Morgunblaðið - 30.06.1996, Síða 1
96 SÍÐUR B/C/D
. 146. TBL. 84. ARG.
SUNNUDAGUR 30. JUNI1996
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Jeltsín sagður
þurfa hvíld
AÐSTOÐARMAÐUR Borísar Jeltsín
Rússlandsforseta, sagði í gær að forset-
inn yrði fullur baráttumóðs að einum
til tveimur dögum liðnum. Nú þyrfti
hann hins vegar á hvíld að halda, álagið
á rödd hans hefði orðið of mikið í kosn-
ingabaráttunni. Gennadí Zjúganov, mót-
frambjóðandi Jeltsíns í síðari umferð
forsetakosninganna í Rússlandi, sem
fram fer á miðvikudag, ítrekaði í gær
að hann teldi heilsubrest Jeltsíns alvar-
legri en missi raddarinnar. Bill Clinton
Bandaríkjaforseti kvaðst hins vegar
telja að Rússlandsforseti væri við góða
heilsu, er hann var spurður um málið í
gær. Clinton kvaðst þó ekki hafa rætt
við Jeltsín.
Bretadrottning
óþolinmóð
BRESK blöð fullyrtu í gær að Elísabet
Bretadrottning væri orðin ergileg vegna
þess hversu mjög skilnaðarmál Karls
prins, sonar hennar, og Díönu prins-
essu, hefði dregist á langinn. Sagt er
að fyrst og fremst sé Karli um að kenna,
hann vilji sem minnst fé þurfa að greiða
Díönu, án þess að virðast nánös. Þá var
fullyrt í mörgum dagblöðum í gær að
líkur væru á því að Díana myndi haida
titlinum „Hennar konunglega hátign“
því Bretadrottning gerði sér grein fyrir
því að móðir verðandi konungs yrði að
bera titil við hæfi.
Fundi leiðtoga sjö helstu iðnríkja heims lokið í Lyon í Frakklandi
Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir
VIÐ TJÖRNINA
Iðnríkin og Rússar hóta
Serbum refsiaðgerðum
Lyon, Pale. Reuter. ^ ^
Hænsni í gíslingu
SJÖTUGUR karlmaður á Long Island
greip til þess örþrifaráðs að taka hænsn
sín í gíslingu er lögregla og starfsmenn
hreinsunardeildar New York-borgar
hugðust hreinsa til í bakgarði hans.
Hótaði maðurinn, Roderick Baker, að
drepa hænsnin ef ráðist yrði til inn-
göngu og stóð við orð sín, því þijú þeirra
lágu í valnum áður en lögreglu tókst
að handtaka manninn. Hann hefur verið
með um fimmtíu dýr í garðinum, ná-
grönnunum til sárrar raunar. Þeim var
þó að vonum brugðið, sögðu Baker hafa
verið kurteisan rósemdarmann, þó að
óþrifnaðurinn af hænsnunum hafi vissu-
lega verið þreytandi.
Bringusundið
skaðlegt?
DANSKIR hnykklæknar hafa komist að
þeirri niðurstöðu að bringusund getur
verið skaðlegt heilsunni. Segja þeir að
bringusund, sem sé algengasta sundað-
ferðin, hafi ekki þau áhrif sem því sé
ætlað'Og sé jafnvel skaðlegt, reyni menn
að halda höfðinu upp úr vatninu þegar
þeir syndi. Það valdi spennu og vöðva-
bólgu.
LEIÐTOGAR sjö helstu iðnríkja heims og
Rússlands, hótuðu því í gær að gripið yrði til
viðskiptaþvingana, hyrfi Radovan Karadzic,
„forseti" Bosníu-Serba ekki þegar frá völdum.
Þá lýstu leiðtogarnir þeirri skoðun sinni að
halda ætti til streitu þeirri stefnu sem mörkuð
hefði verið í friðarsamningum ísraela og Pal-
estínumanna um „land fyrir frið“. Fundi iðn-
ríkjanna, sem haldinn var í Lyon í Frakk-
landi, lauk í gær.
Leiðtogarnir sendu fjölmargar ályktanir frá
sér á lokadeginum. Þrýsta þeir á um umbætur
innan Sameinuðu þjóðanna, frekara eftirlit
með hefðbundnum vopnum, lýsa yfir vilja til
að beijast af auknum krafti gegn sjúkdómum
á borð við alnæmi og hvetja til alþjóðlegs átaks
í umhverfismálum.
Leiðtogar iðnríkjanna og Rússlands kröfð-
ust þess í gær að Karadzic færi þegar frá
völdum og kváðust reiðubúnir að íhuga refsiað-
gerðir gegn öllum aðilum friðarsamkomulags-
ins í Bosníu, sem brytu það. Þrátt fyrir þetta
virtist engan bilbug á honum að finna og að-
faranótt laugardags var Karadzic endurkjörinn
leiðtogi Jafnaðarmannaflokks Bosníu-Serba.
Þá hvöttu leiðtogarnir til þess að blásið
yrði lífi í friðarumleitanir í Mið-Austurlöndum
HINN nýi forsætisráðherra Tyrklands, Nec-
mettin Erbakan, hét því í gær að viðhalda
góðum tengslum við Vesturlönd en sagði
að jafnframt því væri ætlun stjórnar hans
að auka samskiptin við íslömsk ríki. Erbak-
an er formaður Velferðarflokks heittrúar-
manna sem myndaði á föstudag ríkisstjórn
með flokki fyrrverandi forsætisráðherra
landsins, Sannleiksstígi Tansu Ciller.
Ótta hefur gætt á meðal margra Tyrkja
við að heittrúarmenn komist til valda en
og að allt yrði gert til að koma þar á réttsýn-
um og varanlegum friði. Hvöttu þeir aðila
friðarsamkomulagsins til að standa við það
sem undirritað hefði verið.
Erbakan fullvissaði landsmenn í gær um
að stjórn sín hefði það í heiðri að Tyrkland
væri lýðræðislegt og veraldlegt ríki...“
Erbakan sagði stjórn sína myndu virða
samning um sameiginlegar heræfingar, sem
nýlega var undirritaður við ísraela, svo fremi
sem hann ógnaði ekki þjóðaröryggi. Þá sagði
forsætisráðherrann að stjórn sín myndi
íhuga breytingar á tollasamkomulagi sem
tókst á milli Tyrkja og Evrópusambandsins
í janúar, eftir langt samningaþóf.
. Erbakan heitir góðum samskiptum við Vesturlönd
Aukin tengsl við íslömsk ríki
tnkara. Rcuter. ' '
ormann- t o
RÉrriNDAÞIíÓliN
FJÖLÞÆTTUR
STRENGUR