist. Is-
lendingar hafa
lengst af átt erfitt
með að stjórna
eigin málum.
Flestar réttarfars-
bætur íslenskar
hafa komið utan að
og yfirleitt verið
þröngvað upp á Is-
lendinga. Það
mætti umskrifa Is-
landssöguna á
mörgum sviðum.
Baldur Her-
mannsson gerði
merkilega tilraun
til þess í sjón-
varpsþáttunum Þjóð í hlekkjum
hugarfarsins. Ég held að þegar
fram líða stundir muni íslenska
þjóðin kunna Baldri þakkir fyrir að
ryðja brautina í hinni nýju sögu-
skoðun.“
Makt myrkranna
Við víkjum nú talinu að Myrkra-
höfðingjanum, kvikmyndahandriti
eftir Hrafn og Þórarin Eldjárn, en
þetta er fyrsta verkið sem þeir
vinna saman síðan á árum Utvarps
Matthildar:
„Eg fékk hugmyndina að verkinu
í menntaskóla, þegar við vorum lát-
in lesa brot úr texta Píslarsögu Jóns
Magnússonar. Það var eitthvað í
þessum texta sem orkaði mjög
sterkt og „göldrótt“ á mig, eitthvað
sem ég hafði aldrei lesið í öðrum
texta og ég var að velta þeim hugar-
heimi, sem textinn var sprottinn úr,
fyrir mér allan menntaskólann. Þeg-
ar ég var kominn í háskóla í Stokk-
hólmi gerði ég tilraun til að skrifa
leikrit upp úr þessum texta. En það
varð svo reimt í íbúðinni minni á
meðan á þessum skrifum stóð að ég
varð hreinlega að gefast upp. Ég
veit ekki hvort það var andi Jóns
eða eitthvað sem kom innan úr sjálf-
um mér. Ég lagði verkið á hilluna.
Svo liðu nokkur ár og ég reyndi
aftur að skrifa skáldsögu upp úr
Píslarsögunni og gerði margar at-
rennur en var aldrei sáttur við út-
komuna. Það var ekki fyrr en ég fór
að hugsa verkið sem kvikmynd að
hugmyndin gekk upp. En þetta hef-
ur verið lengi á leiðinni og í rauninni
hef ég verið að skrifa þetta verk í
aldarfjórðung og hef líklega aldrei
gjörunnið verk eins nákvæmlega og
þetta. Ég fékk svo Þórarin Eldjárn
til liðs við mig, sem er manna
hagastur á íslensku og þekkir vel til
tungutaksins á þessum tíma og
handritið liggur nú fyrir.“
/ viðjum hugmynda
gg hræáslu
„Draumurinn er að hefja tökur í
febrúar, þegar veðravítin eru hvað
mest á Islandi, til að ná upp þeim
aðstæðum sem menn bjuggu við á
þessum tíma. En
það var ekki bara
veðurfarið sem setti
mönnum skorður og
rak þá á vonarvöl
heldur einnig hugar-
farið og sú hug-
myndafræði, sem
heltók: þetta þjóðfé-
lag. Á þeim tíma var
það hið mesta guð-
last að efast um til-
vist djöfulsins. Guð
var dómarinn en
Djöfullinn var í raun
böðullinn, sem fram-
kvæmdi refsidóma
og hafði völdin. Guð
almáttugur lét sig
litlu skipta örlög
mannanna, nema
stöku sinnum til að
skakka leikinn og þá var það kallað
kraftaverk.
Það sem dregur mig að Píslarsög-
unni er að í þessari litlu kirkjusókn
á Vestfjörðum birtist í hnotskurn
það sem hefur verið að gerast í
heiminum á öllum tímum og er að
gerast enn í dag, þar sem hug-
myndafræði verður svo sterk að hún
tekur yfir alla mannlega skynsemi
og étur upp það góða í fólki. Hug-
myndin verður í sjálfu sér eins kon-
ar lífvera sem tekur völdin. Og inn 1
þennan heim fléttast saga Þuríðar,
18 ára stúlku, sem upplifír það að
horfa á föður sinn og bróður
brennda á báli fyrir galdra og má
ekki undan líta. Síðan beinist grun-
urinn að henni sjálfri og verkið fjall-
ar um baráttu hennar við áburðinn.
Þuríður þurfti að sanna að hún væri
ekki norn. Sönnunarbyrðinni var
snúið við eins og gerist stundum í
fjölmiðlum í dag. Fjölmiðlar bera
gjarnan eitthvað á menn og ef þeir
standa ekki upp reglulega til að af-
sanna áburðinn teljast þeir sekir.“
Það var ekki
bara veðurfarið
sem setti mönn-
um skorður og
rak þá á vonar-
völ heldur
einnig hugarfar-
ið og sú hug-
myndafræði,
sem heltók
þetta þjóðfélag
MYNDHEIMUR Odd Nerdrum hefur verið kveikjan að
umbúðum myndarinnar. Áferðin er hugsuð i llkum stíl
og þetta málverk hans.
Stúr ug fíókin
framk væmd
Hrafn segir að þótt hugur sinn
standi til að hefja tökur á myndinni í
febrúar, sé með öllu óvíst hvort
myndin verði nokkru sinni gerð. Til
þess skorti lágmarks fjárframlag
frá íslandi.
„Menn átta sig yfirleitt ekki á því
hversu gríðarlegt fyrirtæki það er
að gera eina kvikmynd. Ef við tök-
um sem dæmi upphafsatriði þessar-
ar myndar, tekið úr þyrlu skýjum
ofar. Hugsunin er sú að Guð er ofar
skýjum og heyrir klukknahringingu
úr þessari afskekktu sveit og hið al-
sjáandi auga kvikmyndarinnar
bregst við uppi á himnum og kíkir í
gegnum skýjaflákana. Við sjáum lít-
inn söfnuð tínast til kirkju og síðan
ungt fólk sem er að slíta upp kjarr í
auðninni og þarf síðan að komast
yfir íshrönglað jökulfljót, fleytandi
sér á hrísknippum. Þetta eru Þuríð-
ur og unnusti hennar og í sama
mund ríður sýslumaður framhjá
með alla fylgdarmenn sína og sund-
ríður ána. Þú getur rétt ímyndað
þér hvað þessi litla sena, með hest-
um, fólki, búningum og að láta þetta
gerast þannig að áhorfandinn trúi
því, er í raun og veru stór og flókin
framkvæmd. Og þetta skot tekur
kannski ekki nema tvær til þrjár
mínútur í byrjun myndarinnar.
Það er lágmark að gera svona
mynd fyrir 150 milljónir. Ég hef
fengið vilyrði frá kvikmyndasjóði
upp á '20 milljónir, og þá era 130
milljónir eftir sem mér er ætlað að
sækja til útlanda. Vandinn er sá, að
þessar erlendu stofnanir, sem gætu
fjármagnað þetta, taka ekki mark á
umsóknum nema að lágmarks fram-
lag frá heimalandinu sé um 25 pró-
sent af heildarapphæðinni og trú-
lega verður gerð krafa um 50 pró-
sent þegar frá líður.
Það verður sífellt erfiðara fyrir
okkur Islendinga að sækja til þess-
ara stofnana því þær eru farnar að
líta svo á að við Islendingar höfum
gengið á lagið með að stilla upp
verkefnum með nánast engu fjár-
magni að heiman. Aukinn stuðning-
ur hér heima er því nauðsynlegur,
en til þess þarf auðvitað að koma tií
ný pólitísk hugsun gagnvart kvik-
myndalistinni. Ef ég næ ekki auknu
framlagi héðan að heiman til þessar-
ar myndar er ekki um annað að
ræða en að leggja árar í bát, þrátt
fyrir að ég hafi fengið í lið með mér
frábært listafólk frá ýmsum löndum
Evrópu, þar á meðal norska málar-
ann Odd Nerdrum og spænsku
leikkonuna Rosana Pastor."
Hrafn hefur á orði að úthafsrækj-
an bragðist vel, en öndin hefði mátt
vera stökkari. Yfirþjónninn heldur
því hins vegar fram að þessi ákveðni
andaréttur, sem við pöntuðum, geri
ekki ráð fyrir stökkri önd. Um þetta
eiga þeir Hrafn í orðaskiptum um
stund þar sem „monsúmdíum glúda-
ment“ ber á góma og lætur undirrit-
aður lítið fyrir sér fara á meðan,
enda gjörsneyddur þekkingu á um-
ræðuefninu.
í eftirrétt pantar Hrafn djúp-
steikta banana með hunangi og ís,
sem hann segir „eins kínverskt og
það geti orðið". Og við vendum okk-
ar kvæði í kross og fórum að tala um
Listahátíð og rifjum upp þegar Le-
onard Choen og Bob Dylan komu til
landsins. En það er auðvitað allt
önnur saga.
Verslunin Veiðimaðurinn
er nú full af glæsilegum
veiðivörum úr nýrri
vörulínu Abu Garcia.
Þessar nýju vörur gefa
góða von um veiði;
nýjar tegundir af veiði-
i hjólum, veiðistöngum
og spúnum. Komdu við
og skoðaðu úrvalið og fáðu þér eintak
af Napp & Nytt, nýjurn vörulista
Abu Garcia.
1*
OPII) LAUGARDAG TIL KI.. 17:00 OG SUNNliDAG TIL KI.. 16:00
FLEYTI-
FUIA
VEKSLUN
- af veiðivörum
VERSLUNIN VEIÐIMAÐURINN
HAFNARSTRÆ TI 5
SÍMAR 551 676Q & 551 4BDO