Morgunblaðið - 26.06.1996, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.06.1996, Blaðsíða 1
SBRKSHHS wmmmm KNATTSPYRNA / EM A ENGLANDI BLAÐ <* 1996 m MIÐVIKUDAGUR 26. JÚI\IÍ Reuter BLÁSIÐ til orrustu! Flmm enskir leikmenn og Terry Venebles, þjálfari, með breska fánann á lofti á síðustu æfingu sinni á Bisham Abbey fyrir baráttuna gegn Þjóðverjum á Wembley; Darren Anderson, Davld Platt, Gareth Southgate, Teddy Sheringham, Venebles og Tony Adams, fyrirliði. Sigurður skrifar undir við Minden SIGURÐUR Bjamason handknattleiksmaður úr Stjömunni skrifaði á mánudagskvöldið undir tveggja ára samning við þýska 1. deildarliðið GWD Minden. Um leið keypti þýska féiagið upp samning Sigurðar við Stjörnuna, en hann gerði tveggja ára samning við félagið í vor. < Sigurður er tíundi handknattleiksmaðurinn sem gengur til liðs við þýskt handknattleikslið síðan í vor auk þess sem einn þjálfari, Viggó Sigurðsson, hefur tekið að sér þjálfun hjá Wuppertal. Þar af er hann fjórði leikmaðurinn sem verður með fyrstu- deildarliði þar í landi á næstu leiktíð. GWD Minden er íslenskum handknattleiksmönn- um ekki alveg ókunnugt því áður hafa leikið þar Axel Axelsson, Ólafur H. Jónsson, Jón Pétur Jóns- son op Páll Ólafsson. Þá hét félagið reyndar Dank- ersen, en nafni þess var breytt fyrir nokkrum árum er kaupmenn í Minden tóku félagið upp á sína arma en það var þá orðið illa statt fjárhagslega eftir að Melitta fyrirtækið dróg úr stuðningi við það. Félagið rétt náði að bjarga sér frá falli úr 1. deild í vor og hefur nú ákveðið að blása til nýrrar sóknar og styrkja sig fyrir næstu leiktíð, m.a. með kaupum á Sigurði og franska landsliðsmanninum Stépane Stoecklin. Friður saminn BRESKA dagblaðið Daily Mirror sló upp á forsíðu á mánudaginn að nú væri yfirvofandi þriðja heimsstyijöld- in á milli Breta og Þjóðverja og vísaði þar með til þess að þjóðirnar eigast við á Wembley í dag. Sama efni var á fleiri síðum blaðsins sem einnig var látið líta úr eins og dagblöð síðari heimsstyijaldarinnar. Þetta uppátæki var fordæmt víða í Englandi í gær og meðal annarra sem komu að því voru John Major forsætisráðherra landsins og Terry Venables þjálfari enska liðsins. Þeir sögðu þetta ósmekklegt og langt frá því að vera við hæfi. I gær samdi blaðið frið við Þjóðveija og sat fyrir Júrgen Klinsmann fyrirliða og afhenti honum körfu með ýmsu góðgæti s.s. reyktum laxi, kexi, kökum og sæl- gæti og sagði honum að það vonaðist til að hann þæði körfuna og að hann og félagar hans erfðu ekki uppátæk- ið við blaðið. Klinsmann tók við körfunni, brosti og sagðist ekki ætla að erfa þetta á nokkurn hátt. Pétur keppir ekki í Brussel PÉTUR Guðmundsson keppir ekki fyrir hönd íslands í kúlu- varpi í Evrópubikarkeppn- inni í Briissel um helgina. Pétur hefur tilkynnt um meiðsli á hendi og að hann þurfi tíma til að ná sér. „Pét- ur var valinn í landsliðið og við bíðum eftir svðrum frá læknum um meiðsii hans. Pétur fer í röntgenmynda- töku í dag [I gær], sagði Krist- ján Harðarson, landsliðsþjálf- ari í frjálsíþróttum. „Pétur kastaði 19,37 m um helgina og hann mun taka þátt, í móti í næstu viku. Vésteinn Haf- steinsson mun keppa í kúlu- varpi í Briissel, hann hcfur verið að kasta þetta sextán til sautján metra,“ sagði Kristján. ■ lónArn- ar... C/4 Stöðva þýsku hanskamir Þjóðveija? David Seaman, markvörður enska fyrirtækinu. Seaman líkar gripið á fékk Seaman send nokkur pör til landsliðsins, sem fær það erf- hönskunum, sem er sérsaumaðir fyr- viðbótar í tæka tíð fyrir leik Englend- iða hlutverk að koma í veg fyrir að ir hann, segir þá þægilega og fyrir inga og Spánveija á laugardag, þar leikmenn Þýskalands nái að koma Evrópukeppnina fékk hann send tíu sem þýsku hanskamir stöðvuðu víta- knettinum í mark Englendinga í leik pör frá Reusch, sniðin og saumuð spyrnu frá Miguel Angel Nadal þeim liðanna á Wembley-leikvanginum í sérstaklega fyrir hann. spánska og komu þar með Englend- dag, leikur með þýska hanska á ingum í undanúrslitin. höndum. Kappinn var fljótur að slíta þeim Ef þýsku hanskarnir ná einnig að Árið 1994 gerði Seaman fjögurra öllum því á föstudaginn síðastliðinn stöðva hvítklædda landa sína á Wem- ára samning við þýska íþróttavöru- barst „neyðarkall“ til Þýskalands bley-leikvanginum í dag má ljóst framleiðandann Reusch, sem greiðir þess efnis að landsliðsmarkvörður vera að Reusch-fyrirtækinu og David markverðinum sem samsvarar rúm- Englands væri orðinn hanskalaus og Seaman verða ekki vandaðar kveðj- um tíu milljónum íslenskra króna ár þyrfti nýja hanska í snarhasti. urnar frá Þýskalandi að Evrópu- hvert fyrir að leika með hanska frá Reusch brást vel við beiðninni og keppninni lokinni. Brehme í uppáhaldi hjá Neville ENSKI landsliðsmaðurinn Phil Neville, yngri bróðir Gary Nevilles, skýrði frá því í gær að uppáhaldsknatt- spyrnumaðurinn hans væri þýskur, en sá heitir Andreas Brehme og á aðdáun Nevilles rætur sínar að rekja til heims- meistarakeppninnar í Mexíkó árið 1986. „Ég held að það hafi verið áræðni Brehmes að taka hornspyrnur ýmist með vinstri eða hægri fæti, sem fyrst vakti aðdáun mína á honum. Svo endurtók hann lcikinn á Ítalíu '90 þegar hann tók vítaspyrnur, notaði ýmist vinstri eða hægri, en ég held að það hljóti að krefjast mik- ils hugrekkis að leika þennan leik,“ sagði þessi ungi og efni- legi leikmaður Manchester United, en þeir Neville-bræð- ur urðu í maí síðastliðnum fyrstu bræðurnir til að leika saman fyrir Englands hönd síðan Jack og Bobby Charlton spiluðu saman árið 1970. FRJÁLSÍÞRÓTTIR: KVENNALANDSLBÐIÐ KEPP9R í BERGEN / C4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.