Morgunblaðið - 03.07.1996, Page 1
1996
MANNVIRKI
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ
BLAD
KSÍ yfirtekur framkvæmdir og rekstur Laugardalsvallar
Brotid blað í sögu
Reykjavíkurborgar
Íngibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri greindi frá því í gær að
borgarráð hefði ákveðið að ganga
til samninga við Knattspyrnusam-
band íslands um framkvæmdir og
rekstur á Laugardalsvelli næstu 15
árin og tekur KSÍ við stjórn mann-
virkjanna 1. janúar á næsta ári.
KSI tekur að sér að koma upp
nýrri yfirbyggðri stúku fyrir allt
að 3.500 áhorfendur, sér um að
koma fyrir sætum fyrir allt að
3.500 manns í núverandi stúku,
lætur reisa klukku og upplýsinga-
töflu fyrir knattspyrnu og fijáls-
íþróttir, sér um endurnýjun á bað-
og búningsklefum og kemur fyrir
aðgöngumiðahliði við aðalinngang.
Heildarkostnaður framkvæmda er
áætlaður 166 millj. kr. og verður
hönnun, uppbygging og íjármögn-
un á hendi KSI en borgarsjóður
greiðir árlega 14 millj. kr. til fram-
kvæmda og reksturs í allt að 15
ár. KSÍ tekur einnig að sér að ann-
ast framkvæmdir við viðgerð á
núverandi stúku og endurbætur á
aðstöðu fijálsíþróttamanna í Bald-
urshaga, gegnt búningsher-
bergjunum. Áætlaður kostnaður
við þessar framkvæmdir er um 20
millj. kr._ og greiðir Reykjavíkur-
borg KSI kostnaðinn.
Alþjóða knattspyrnusambandið
herti kröfur um öryggi á knatt-
spyrnuvöllum 1989 og lá þá fyrir
að nauðsynlegt yrði að ráðast í
umfangsmiklar framkvæmdir á
áhorfendastæðum Laugardalsvall-
ar en einungis er heimilt að selja
í sæti á leiki í heimsmeistara-
keppni, Evrópukeppni og Evrópu-
mótum félagsliða. Ingibjörg Sólrún
sagði að viðræður milli borgaryfir-
valda og KSÍ um byggingu stúku
við Laugardalsvöll hefðu staðið yfir
frá 1992. Ljóst væri að um mikið
hagsmunamál fyrir knattspyrnu-
hreyfmguna í landinu væri að ræða
og borgaryfirvöld væru afskaplega
ánægð með samstarfið við KSÍ og
gang mála. „Við trúum því að í
rauninni sé verið að bijóta blað í
sögu borgarinnar með þessu móti,“
sagði borgarstjóri.
Morgunblaðið/Steinþór
Tímamótasamningi fagnað
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, borgarstjórl, og Eggert Magnússon, formaður
KSÍ, fögnuðu tímamótasamnlngl borgarlnnar og KSÍ í Róðhúslnu í gær.
Guðmundur
með tilboð frá
Þýskalandi
GUÐMUNDUR Bragason,
landsliðsmaður í körfubolta
úr Grindavík, hefur fengið
tilboð um að gerast leikmaður
með þýska liðinu TSV Spey-
er, sem leikur í 2. deild. Liðið
varð Suðurdeildarmeistari í
2. deildinni sl. ár og var hárs-
breidd frá því að komast upp
í 1. deildina.
„Þetta er mjög spennandi
tilboð og kom óvænt upp. Ég
var ekkert að sækjast sér-
staklega eftir að komast út,
en þetta er freistandi. Það
hefur verið draumur lengi að
geta helgað sig körfuboltan-
umogbættsig. Þettaerkær- Guðmundur
komið tækifæri og ætti að
gera mig að betri körfubolta-
manni,“ sagði Guðmundur
Bragason í samtali við Morgunblaðið, en hann
er staddur í sumarfríi á Flórída.
Guðmundur taldi meiri líkur á þvi að hann
færi út en ekki. „Ég er búinn að ræða þetta
lauslega við forráðamenn körfuknattleiks-
deildarinnar í Grindavík og þeir setja sig ekki
upp á móti þessu, en ég var búinn að gera
eins árs samning við Grindavík. Þetta er tæki-
færi sem ekki er hægt að sleppa. Það verður
munur að geta helgað sig körfuboltanum í
stað þess að vinna tíu til tólf tlma og fara
síðan á æfingar,“ sagði Guðmundur.
Tómas Tómasson er umboðsmaður Guð-
mundar og sagði hann að það væru einnig tvö
grísk lið sem hefðu sýnt Guðmundi áhuga. „Ég
er búinn að senda félögunum myndbandsspól-
ur af Guðmundi I leik og vonast til að heyra
frá þeim fyótlega. Tilboðið frá þýska liðinu
er gott, en það eru enn meiri peningar í Grikk-
landi. Körfubolti er íþrótt númer eitt í Grikk-
landi og félög þar hafa verið að fá til sín
NBA-leikmenn,“ sagði Tómas.
Tómas sá einnig um samninga Teits Örlygs-
sonar við gríska félagið Larissa. Teitur heldur
utan 20. júli og fer í læknisskoðun áður en
hann skrifar endanlega undir tveggja ára
samning við félagið. Æfingar hjá griska liðinu
hefjast 27. júlí.
Tómas hefur einnig verið að vinna í því að
koma Herberti Arnarssyni úr ÍR og Jóni Am-
ari Ingvarssyni úr Haukum í lið erlendis.
Hann segir erfiðara að koma bakvörðum að
þjá evrópskum félögum.
Eggert Magnússon, formaður
KSÍ, sagði við Morgunblaðið að
gengið hefði verið til samninga að
vel athuguðu máli. Um væri að
ræða viðbót við viðamikinn rekstur
sem ætti að geta skilað sambandinu
auknum tekjum og ekki yrði um
samdrátt á öðrum sviðum að ræða
vegna þessa. „Ég lýsi yfir mikilli
ánægju með þennan samning,“
sagði hann. „Þetta er stór dagur
hjá knattspyrnumönnum um allt
land.“ Eggert hrósaði borgaryfir-
völdum og embættismönnum góð-
an skilning á mikilvægi málsins og
hröð vinnubrögð. „Þetta er mikill
tímamótasamningur," sagði hann.
„Knattspyrnuhreyfingunni er sýnd
mikið traust og þetta er mikil virð-
ing fyrir KSÍ.“
Hann sagði að hönnun stúku
væri þegar hafin og gert væri ráð
fyrir að bjóða út fyrsta áfanga í
september en framkvæmdum við
stúkuna ætti að vera lokið fyrir 1.
júní á næsta ári. ísland tekur á
móti Litháen í undankeppni HM
ll'.Júnf 1997 en þess má geta að
KSÍ heldur upp á 50 ára afmæli
sambandsins á næsta ári.
í máli borgarstjóra kom fram
að rekstrarkostnaður borgarinnar
vegna Laugardalsvallar hefði verið
um 12,6 millj. kr. á ári að meðal-
tali undanfarin ár en þegar á heild-
ina væri litið væri samningurinn
ekki aðeins til hagsbóta fyrir KSÍ
heldur einnig borgina. Hún þyrfti
ekki að sjá um uppbygginguna en
eignaðist mannvirkin eftir 15 ár.
Steinunn Óskarsdóttir, formaður
ÍTR, sagði að ekki þyrfti að segja
upp starfsmönnum vegna samn-
ingsins því núverandi starfsmenn
fengju önnur verkefni hjá borg-
inni. Ómar Einarsson, fram-
kvæmdastjóri ÍTR, sagði að starfs-
mönnum vallarins hefði verið gerð
grein fyrir hvert stefndi og þótt
ekki kæmi til uppsagna væri um
að ræða leið til hagræðis og sparn-
aðar í rekstri ÍTR.
Þróttur flytur í
Laugardalinn
Á FUNDI borgarráðs í gær var
lögð fram samþykkt íþrótta-
og tómstundaráðs um að geng-
ið verði til samninga við Knatt-
spyrnufélagið Þrótt um flutn-
ing á starfsemi félagsins í
Laugardal.
SI. haust samþykkti borgar-
ráð tillögu ÍTR um að teknar
yrðu upp formlegar viðræður
við Þrótt um fyrrnefndan flutn-
ing og hafa þær staðið yfir síð-
an. Ákveðið hefur verið að
Þróttur láti af hendi svæði og
húsnæði félagsins við Sæviðar-
sund, hætti við byggingu
íþróttahúss á svæðinu og end-
urgreiði borginni fjármuni
vegna samnings um bygging-
una. Tennisvellir verða áfram
við Sæviðarsund næstu fimm
árin en síðan verða byggðir
nýir vellir í Laugardal. Byggt
verður bað- og búningsklefahús
með félagsaðstöðu við gervi-
grasvöllinn í Laugardal og fé-
lagið fær grasæfingasvæði við
Engjaveg, Álfheima og við
skautasvellið í Laugardal en
Valbjarnarvöllur verður aðal-
keppnisvöllur félagsins.
KNATTSPYRNA: 16 LIÐA ÚRSLIT BIKARKEPPNIKSÍ / D4