Morgunblaðið - 22.06.1996, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
f ée GFTAim M , ftrtrrozÐ se/w< 01996 Tribune Media Services, Inc. All Riflhts Reserved.
/ £Í5 L/ER£>! / $ fél£SS)
_ GO _
?
c o T -7_( ofoT ífofo) _
Grettir
Ferdinand
ÉG ER komin til baka
I THINK I
MU5T MAVE
BEEN A
PI5APPÖINTMENT
TOTHEM..
Eg hlýt að hafa En mér er alveg sama,
valdið þeim von- þetta er mitt hið eina og
brig'ðum. sanna heimili.
BREF
TTL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reylqavlk • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Hetjulíf
á Akureyri
Frá Jóni K. Guðbergssyni:
í VETUR risu upp á Aiþingi nokkr-
ar konur og fluttu frumvarp um að
lækkaður yrði lögaldur til áfengis-
kaupa úr 20 árum í 18 ár. Fáviska
þeirra kom m.a. fram í því að í grein-
argerð með frumvarpinu var því
haidið fram að lögaldurinn í Banda-
ríkjunum væri 18 ár en þar er hann
ári hærri en hér eða 21 ár. Alþingis-
menn, sem betur vissu og höfðu
meiri þekkingu á málunum, björguðu
sóma Alþingis.
Garpaskapur birtist í ýmsum
myndum. Nú hefur virðulegur skóla-
meistari á Akureyri hent þetta þjóð-
þrifamál á lofti og boðar fagnaðarer-
indi sitt í skólaslitaræðu. I raun er
það í sjáifu sér nokkur hetjuskapur.
Eg man ekki betur en úr þeim sama
ræðustóli hafi einn glæsilegasti for-
veri hans, Þórarinn Björnsson, lesið
áfengissölum pistilinn og kallað vín-
veitingahúsin drykkjuskóla.
Ekki hvarflar að mér að skóla-
meistari kunni ekki skil á þeim efn-
um sem hann ræðir við skólaslit.
Hann hlýtur til dæmis að vita að í
ýmsum ríkjum vestanhafs gerðu
menn tilraunir með lækkun lögald-
urs til áfengiskaupa. Röksemdirnar
voru þær sömu og í ræðu meistar-
ans. En afleiðingarnar urðu skelfi-
legar. Banaslysum á ungu fólki
fjölgaði gífurlega, jafnvel meira en
um helming í sumum ríkjunum. Og
Bandaríkjamenn fóru að fikra sig
upp á við. Nú er svo komið - og
hefur verið frá því á tímum Reagans
- að lögaldur til áfengiskaupa er
21 ár um gjörvöll Bandaríkin. Og
banaslysum á táningum og fólki
rúmlega tvítugu hefur síðan fækkað
svo að marktækt er. Það þarf ótrú-
legan hetjuskap, ef menn þekkja
þessa sögu Bandaríkjamanna, til að
leggja til að við önum út í sams
konar ævintýri. Það er hægt að læra
af reynslu annarra.
Þá ætti meistaranum að vera
kunnugt um að rannsóknir sýna að
því lægi sem lögaldur til áfengis-
neysiu er þeim mun yngri byrja
unglingar að drekka. Slíkt ætti að
vera skiljanlegt öllum sem með ungl-
ingum starfa. Tvítugur maður út-
vegar yngri vinum sínum áfengi. Það
gerir 18 ára ungiingur líka - en
vinir hans eru bara yngri en hins.
Okkur þykir nóg um að unglingar
hefji drykkju nýfermdir. En víða í
Evrópu byija þeir enn yngri.
Svo mikill er hetjuskapurinn að
áfengiskaupaaldur skal miðast við
að fólk sé í miðju menntaskólanámi.
Meistaranum verður sjálfsagt ekki
skotaskuld úr því að koma í veg
fyrir að 18 ára unglingar kaupi
áfengi fyrir 17 ára bekkjarsystkini
sín.
Skólameistarinn hefur áhyggjur
af að yrði táningur virðingamaður í
þjóðfélaginu mætti hann ekki skála
í áfengi við erlenda gesti. Auðvitað
veit hann að í íjölda ríkja og sumum
allmiklu þekktari en ísland er veita
ríkisleiðtogar ekki áfengi. Það hefur
og borið við hérlendis. Veisla
Tryggva Þórhallssonar á Þingvöllum
1930 hefur lengi verið í minnum
höfð, hans minnst með virðingu og
eitt besta skáld okkar á ofanverðri
þessari öld. Guðmundur Ingi, kveðið
um hana gott kvæði. Þá hafa þeir
menn setið í forsetastóli á Alþingi
sem aldrei skáluðu í áfengi, að
ógleymdum ágætum ráðherrum. Svo
er líka til óáfengt kampavín - og
eins og Jón Prímus sagði: „Vatn er
gott“.
Meistarinn hýtur að vita að hörð-
ustu baráttumenn fyrir sem lægstum
lögaldri til áfengiskaupa eru áfengis-
framleiðendur og áfengissalar. Og
ég geri ráð fyrir að hann viti hvers
vegna vegna það er. Það eitt ætti
að nægja mönnum til að hafa allan
varann á í þessum efnum.
En garpar sjást ekki fyrir. Þeir
bregða sér hvorki við sár né bana
(sinn eða annarra). Þorgeir karlinn
Hávarsson lét sig hafa það að hanga
á hvannnjóla einum í fuglabjargi
fremur en hrópa á hjálp. Hann hafði
líka hjarta hart sem fóarn og skorti
hvorki kjark né áræði. Hitt er svo
annað mál hvort þarf kannski enn
meiri hetjuskap til að hverfa í bland
við tröllin inni í svörtu bjargi þeirra
sem leitast við að raka saman fé á
áfengissölu hvað sem það kann að
kosta einstaklinga og þjóðir.
JÓN K. GUÐBERGSSON,
Máshólum 6, Reykjavík.
Arnaðaróskir
Frá Margréti M. Ragnars:
ÞAÐ ER ánægjulegt að Barnaspít-
ali Hringsins hefur nú komið í notk-
un íbúð sem hann erfði eftir Eiríku
Friðriksdóttir. Eirika átti sér draum,
sem varð að veruleika 13. júní sl.
Sá draumur var að bæta aðstöðu
foreldra sjúkra barna utan af landi.
Þeir sem þekkja það af eigin raun
að vera með sjúkt barn og vera á
vergangi á sama tíma með fjölskyldu
sína hljóta að fagna því að þessi
aðstaða sé nú fyrir hendi í Reykja-
vík. Hugmyndin að þessari notkun
á íbúðinni var kveikt hjá Eiriku eft-
ir stofnfund Neistans, styrktarfé-
lags hjartveikra barna, fyrir rúmu
ári. Þar var saman kominn fjöldinn
allur af foreldrum sem þekkja það
af eigin raun að fjölskyldan sé
sundruð meðan á veikindum stend-
ur. Það er okkur gleðiefni að nú sé
hugmyndin orðin að veruleika. Það
var okkur í félaginu ekki síður
ánægjuefni að fá tækifæri til að
aðstoða Barnaspítalann, en Neistinn
tók að sér að leita til fyrirtækja til
að fá gefins allt það sem gerir íbúð
að heimili og viljum við nota tæki-
færið og þakka öllum þeim aðilum
sem styrktu málefnið. Við í Neistan-
um vonum að þetta sé aðeins upp-
hafið að bættri aðstöðu foreldra
sjúkra barna og viljum óska Barna-
spítala Hringsins til hamingju.
fh. stjórnar Neistans.
MARGRÉT M. RAGNARS,
varaformaður Neistans.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.