Morgunblaðið - 04.07.1996, Blaðsíða 1
FYRIRTÆKI
Orka beisluð í
Rúmeníu/4
ÚTFLUTNINGUR
Límtré á Japans-
markað /5
Rannsóknir í
rénun /8
VIÐSKQTIAIVINNULIF
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
FIMMTUDAGUR 4. JULI 1996
BLAÐ
B
Seðlabanki
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans
nettó batnaði um 1,1 milljarð
króna í júní og var 7,5 milljörð-
um betri en í ársbyrjun. Þessi
bati skýrist m.a. af kaupum
bankans á gjaldeyri á milli-
bankamarkaði umfram sölu.
Gjaldeyrisforði bankans jókst
um 0,2 milljarða og erlendar
skammtimaskuldir lækkuðu um
0,9 milljarða.
Hlutabréf
Viðskipti fyrir rúmar 20 millj-
ónir áttu sér stað á hlutabréfa-
markaði í gær. Viðskipti urðu
með hlutabréf í Borgey fyrir
1.740 þúsund að söluvirði og
lækkaði gengið um tæp 5%, í
2,9.
Heimsókn
Tuttugu Frakkar frá tólf fyrir-
tækjum sem eiga nú þegar í
viðskiptum við íslendinga eða
hafa hug á að koma þeim á
komu hingað til lands í vikunni.
Hópurinn kynnti sér íslenskt
efnahagslíf en einnig var efnt
til viðræðna við íslensk fyrir-
tæki.
SÖLUGENGI DOLLARS
HLUTABREF
ENN Á UPPLEIÐ
Vísitölur hlutabréfamarkaðar
3. janúar til 3. júlí 1996
Þingvísitala hlutabréfa
2200
2000
+40,3% breyting
frá áramótum
----1936,31
Sjávarútvegur
220
+57,4% breyting
frá áramótum
195.92
1380,52
1200i , i - i .. t . i ■■ i—-i
J F M A M J J
Verslun og þjónusta
+22,5% breyting
frá áramótum
165,28
1!0VTtWTj
220
160
---H—-I---1---1——I----H
J F M A M J J
Iðnaður og verktakastarfsemi
+30,4% breyting
frá áramótum
200—----------—----—--------;---193,85
Olíudreifing
220-----
+42,4% breyting
frá áramótum
200 ----------------:------191,88
120-+-
Flutningastarfsemi
260 —-------————
+34,5% breyting
frá áramótum
240------------------ 233,82
Titringur á verðbréfamarkaði vegna inn-
köllunar á spariskírteinum í næstu viku
Seðlabankinn
stöðvar þijú
verðbréfaútboð
SEÐLABANKINN hefur ákveðið að
nýta heimildir sínar til að fresta
fyrsta söludegi í almennum verð-
bréfaútboðum nokkurra aðila sem
áttu að hefjast í byijun júlí. Hús-
næðisstofnun hugðist bjóða út svo-
nefnd húsnæðisbréf að fjárhæð 1
milljarður króna og Iðnlánasjóður
áformaði að hefja enn stærra útboð,
skv. upplýsingum Morgunblaðins. Þá
hugðist Búnaðarbankinn bjóða út
bréf á markaðnum.
Verður útboðunum frestað fram
undir miðjan mánuðinn eða fram
yfir innköllun rikissjóðs á eldri spari-
skírteinum að ijárhæð 17,3 milljarð-
ar. Birgir ísleifur Gunrtarsson, seðla-
bankastjóri, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að í lögum um verðbréfavið-
skipti væri kveðið á um að Seðla-
bankinn gæti sett nánari reglur um
fyrsta söludag einstakra almennra
útboða í því skyni að draga úr sveifl-
um í framboði nýrra verðbréfa á
verðbréfamarkaðnum. „Slíkar reglur
höfum við sett og þar er ákvæði um
að bankanum sé heimilt að breyta
dagsetningu útgefanda með tilliti til
aðstæðna á verðbréfamarkaði.
Við höfum reynslu fyrir því að
framboð og eftirspurn á verðbréfa-
markaði skiptir afar miklu máli um
hreyfingu vaxta. Það lá ljóst fyrir
að ríkissjóður þyrfti að fjármagna
innlausn að fjárhæð 17 milljarðar á
markaðnum sem byijaði með útboði
þann 26. júní. Á grundvelli þess út-
boðs stendur yfir sala ríkisverðbréfa
til 19. júlí. Við töldum að það gæti
haft slæm áhrif á markaðnum að
margir aðilar væru að byija almenn
skuldabréfaútboð á þessum sama
tíma og höfum því ákveðið að fyrsta
útboðið fari fram 12. júlí, en síðan
koma þau hvert á fætur öðru.“ Birg-
ir ísleifur vísaði því á bug að bankinn
væri að gæta sérstaklega hagsmuna
ríkissjóðs með þessari ákvörðun. „Við
erum eingöngu að gæta hagsmuna
markaðarins og reyna að forðast of
miklar sveiflur á vaxtastiginu."
„Erum ósáttir við þessa
ákvörðun"
„Við erum ósáttir við þessa
ákvörðun Seðlabankans," sagði Guð-
mundur Hauksson, forstjóri Kaup-
þings, en fyrirtækið hefur umsjón
með útboði húsnæðisbréfa. „Þarna
er bankinn að gæta hagsmuna ríkis-
sjóðs. Það er mjög einkennilegt að
Húsnæðisstofnun skuli vera látin
víkja þar sem hún hefur gert grein
fyrir áformum sínum um fjáröflun
langt fram í tímann. Að vísu er það
rétt að aðstæður á markaðnum eru
mjög óvenjulegar vegna innköllunar
á 17 milljörðum í spariskírteinum
ríkissjóðs og væntanlega er horft til
þess að koma í veg fyrir harða sam-
keppni um þessa peninga sem myndi
sprengja upp vextina. Á móti má
spyija hvers vegna Seðlabankinn sé
að ganga erinda ríkissjóðs. Ef ríkis-
sjóður ákveður að innkalla 17 millj-
arða þá hljóta menn að gera sér
grein fyrir því að það hefur einhver
áhrif á markaðinn."