Morgunblaðið - 05.07.1996, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
JWpjrgtittMaHífr
1996
FOSTUDAGUR 5. JUU
BLAD
Morgunblaðið/Golli
GOLF
Pétur og Sig-
urður berjast
til lokadags
„ÉG er ósáttur við að vita ekki fyrr að staðið
yrði fast á lágmarkinu og engin færi á leikana
nema hafa náð því. Tíminn sem við höfum er
nú orðinn svo stuttur,“ sagði Pétur Guðmunds-
son kúluvarpari við Morgunblaðið í gær. Eins
og fram kom í blaðinu I gær ákvað framkvæmda-
stjórn Ói að enginn iþróttamaður fari á Ólympíu-
leikana í Atlanta nema hafa náð lágmarkinu í
ár þó að því hafi verið náð í fyrra. Þetta á við
frjálsíþróttamennina Pétur, Sigurð Einarsson
spjótkastara og Mörthu Ernstsdóttur hlaupa-
konu. Pétur hefur átt í þrálátum meiðslum lengi,
bæði í lófanum og í mjöðm og hefur lengst kast-
aði í ár 19,37 metra en lágmarkið er 13 senti-
metrum lengra. „Ég hafði fengið meldingar frá
formanni Ólympíunefndar um að þetta kast
mitt yrði látið nægja vegna þess að ég hef ver-
ið meiddur, en látum það vera. Það sem ég er
ósáttastur við er hversu seint menn taka þessa
ákvörðun um að lágmörkunum verði haldið til
streitu. Það er því það eina sem ég get gert er
að keppa og reyna við lágmarkið. Ef ég næ því
ekki er ég ekki nógu góður til að fara og verð
bara að taka því.“
Að sögn Pétur ætlar hann og Sigurður að
berjast til síðasta dags við að ná lágmörkunum,
en Sigurður þarf að kasta spjótinu a.m.k. 79,90
metra. Á sunnudaginn taka þeir þátt í mótí í
Georgíu og vonir standa tíl um að komast inn
á tvö mót tíl viðbótar. Þeir hafa verið velta fyr-
ir sér að koma heim um helgina og taka þátt í
Meistaramóti íslands en hættu við eftir að mótíð
í Georgíu kom upp. Einnig settí strik í reikning-
inn, að sögn Péturs, að ekki fékkst samþykki
fyrir að árangur á innanfélagsmótí hér á landi
yrði tekinn gildur, næðu þeir ekki lágmarkinu
á Meistaramótinu.
„Ég kastaði yfir 19,50 um síðustu helgi á
æfingu og ég lét kúluna út af puttanum svo ég
er í sókn auk þess sem hef mikinn styrk og
hraðinn er að aukast. En þetta getur verið happa
og glappahjá mér hvort mér tekst að ná þessu
eða ekki. Ég finn mig vel núna og hlakka tíl
að keppa og vonast tíl að fá fleiri mót.“
Þjálfari þeirra Péturs og Sigurðar, Stefán
Jóhannsson, er væntalegur tíl þeirra á mánudag-
inn. „Við hefðum viljað fá hann tíl liðs við okk-
ur mun fyrr og erum einnig ósáttir við hvað
hann kemur seint.“
Að mótínu loknu á sunnudaginn fara Pétur
og Sigurður til liðs við íslenska ólympíuhópinn
í Athens og æfa með honum fram að leikum auk
þess að keppa á þeim mótum sem bjóðast.
KNATTSPYRNA
Sala sjónvarpsréttarfrá HM tryggir knattspyrnusamböndum öruggartekjur
KSÍ fær tæplega 17
millj. kr. á ári frá
A níræðis-
aldri í
hópi efstu
manna
GISLI Halldórsson arkitekt var
í fyrsta sæti í 3. flokki að loknum
fyrsta keppnisdegi í Meistara-
keppni Nesklúbbsins í golfi en
datt niður í 5. til 6. sæti í gær.
Gísli verður 82 ára í næsta mán-
uði en aldurinn vefst ekki fyrir
heiðursforseta íþróttasambands
íslands. Hann fór fyrsta hring á
78 höggum en þurfti 94 högg í
gær og er samtals á 172 högg-
um. Helgi Valur Helgason er í
fyrsta sæti á 166 höggum. Leif-
ur, sonur Gísla, er í 10. sætí á
180 höggum.
Meistaramót golfklúbba víða
um Iand hófust í fyrradag og
lýkur um helgina. Kylfingar hafa
því í nógu að snúast þessa dagana
og eins og sjá má á myndinni
naut Gísli útiverunnar í blíðviðr-
inu á Seltjarnarnesi í gær.
Joao Havelange, forseti Alþjóða
knattspyrnusambandsins, FIFA,
sagði á fundi sambandsins með full-
trúum allra knattspyrnusambanda
innan FIFA í Ziirich í gær að hagn-
aður vegna sjónvarpsréttar frá HM
2002 og 2006 rynni að miklu leyti
til sambandanna sem eru 197 talsins
og hvert þeirra fengi milljón dollara
fyrir hvert fjögurra ára tímabil frá
og með 1999 eða tæplega 17 milljón-
ir kr. á ári að meðaltali á gengi
dagsins.
Mikið ánægjuefni
Eggert Magnússon, fonnaður
Knattspyrnusambands Islands, var
á fundinum ásamt Geir Þorsteins-
syni, skrifstofustjóra KSÍ, og hann
var að vonum ánægður með gang
mála.
„Þessi samningur er mikið
ánægjuefni og tryggar greiðslur
koma minni samböndum sérstaklega
til góða,“ sagði Eggert við Morgun-
blaðið í gærkvöldi. Til þessa hefur
FIFA aðeins umbunað samböndum
sem hafa átt lið í úrslitakeppni HM
en frá og með 1999 sitja öll sam-
böndin við sama borð.
„Auðvitað er þetta gífurleg breyt-
ing sem kemur til með að gjörbreyta
öllum áætlunum," sagði Eggert.
„Við höfum aldrei getað gert lang-
tímaáætlanir vegna óvissu varðandi
sölu auglýsinga og sjónvarpsréttar
frá undankeppni HM en þessi
ákvörðun tryggir okkur fastan og
öruggan tekjustofn. Eins og fram
hefur komið höfum við verið óheppn-
ir með mótheija í stórmótum að
undanförnu með fyrrnefnda sölu í
huga og þótt kostnaðurinn aukist
stöðugt hafa miklir tekjumöguleikar
ekki verið fyrir hendi. í því sam-
bandi má geta þess að ef við hefðum
ekki gert samninga áður en dregið
var í síðustu keppni værum við illa
staddir en þetta hefur verið happ-
drætti. Nú sjáum við fram á meiri
stöðugleika en að sjálfsögðu höldum
1999
við að okkur höndum þar til greiðsl-
urnar verða orðnar að veruleika."
Evrópusamband sjónvarpsstöðva,
EBU, lýsti yfir mikilli óánægju með
samning FIFA og sagði að gengið
hefði verið framhjá EBU vegna pen-
ingagræðgi. „EBU átti fyrsta samn-
ingsrétt og hann var ekki virtur,“
sagði Jean-Bemard Miinsch, fram-
kvæmdastjóri EBU. „ISL-Kirch, sem
hafa enga reynslu í útsendingum og
vinnu frá stórviðburðum, byggðu til-
boðið á okkar tilboði, sem var betra
fyrir knattspyrnuna en græðgin réð
ferðinni hjá FIFA.“
■ Sjónvarpsréttur/C4.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR: MARTHA REYNIR VIÐ ÓLYMPÍULÁGMARKIÐ í 5.000 M HLAUPI / C4
I-