Morgunblaðið - 22.06.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 22.06.1996, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ BLAD 1996 Gamlir félagar hittast Reuter ENGLENDINGAR mæta Spánverjum í 8-liða úrslitum á Wembley-leikvanginum í London í dag kl. 14. Eftir æf- ingu spænska landsliðsins á Wembley í gær hlttust gamllr félagar, Andoni Zubizarreta, markvörður Spán- verja og Gary Lineker, fyrrum landsliðsmaður Englendinga. Þelr léku saman á sínum tíma með Barcelona og þekkjast því vel. Zubizarreta spilar í dag í 110. sinn með landsliðinu og er leikjahæstur allra í Evrópukeppninni. KNATTSPYRNA Portúgalir fá rúmar 7 millj. komist þeir í úrslit PORTÚGALIR, sem mæta Tékkum í 8-liða úrslitum Evi'úpumótsins á morgxm fengu 18 þúsund pund á mann í bónus fyrir að komast í 8-liða úrslitin. Ef þeir ná að komast í undanúrslit fá þeir 36 þúsund pund og ef þeir komast i sjálfan úrslitaleikinn fær hver leikmaður 72 þúsund pund, eða 7,5 miiþ'ónir íslenskar krónur. Tékkarfá konurnar í heimsókn TÉKKAR fá einnig bónus ef þeir komast í undan- úrslit keppninnar. Ekki peninga eins og Portú- galir, heldur fá þeir eiginkonur og unnustur í heim- sókn á Preston-hótelið þar sem liðið býr. Baia aðeins fengið á sig eitt mark VITOR Baia, landsliðsmarkvörður Portúgala sem nú hefur gengið til liðs við Barcelona, hefur að- eins fengið á sig eitt mark í keppninni til þessa. Síðasta keppnistimabil setti hann portúgalskt met, héit markinu hreinu hjá Porto í 1.192 mínútur, sem er rúmlega 13 leikir. George Graham hælir Portúgölum GEORGE Graham, fyrrum þjálfari Arsenal, segir að Portúgalir hafi sýnt bestu knattspyi'nuna í keppninni til þessa. „Portúgal fær þann heiður að hafa sýnt fallegustu knattspyrnuna í keppninni og skemmt áhorfendum best,“ sagði Graham. „Stríð" á 10 þúsund heimilum ÞAÐ mun væntanlega brjótast út „stríð“ á 10 þús- und heimilum í Englandi í dag meðan á leik Spán- verja og Englendinga stendur. En það eru einmitt 10 þúsund Englendingar sem eru í sambúð með Spánveijum. Frakkar taplausir 26 leiki í röð MARCEL Desailly, leikmaður Frakka, er bjartsýnn og segir að liðið sé ungt og gott og til alls líklegt. „Það er leiðinlegt fyrir Cantona og Ginola að vera ekki með, en það er þjálfarinn sem ræður liðinu og við leikmennirnir erum orðnir leiðir á að ræða um hvort þessir leikmenn hafi átt að vera með eða ekki,“ sagði Desailly. Franska landsliðið hefur ekki tapað síðustu 26 leikjum sínum. „ Við erum með lið sem getur farið alla leið,“ bætti Desailly við. „Vona að 1:0 dugi“ EINN stuðningsmaður enska knattspyrnulandsliðsins, John Hudson, kráareigandi í austurhluta London, vonast eftir sigri sinna manna í dag gegn Spánveijum, en jafn- framt vonast hann til þess að enska liðið geri ekki mörg mörk og 1:0 sigur nægi. Að minnsta kosti hugsar hann til þess með hryllingi skori liðið fjögur mörk eins og það gerði á móti Hollendingum i riðla- keppninni. Ástæðan er sú að hann auglýsti í dagblaði fyrir leikinn gegn Hollandi að þjá sér væru allir drykkir án end- urgjalds fyrstu þrjár minút- urnar eftir að enska liðið skoraði mark. Lét hans þess jafnframt getið að tilboðið gilti svo lengi sem enska liðið væri með í keppninni. Gegn Hollendingum skoruðu heimamenn þijú mörk á fimmtán mínútna kafla. Það olli miklum atgangi á kránni þjá herra Hudson og gaf hann um 200 drykki af ýmsum gerðumog stærðum á þessum kafla. „Ég gleðst að sjálf- sögðu yfir velgengni enska liðsins, en af fenginni reynslu verð ég að vona að 1:0 muni nægja gegn Spáni,“ sagði Hudson og hafði vart náð átt- um eftir hamaganginn á litlu kránni sinni á meðan siðari hálfleikur gegn Hollending- um var leikinn. HANDKNATTLEIKUR Sigurður semur við GWD Minden Sigurður Bjarnason, landsliðsmaður í handknattleik úr Stjörnunni, er á leið til Þýskalands þar sem hann mun leika með 1. deildarliðinu GWD Minden, sem hét áður Dankersen. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru forsvars- menn þýska félagsins væntanlegir til landsins á mánudaginn til að ganga frá tveggja ára samningi við Sigurð og kaupa upp samning hans við Stjörnuna. GWD Minden rétt slapp við fall úr Bundesligunni sl. vetur og hefur í hyggju að styrkja liðið fyrir komandi keppnis- tímabil. í dag skrifar Frakkinn Stépane Stoecklin undir samning við félagið, en hann var einn besti leikmaður Frakka er þeir urðu heimsmeistarar hér á landi í fyrra. Fjórir íslenskir leikmenn hafa leikið með Dankersen; Axel Axelsson, Ólafur H. Jónsson, Jón Pétur Jónsson og Páll Ólafsson. Sigurður Bjarnason ætti að vera öllum hnútum kunnugur í þýska handboltanum því hann lék tvö tímabil með þýska liðinu Grosswallstadt, 1993 og 1994. SIGURÐUR Bjarnason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.