Morgunblaðið - 04.07.1996, Síða 1
PiorpöttnWafoiífo
C
1996
FIMMTUDAGUR 4. JULI
BLAD
' , ?í s W 'ffStwíw 'mJ ' j
i V :
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Áttundi tapleikur
Örebro í deildinni
ÖREBRO tapaði í gær áttunda leiknum sínum
í sænsku úrvalsdeildinni þegar það lieimsótti
Öster. Lokatölur 2:1 og sem fyrr verma Arnór
Guðjohnsen, Hlynur Birgisson og Sigurður
Jónsson ásamt samherjum í Örebro neðsta sæti
deildarinnar með 11 stig eins og Trelleborg að
loknum 13 leilgum. Örgryte, lið Rúnars Kristins-
sonar, lék ekki í gær.
Sigurjón sex
höggum undir pari
SIGURJÓN Arnarson náði mjög góðum árangri
er hann lék á Grand Cypress open, sem fór
fram á samnefndum velli í Flórída 1. og 2. júlí.
Sigurjón lék fyrri hringinn á 77 höggum, seinni
á 66 höggum, sem er sex höggum undir park
vallarins. Samtals lék hann á 143 höggum, einu
höggi undir pari. Keppendur voru 120 og hafn-
aði Siguijón í 27. sæti.
Stúlkurnar vel að
sigrinum komnar
„ÞAÐ var sérlega ánægjulegt að sigra í þessu
móti og stúlkurnar voru vel að sigrinum komn-
ar. Þær sýndu mikla baráttu í öllum leikjunum
og léku auk þess mjög vel, hvort heldur var í
vörn eða sókn,“ sagði Sigurður Ingimundarson,
þjálfari islenska kvennalandsliðsins í körfu-
knattleik, við komuna til landsins aðfaranótt
miðvikudagsins. Eins og greint hefur verið frá
varð íslenska liðið meistari á alþjóðlegu móti
sem fram fór á Möltu þar sem það sigraði alla
andstæðinga sína. Stúlkunum var vel fagnað
við heimkomuna, þær fengu blóm og Ólafur
Rafnsson formaður KKÍ þakkaði þeim fyrir
hinn góða árangur.
Þetta er í fjórða sinn sem liðið tekur þátt í
þessari keppni og var besti árangurinn fjórða
sætið. „Við höfum átt erfitt með stúlkurnar frá
Luxemborg og áður en við mættum þeim núna
höfðum við tapað fyrir þeim i 9 leikjum í röð.
Núna tókst okkur að snúa við blaðinu og eftir
að okkur hafði tekist að sigra Luxemborg í
fyrsta sinn varð ekki aftur snúið,“ sagði Anna
Maria Sveinsdóttir fyrirliði og leikjahæsti leik-
maður íslenska liðsins. Leifur Garðarsson al-
þjóðlegur dómari var einnig með í ferðinni og
var fulltrúi íslands í mótinu.
OLYMPIULEIKARNIR I ATLANTA
Níu íþróttamenn og þrettán fylgdarmenn með farseðil á leikana
Martha, Pétur og Sigurður
hafa 12 daga til stefnu
Kátir
meistarar
við komuna
frá Möltu
ÍSLENSKA kvennaliðinu í
körfuknattleik var vel fagnað
við komuna til tandsins eftir
að sigur vannst í fyrsta skipti
á alþjóðlegu móti smáþjóða
sem fram fer á Möltu, en besti
árangur til þessa var fjórða
sætið. Fremri röð frá vinstri:
Anna Dís Sveinbjörnsdóttir,
Kristín Blöndal, Alda Jóns-
dóttir, Erla Reynisdóttir,
Guðbjörg Norfjörð og Helga
Þorvaldsdóttir. Aftari röð frá
vinstri: Erla Sveinsdóttir, í
kvennalandsliðsnefnd, Krist-
in Jónsdóttir, Linda Stefáns-
dóttir, Anna María Sveins-
dóttir, Birna Valgarðsdóttir,
Hanna Kjartansdóttir, Erla
Þorsteinsdóttir, Sigurður
Ingimundarson, þjálfari,
Leifur Garðarsson og Ólafur
Rafnsson, formaður KKÍ.
ramkvæmdastjórnarfundur
Ólympíunefndar íslands ákvað
í gær að þrír fijálsíþróttamenn,
Guðrún Arnardóttir, Jón Arnar
Magnússon og Vésteinn Hafsteins-
son, yrðu á meðal keppenda á
Ólympíuleikunum í Atlanta sem hefj-
ast 19. júlí. Áður hafði verið gengið
frá þátttöku Elsu Nielsen í badmin-
ton, Vernharðs Þorleifssonar í júdó,
Rúnars Alexanderssonar i fimleikum
og sundfólksins Loga Jes Kristjáns-
sonar, Eydísar Konráðsdóttur og
Elínar Sigurðardóttur. Þetta íþrótta-
fólk hefur náð tilsettum lágmörkum
en að sögn Júlíusar Hafstein, for-
manns ÓI, verða frjálsíþróttamenn-
irnir Martha Emstdóttir, Pétur Guð-
mundsson og Sigurður Einarsson að
ná tilsettum lágmörkum á viður-
kenndum mótum fyrir miðnætti 15.
júlí til að öðlast þátttökurétt. Sama
á reyndar við um aðra íþróttamenn
en auk fyrrnefndra hefur Einar Vil-
hjálmsson æft undanfarna mánuði
með Ólympíuleikana í huga.
Lágmarkið í 5.000 m hlaupi
kvenna er 16 mínútur sléttar og
ætlar Martha að reyna við það á
Bislettleikunum í Osló fyrir helgi en
hún hljóp á 16.00,76 á Evrópubikar-
mótinu i Bergen sl. föstudag. Lág-
markið í kúluvarpi er 19,50 m og
náði Pétur því á liðnu ári en það
nægir ekki. Lágmarkið í spjótkasti
er 79,90 m og kastaði Sigurður
lengst 80,06 m í fyrra en hann hef-
ur 12 daga til stefnu eins og Martha
og Pétur til að sanna sig og fá að
keppa í Atlanta.
Fijálsíþróttasambandið valdi í
gær allt fyrrnefnt fijálsíþróttafólk
að Einari undanskiidum til að taka
þátt í lokaundirbúningi fyrir leikana
og óskaði eftir þvi að það yrði skráð
í ólympíulið íslands. Júlíus sagði hins
vegar við Morgunblaðið að ávallt
hefði legið fyrir að enginn íþrótta-
maður færi á leikana nema að hafa
náð tilskildum lágmörkum á ólymp-
iuári. „Á framkvæmdastjórnarfund-
inum var gengið frá þátttöku þriggja
fijálsíþróttamanna. Jafnframt var
samþykkt að um leið og þeir þrír,
sem Fijálsíþróttasambandið bendir
á, ná lágmörkunum fyrir þessa leika
verða þeir skráðir umsvifalaust. Ef
þeir ná ekki tilsettum lágmörkum
núna hefur framkvæmdastjórnin
tekið ákvörðun um að þeir fara ekki
á leikana. Þeir verða að ná þessu í
keppni á viðurkenndu móti.“
Júlíus og Ari Bergmann, ritari
ólympíunefndar, verða fulltrúar Óí
hjá Alþjóða ólympíunefndinni og í
hennar boði í Átlanta en þeir koma
ekki til með að búa í ólympíuþorp-
inu. Kolbeinn Pálsson verður aðal-
fararstjóri, Birgir Guðjónsson læknir
og Gauti Grétarsson sjúkraþjálfari.
Með Elsu fara tveir fylgdarmenn,
einn með Vernharð, einn með Rún-
ari, þrír með sundfólkinu og þrír
með fijálsíþróttamönnunum að öllu
óbreyttu. FRÍ hefur óskað eftir að
fá að senda fjóra fylgdarmenn en
til að svo megi verða verða fimm
fijálsíþróttamenn að vera á meðal
keppenda.
KIMATTSPYRNA: KR, ÍA, ÍBV OG KEFLAVÍK ÁFRAM í BIKARNUM / C4
i
i
j
)
i