Morgunblaðið - 04.07.1996, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
íbúar í S-Þingeyjarsýslu um sameiningu
3 skemmti-
ferðaskip á
Akureyri
ÞRJÚ skemmtiferðaskip komu til
Akureyrar í gær, Berlin, Italia
Prima og Astor og er áætlað að
fjöldi farþega hafi verið á bilinu
1.200 til 1.400 manns. Eftir tæpan
hálfan mánuð verða aftur þrjú
skemmtiferðaskip í einu á og við
Pollinn. Astor og Italia Prima á
Pollinum, en við Oddeyrar-
bryggju lá skemmtiferðaskipið
Berlin.
Hlutafjárútboð ÚA að nafnvirði 150 milljónir hefst í dag
voru á móti, 55,2% þeirra sem tóku
þátt í Bárðdælahreppi voru á móti
og 51,1% í Hálshreppi. Ríflega 73%
þeirra sem svöruðu á Húsavík og
í Reykjahreppi voru fylgjandi því
að sameiningarviðræður yrðu tekn-
ar upp við önnur sveitarfélög.
Samstaðan verður að
vera víðtæk
Sigurður Rúnar Ragnarsson
sveitarstjóri Skútustaðahrepps
sagði að ekki hefði verið tekin
ákvörðun um næstu skref í málinu,
en héraðsnefnd Suður-Þingeyjar-
sýslu hefði viljað kanna hug íbú-
anna til sameiningar og hvort menn
væru tilbúnir til að heimila sveitar-
stjórnum í fyrstu að taka upp við-
ræður um sameiningu. Sjálfur
kvaðst hann fylgjandi sameiningu
sVeitarfélaga og vildi helst sjá suð-
ursýsluna alla í einu sveitarfélagi,
en hann gerði sér grein fyrir því
að árangurinn yrði ekki mikill nema
um það næðist mjög víðtæk sam-
staða.
MEIRIHLUTI íbúa í níu hreppum
í Suður-Þingeyjarsýslu svaraði ját-
andi þegar spurt var í skoðana-
könnun samhliða forsetakosning-
unum hvort viðkomandi væri fylgj-
andi því að hans sveitarstjórn taki
upp viðræður um sameiningu við
önnur sveitarfélög.
Könnunin var gerð á Húsavík,
Aðaldælahreppi, Skútustaðahreppi,
Reykdælahreppi, Bárðdælahreppi,
Ljósavatnshreppi, Reykjahreppi og
Hálshreppi. Á kjörskrá voru 3089
manns og var þátttaka í forseta-
kosningunum yfir 80%, mun færri
tóku hins vegar þátt í skoðana-
könnuninnni eða 1964, sem er
63,6% þátttaka. Alls voru 1242
fylgjandi því að sveitarstjórn við-
komandi tæki upp viðræður um
sameiningu við önnur sveitarfélög,
en 631 svaraði neitandi. Auðir seðl-
ar og ógildir voru 91.
Morgunblaðið/Kristján
Andstaða við viðræður um sam-
einingu var mest í Tjörneshreppi,
þar sem 56% þeirra sem tóku þátt
Meirihluti seg-
ist fylgjandi
viðræðum
♦ ♦ ♦
Hluthafar eiga forkaups-
rétt á genginu 4,50
Áætlað söluverð 678 milljónir króna
Gönguferð um
Innbæ og Fjöru
BOÐIÐ verður upp á gönguferð um
Innbæinn og Fjöruna undir leiðsögn
á vegum Minjasafnsins á Akureyri
næstkomandi sunnudag, 7. júlí. Lagt
verður af stað frá Laxdalshúsi við
Hafnarstræti 11 kl. 14 og gengið
um elsta hluta bæjarins. Þátttaka í
gönguferðinni er fólki að kostnaðar-
lausu.
Söngvökur eru í Minjasafnskirkj-
unni öll þriðjudags- og fímmtudags-
kvöld frá kl. 21 til 22 þar sem Ragn-
heiður Ólafsdóttir og Þórarinn Hjart-
arson flytja sýnishorn úr íslenskri
tónlistarsögu.
-----» » 4----
/i$íaíKtiAr9C
TUBORGDJASS Listasumars og
Café Karólínu verður í Deiglunni í
kvöld, fímmtudagskvöld, 4. júlí kl.
21.30.
Fram kemur Tríó Bjöms Thorodd-
sen ásamt Agli Ólafssyni. Auk Björns
skipa tríóið Ásgeir Óskarsson á
trommur og Gunnar Hrafnsson á
kontrabassa.
í DAG hefst hlutafjárútboð Út-
gerðarfélags Akureyringa hf. Um
er að ræða útboð á nýju hlutafé
að nafnvirði rúmar 150 milljónir
króna og er áætlað söluverð þess
um 678 milljónir króna, miðað við
útboðsgengi sem ákveðið hefur
verið 4,50. Núverandi hluthafar
hafa forkaupsrétt á nýju hlutafé
til 24. júlí nk. en ef þá eru óseld
hlutabréf verða þau boðin til sölu
á almennum markaði á genginu
4,50 á fyrsta degi eftir að almenn
sala hefst.
Líklegast að bréfin
seljist öll í forkaupi
Kaupþing Norðurlands hf. hefur
umsjón með útboðinu. Jón Hallur
Pétursson, framkvæmdastjóri
sagðist í samtali við Morgunblaðið
gera ráð fyrir að bréfin seldust upp
í forkaupi, enda hafi verið töluverð-
ur áhugi á hlutabréfum í fyrirtæk-
inu að undanförnu. Síðustu vikur
hefur gengi í viðskiptum með hlut-
afé félagsins verið á bilinu 4,99
til 5,30.
Gert ráð fyrir 100 miiyóna
króna hagnaði
Fyrstu þijá mánuði ársins var
hagnaður af reglulegri starfsemi
Útgerðarfélags Akureyringa hf.
41 milljón króna. Þegar búið er
að taka tillit til söluhagnaðar
vegna sölu eigna og skatta var
hagnaður tímabilsins 79,6 milljónir
króna. Áætlanir félagsins gera ráð
fyrir að hagnaður af starfsemi
þess í ár verði um 100 milljónir
króna.
Á aðalfundi ÚA á síðasta ári
var stjórninni veitt heimild til auka
hlutafé félagsins. Á stjómarfundi
í síðasta mánuði var svo ákveðið
að auka hlutafé um rúmar 150
milljónir króna. Tilgangurinn er
m.a. að mæta arðbærum fjárfest-
ingum í framleiðslutækjum og öðr-
um sjávarútvegsfyrirtækjum. Fyr-
irhugaðar era miklar breytingar á
landvinnslu ÚA sem miða að því
að auka afköst og ná stærri hluta
framleiðslunnar í verðmætari
pakkningar. Breytingar fela í sér
frekari tæknivæðingu á flestum
stigum framleiðsluferilsins og
breytingar á vinnutilhögun. í því
sambandi er rætt um að taka upp
tví- eða jafnvel þrískiptar vaktir í
vinnslunni.
Bærinn nýtir ekki
forkaupsrétt
Akureyrarbær er stærsti hlut-
hafinn í ÚA með rúmlega 53%
eignarhlut og Kaupfélag Eyfirð-
inga er næststærsti hluthafinn með
8,29%. Ekki er áhugi meðal for-
svarsmanna bæjarins að nýta for-
kaupsrétt Akureyrarbæjar og ekki
hefur verið tekin ákvörðun í stjórn
KEA um hvort félagið nýtir sinn
forkaupsrétt. Hins vegar hefur
verið rætt um að bærinn ávísi for-
kaupsrétti sínum til stjórnar ÚA
en engin ákvörðun þar að lútandi
liggur þó fyrir enn.
Slippstöðin hf. á Akureyri
Ný háþrýstidæla keypt
SLIPPSTÖÐIN hf. hefur tekið í notk-
un nýja háþrýstidælu, sem fyrirtækið
hefur fest kaup á og getur náð allt
að 2070 kílógramma þrýstingi á fers-
entimetra. Hér er um að ræða fjár-
festingu upp á 12 milijónir króna og
er þetta stærstu tækjakaup fyrirtæk-
isins í mörg ár.
Tækið verður notað til þvotta og
hreinsunar í Slippstöðinni og hvar
sem er annars staðar þar sem þarf
að nota slíka þjónustu. Dælunni hefur
verið komið fyrir á yfírbyggðum flutn-
ingabíl sem sérstaklega er útbúinn
fyrir hana og þann búnað sem þarf
hennar vegna. Með þessu móti má
fara með tækið hvert á land sem er.
Dælan er drifin áfram af díselvél
og því þarf einungis að vera hægt
að komast í nægjanlegt vatn til að
hægt sé að nota hana hvar sem er.
Notkunarmöguleikar eru ýmsir, sum-
ir liggja fyrir en aðrir verða skoðað-
ir á næstu vikum. í Slippstöðinni
verður dælan notuð til að þvo skip
og báta og hreinsa alla málningu af
sé þess óskað. Einnig er hægt að
hreinsa rör að innan, frá 35 m og
upp í 1500 mm í þvermál, með sér-
stökum spíssum. Þá er farið að nota
háþrýstiþvott til að hreinsa hús að
utan.
Hægt er að setja svokallaða
sandspíssa á byssumar og er þá
notaður sandur til að hreinsa með
og er sandmagnið við þessa aðferð
aðeins 10% af því sandmagni sem
notað er við venjulegan þurrsand-
blástur. Stefnt er að því að nota
þennan búnað í stað þurrsandblást-
urs að hluta eða öllu leyti. Kostimir
miðað við sandblástur eru margir,
m.a. styttri verktími, minni kostnað-
ur og minni hætta á skemmdum á
alls kyns vélbúnaði um borð í skip-
um.
Hægt er að nota eina, tvær eða
þijár hyssur í einu við þvottinn og
með því að kaupa aukabúnað til við-
bótar við dæluna verður hægt að
nota fimm byssur í einu.
Morgunblaðið/Kristján
STARFSMAÐUR slippstöðvarinnar mundar byssu nýju háþrýsti-
dælunnar fimlega við botnhreinsun á Stapafelli í flotkvínni.