Morgunblaðið - 22.06.1996, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ1996 27
AÐSEIMDAR GREINAR • FORSETAKJÖR
Einínguum
annan forseta
ÞÁ ER þjóðhátíðin af-
staðin og næsta mál á
dagskrá eru forseta-
kosningar. Framboð
fyrrum foringja Al-
þýðubandalagsins
nýtur mikils fylgis og
hefur farið víða í orðs-
ins fyllstu merkingu
eins og þau vita er
horft hafa á „fréttir"
af því hjá vinum hans
á frjálsasta fjölmiðli
landsins.
Keppinautar þessa
fjölkunnuga forseta-
efnis eiga mjög undir
högg að sækja. Alveg
er sama hvernig kjósendur eru
minntir á staðreyndir, allt ber að
einum brunni. Upplýsingar um
óljósar trúarskoðanir og ósæmi-
legar embættisfærslur hafa komið
fram, en allt kemur fyrir ekki.
Opinber, oftast óvinsæl, afskipti
af stjórnmálum eiga nú engu að
skipta, og eigi að heldur þótt vitað
sé að ýmsar embættisfærslur og
framferði Ólafs hafi þótt jaðra við
landslög að því er fram kemur í
fjölmiðlum.
Ólafur með afslætti
Þar sem nú hallar undan fæti
hjá Ólafi í skoðanakönnunum hef-
ur hann gert þjóðinni afsláttartil-
boð. Hann ætlar bara að sitja í
átta ár ef þjóðin veitir honum
brautargengi. Þetta er dæmigert
fyrir hinn sjóaða atvinnumann úr
stjórnmálunum. Tilboðið um tvö
kjörtímabil minnir óneitanlega á
auglýsingar dugandi kaupmanna
í bænum. Tveir fyrir einn!
Langar í meira
Þar sem Davíð Oddsson gaf
ekki kost á sér ákvað Ólafur að
slá til, enda hefur Davíð hlotnast
í stjórnmálum flest það er Ólafur
vildi en fékk ekki. Hinn landlausi
konungur íslenskra sósíalista, sem
nýlega varð að láta af hendi stól
og staf til flokkssystur sinnar get-
ur ekki hætt.
Hver kjósandi virðist hafa sína
eigin stefnuskrá og skilgreiningu
á því hvað forseti Islands eigi að
gera: Forsetinn á að taka til í Sjálf-
stæðisflokknum, stoppa leiðinda-
frumvörp í þinginu, rækta landið,
skemmta, vera þjóðlegur með
fornu sniði, skamma ríkisstjórnina
og helst stýra henni, selja saltfisk
og ull og vera öðrum alþýðlegri.
Enn sem komið er er það veruleg-
ur minnihluti þjóðarinnar sem læt-
ur sér duga að óska þess að forset-
inn sé bara til friðs.
Að alvarlegri hlutum
íslendingar guma af því að eiga
elsta þjóðþing í heimi og taka það
sem dæmi um að þeir séu öðrum
þjóðum fremri um alla skynsemi
og stjórnvisku. Það er kaldhæðnis-
legt í þessu ljósi að
þjóðin skuli ætla að
veita brautargengi til
æðstu stöðu manni
sem hefur allan sinn
feril barist fyrir og
innleitt pólitísk gildi
sem 80-90% þjóðar-
innar hafa gersam-
lega hafnað í fjöl-
mörgum þingkosning-
um.
Pétur Kr. Hafstein
er einn ágætra fram-
bjóðenda um að geta
veitt Ólafi verðuga
keppni en hefur ýmis-
legt skrýtið á móti sér
í sinni baráttu. M.a. stjórnendur
Stöðvar 2. Pétur hefur vart fengið
þann hljómgrunn sem honum ber
þó allir viti af reynslu af störfum
hans að hann gætir fyllstu sæmd-
ar í embættisfærslum og að hann
mun, ef kjörinn, rækja skyldur
sínar í samræmi við íslensk lög
og stjórnarskrá. Það er harmleikur
að honum sé talið til lasts að vera
fullkomlega heiðvirður maður sem
hefur án undantekninga látið eitt
yfir alla ganga. Sá hugsanagangur
á einfaldlega ekki hljómgrunn.
Menn vilja læti og þekkja sinn
fulltrúa langt að.
„Við þekkjum hann“
Þannig hljómar skýring margra
fylgjenda Ólafs Grímssonar á því
hversvegna þeir hyggjast greiða
honum atkvæði sitt. Áður en
lengra er haldið er rétt að þessir
kjósendur svari nokkrum spurn-
ingum fyrir 60 prósentin sem vija
ekki fá hann fyrir forseta:
Búast menn við því að hann
muni makka öðruvísi sem forseti
en sem stjórnmálamaður? Ef það
er hald manna, á hveiju er það
byggt? Er stór hluti þjóðarinnar
svo ábyrgðarlaus að óska sér þeirr-
ar Glæsivallahátíðar sem er líklegt
að fylgi nái Ólafur kjöri?
Ætla þúsundir er átt hafa í
höggi við Alþýðubandalagið og
aðra vinstri menn út af vestrænni
samvinnu, skattheimtu, skólamál-
um, fjölmiðlafrelsi, efnahagspóli-
tík og mörgu fleiru að heiðra sinn
skæðasta andstæðing með því að
sæma hann æðstu virðingarstöðu
ríkisins? Hvar er það fólk sem
mest kveinkaði sér undan embætt-
isfærslum Ólafs er hann gegndi
stöðu fjármálaráðherra? Er
skattagleðin gleymd? Um þetta
snýst andstaðan við Ólaf Gríms-
son.
Hér eru stjórnmálaflokkar og
flokkadrættir til nefndir af þeirri
ástæðu að með því að bjóða sig
fram er fyrrverandi formaður Al-
þýðubandalagsins að gera kosning-
una pólitíska. Hann getur ekki vik-
ist undan því. Kjósendur Ólafs taka
afstöðu til framboðs hans á pólit-
ískum forsendum sama hvar í
Guðmundur
Kjartansson.
blabib
- kjarni málsins!
flokki þeir kunna að standa. Hver
með sínu lagi eins og áður er skýrt.
Mest þó af því að menn halda að
með því að kjósa Ólaf fyrir forseta
séu þeir að sýna forystu stjóm-
málaflokkanna, einkanlega Sjálf-
stæðisflokksins, í tvo heimana.
Þetta er rangt og mun engu skila.
Margir kjósendur virðast gera
sér vonir um breytingar á æðstu
stjórn landsins nái Ölafur kjöri.
Skýringin á þessu hlýtur að liggja
í ferli hans sem stjórnmálamanns.
Þessi skoðun er á hrapallegum
misskilningi byggð. Stjórnkerfíð er
þannig upp byggt að forseti hvorki
getur né má hafa nokkuð um póli-
tísk þrætumál að segja. Það væri
brot á þeim lögum og venjum er
gilda um embættið ef forseti færi
að beita sér með ákveðnum hætti
í dægurmálum í pólitíkinni. Það er
einmitt þama sem mest ber á milli
fylgismanna Ólafs og andstæðinga
hans. Margir andstæðingar hans
álíta að hann muni hafa sig í
frammi með ýmsum þeim hætti er
ekki samrýmist hlutverki forsetans.
Loforð hans um eitthvað annað eru
einfaldlega ekki trúverðug.
Menn verða að horfast í augu
við þá staðreynd að embætti for-
seta íslands er ekki vettvangur
fyrir uppstokkun á flokkaskipan
eða stjórnkerfi. Þau mál eiga sér
vettvang í þingkosningum. Það
kann hinsvegar að skipast svo við
ófyrirséðar aðstæður að forseti
þurfi á almennum stuðningi þjóð-
arinnar að halda vegna framferðis
einstaklinga eða flokka á Alþingi
eða í ríkisstjórn. Hveijum á þá að
treysta?
Pétur eða Ólaf?
Skammur tími er til stefnu. Hér
skal skorað á alla_ þá sem vilja
sátt um forseta íslands næstu
kjörtímabil að horfast í augu við
staðreyndir.
Þar sem Guðrún Pétursdóttir
hefur tekið þá afdrifaríku ákvörð-
un að gefa ekki frekar kost á sér
mun kjörfylgi um 60 - 70% kjós-
enda dreifast á þijá álitlega fram-
bjóðendur. Afstaða okkar mótast
af væntingum til embættisins og
þeirra hugðarefna sem frambjóð-
endurnir hafa mest rætt. Það
breytir því ekki að allir ábyrgir
einstaklingar verða að axla sína
eigin ábyrgð og horfast í augu við
skyldur forsetans með sama hætti
og undangengnir forsetar hafa
sjálfir gert. Skyldur og starfssvið
forseta okkar eru rækilega skil-
greind í lögum. Frávik frá þeim
reglum verða ekki þoluð.
Pétur Kr. Hafstein uppfyllir hin
ströngu hæfnisskilyrði öðrum bet-
ur. Hann hefur verið afar farsæll
og virtur sem embættismaður fyr-
ir utan að vera yfir allar deilur
hafinn. Það staðfestir seta hans í
Hæstarétti. Hann yfirgefur stöðu
sem er ein hin valdamesta og mik-
ilvægasta í nokkru lýðræðisríki til
að gefa kost á sér til harðvítugrar
baráttu um leiðtogastöðu, sem er
allt annars eðlis. Það gerir hann
að áeggjan fólks sem þekkir hann
sem traustan og heiðvirðan dreng-
skaparmann. Hann er að öðrum
ólöstuðum einn besti kostur sem
okkur hefur boðist til þessa emb-
ættis. Framboð hans er þeim mun
trúverðugra að hann hefur vegna
sinnar háu stöðu sem fyrir er,
ekki sérstaka ástæðu til að sækj-
ast eftir öðrum vegtyllum. Fram-
boð hans sýnir því bæði þjóðholl-
ustu og þegnskap.
GUÐMUNDUR KJARTANSSON.
Höfundur er
rekstrarhagfræðingur.
Þdkkum landsmönnum frábæra
196 ItimÍtUf&t í koði
Þið sem fenguð ykkur Græna hirðinn eruð beðin um að skila inn þátttökumiðanum
sem honum fylgdi. Þar með eigið þið kost á að hreppa spennandi ÆVINTÝRAFERÐ.
Alls hljóta 150 manns vinninga af einhverju tagi. ( boöi eru jöklaferöir, bátsferðir,
hestaferðir, bændagistingar og ýmislegt fleira.
Dregið verður úr innsendum þátttökumiðum 1. júlí 1996.
1itohue4i(0etóllMM
Umhverfisverðlaun Græna hirðisins verða veitt því félagi, fyrirtæki, sveitarfélagi eða
hverjum þeim sem þykir hafa staðið sig sérstaklega vel í hreinsunarátakinu, eða við
verndun umhverfisins. Við biðjum því landsmenn að tilnefna þann eða þá
aðila sem þeir telja að hafi staðið sig einkar vel varðandi umhverfismál.
Tilnefningar þurfa að hafa borist fyrir 1. september 1996 til Ungmennafélags Islands,
Fellsmúla 26, 108 Reykjavík. Verðlaunin verða veitt í september.
l^okk ýe$n Míti
Umhverfistónleikar með hljómsveitinni
Endurvinnslunni verða haldnir á Ráðhústorgi
á Akureyri þann 29. júní kl. 16:00.
UMHVERFIÐ
í OKKAR HÖNDUM
UNGMENNAFÉLAG ÍSLANDS
UMHVERFISSJÓÐUR
VERSLUNARINNAR