Morgunblaðið - 25.06.1996, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.06.1996, Blaðsíða 1
B L A Ð A L L R A LANDSMANNA porgíimMaíiiiíi 1996 Sigurður ekki með Örebro SIGURÐUR Jónsson lék ekki með Orebro í sigurleik, 3:1, gegn Keflvíkingum í Intertoto-keppninni á sunnudaginn. Hann meiddist í leik gegn Djurgárden í vik- unni sem leið, fékk högg á ökkla, og verður frá að minnsta kosti viku enn. Sig- urður var fremur súr yfir hvað Örebro hefur gengið illa i sænsku deildinni til þessa. Hann bjóst við að Órebro gæti farið að skora í næstu leikjum, því nú værl markahrókurinn Dan Sahlin orðinn frískur. Leikurinn gegn Keflavík er fyrsti leikurinn í ár þar sem Sahlin er í byrjunarliði. ■ Leikurinn / B3 Williams þjálfi Þór? NOKKRAR líkur eru taldar á því að Bandaríkjamaður- inn Fred Williams, sem lék með körfuknattleiksliði Þórs frá Akureyri í úrvalsdeild- inni síðastliðið keppnistima- bil, muni taka við þjálfun liðsins í vetur. Samningavið- ræður standa nú yfir en hvort af ráðningu verður mun væntanlega skýrast á allra næstu dögum. Þá mun Williams einnig leika með liðinu en Akureyringar, sem höfnuðu í 10. sæti deildar- innar á síðasta tímabili og rétt björguðu sér frá falli, ætla sér eflaust að gera bet- ur næst. ÞRIÐJUDAGUR 25. JUNI TENNIS/WIMBLEDON BLAÐ B ‘ JONATHAN Stark fagnar slgrlnum á Jlm Courler. Reuter Farangri og skiiríkjum Sigurðar stolið í London PETUR Guðmundsson kúluvarp- ari úr Ármanni varpaði kúlunni 19,37 metra á frjálsíþróttamóti í Alabama í Bandaríkjunum á fimmtudaginn. Er þetta besti árangur Péturs það sem af er árinu en sem kunnugt er hefur hann átt við þrátlát meiðsli. Að sögn Gísla Sigurðssonar, þjálfara ólympíuliðs frjáls- íþróttamanna, þá stóð til að Sig- urður Einarsson spjótkastari tæki þátt í móti í Zagreb í Króat- íu um helgina, en af því varð ekki. Ástæðan var sú að far- angri Sigurðar og skilríkjum var stolið í London svo hann komst ekki lengra. Agassi, Chang og Courier úr leik Þriðji besti tennisleikari heims Andre Agassi tapaði óvænt fyr- ir landa sínum, Doug Flach, sem er í 281. sæti á heimsstyrkleikalist- anum, 2-6, 7-6, 6-4, 7-6 í fyrstu umferð Wimbledon-tennismótsins, sem hófst í í gær. Bandaríkjamað- urinn Michael Chang, sjötti á listan- um, féll einnig úr leik - tapaði fyrir Spánverjanum Alberto Costa í fjórum settum, 3-6, 7-6, 7-6, 6-4. Landi Changs, Jim Courier, varð einnig að gera sér að góðu að ná ekki lengra á mótinu er hann laut í lægra haldi fyrir þriðja Bandaríkjamanninum, Jonathan Stark, einnig í fjórum sett- um 2-6, 4-6, 6-2, 4-6. Courier er áttundi besti tennismaður heimsins samkvæmt styrkleikalista alþjóða sambandsins. Fyrirfram var þó vitað að brugðið gæti til beggja vona hjá Courier vegna tognunar í lærisvöðva, sem hefur verið að hijá hann upp á síðkastið. Boris Becker og Pete Sampras, er sigraði í fyrra, komust auðveldlega áfram í aðra umferð. UPPLÝSINGAR • Mífti sam ’. vinninguf kom a c Lottoi 5 3S vár keyptuf i Söiuturmnum 3tjórnu-rvn: vi> \ RovKy.ivi.k. en b'Onusvínningunnn t Shei'-Nes'i viö H 6r g r fcra ut .1 A k un? v r i. N A' s t a > aupardag ver-ö?. dregnir ut < 0 v.fi.n.m.gsn.at-3' ■ íeröafcikmim sem efnt yar tii . tiíefn: af 500 utdrættinum si. taugacdag KNATTSPYRNA: ALLT UM EM Á ENGLANDI / 64,85,87,610,612

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.