Morgunblaðið - 07.07.1996, Blaðsíða 10
I
10 B SUNNUDAGUR 7. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
DÆGURTÓNLIST
Hippar Hvt ondur ur iremstu rod. Stonc rreo- llokkunnn
mSAFNPLATAN Rok-
kveisla aldarimmr kom út
fyrir skemmstu á vegum
Spors. Á henni er að fínna
safn 20 helstu rokklaga síð-
ustu missera. Oasis á upp-
hafslag plötunnar, Live
Forever en síðan fylgir hver
sveitin af annarri; Presid-
ents of the U.S.A., Radio-
head, Deus, Smiths, Su-
ede, Nick Cave og The
Bad Seeds, Blur, Echo-
belly, Pulp, Heather
Nova, Lemonheads, Su-
pergrass, EMF, Manic
Street Preachers, Paul
Weller, Clawfinger, Lig-
htnin’ Seeds, The Jesus &
the May Chain og Depeche
Mode, en alls eru á plötunni
76 mínútur af tönlist.
MEIRÍKUR Hauksson og
Endurvinnsian stefna nú
um landið við ballhald og
verða að út júlí að minnsta
kosti. Næstu daga er dag-
skráin svohljóðandi: Á
föstudag leika þeir félagar
í Langasandi á Akranesi og
á laugardag í Gjánni á Sel-
fossi. 18. júlí leika þeir á
Kirkjubæjarklaustri, 19. á
Iljúpavogi, 20. í Neskaup-
stað, 21. á Egilsstöðum, 26.
á Akureyri og 27. á Húsavík.
MHÖRÐUR Torfason er
þegar farinn að leggja drög
að árlegum hausttónleikum
sínum aukinheldur sem
hann vinnur nú að nýrri
breiðskífu. Við plötugerðina
leggja honum lið meðal ann-
arra þeir Hjörtur Howser,
Jens Hansson og Hlynur
Magnússon, en hlé er nú á
upptökum á meðan Hörður
ferðast um Finnland, en
honum var boðið þangað í
tónleikaferð. Þess má geta
að hausttónleikamir verða í
stóra sal Borgarleikhússins
6. september næstkomandi.
Frekari upplýsingar má
fínna á heimasíðu Harðar
sem er á slóðinni
http://www.nyherji.is/
hordur.
Hippatónar
LEIKRITINU Stone Free,
sem fmmsýnt verður í
Borgarleikhúsinu 12. júlí
næstkomandi, fylgir mikil
tónlist og áheyrileg. Hún
hefur verið gefin út á
geisladisk með sömu fiytj-
endum og flytja hana á
sviði þegar að kemur.
Stone Free íjallar um
ungmenni sem stödd
eru á rokkhátíð á Englandi
á hippatímanum og tónlist-
in dregur dám af því, því
lögin á disknum eru eftir
Jimi Hendrix, sem á titiUag
verksins og Crosstown
Traffic að auki, Melanie
Safka sem á plötunni eitt
lag, Lay Down, og reyndar
setti hún rryög mark sitt á
annað lag, Ruby Tuesday,
þó ekki! hafi hún samið
það, eftir Paul Simon er
mærðarlagið Sounds of Si-
lence, Bob Dylan á lagið
One of us Must Know og
White Rabbit Jefferson
Airplane er á sínum stað,
Bítlamir leggja til eitt lag,
Small Faces, Donovan og
fleiri mætti nefna.
Fiytjendur eru úr
fremstu röð íslenskra popp-
ara, Jón Ólafsson hljóm-
borðsleikari, Daníel Ágúst
Haraldsson, Eggert Þor-
leifsson, Emilíana Torrini
og Ingvar Sigurðsson sem
syngja og Guðmundur Pét-
ursson sem leikur á gítar
og syngur, en þeim til að-
stoðar eru Stefán Hjörleifs-
son sem leikur á gítar,
Róbert Þórhallson sem
leikur á bassa og Jóhann
Hjörleifsson sem leikur á
trommur og bakradda-
söngkonurnar Margrét Vil-
hjálmsdóttir og Guðlaug
Elísabet Ólafsdóttir.
Handhægt og ódýrt
ytra, eins og Melt Banana,
náum við að selja plötur
fyrir meira en kostnaði við
fyrstu dreifingu,“ segir
hann en útgáfan er öll á
vínyl. Hann segir að sjö og
tíutommuútgáfa á vinyl sé
handhægasta og ódýrasta
útgáfuform sem völ er á
um þessar mundir og það
sé sífellt að sækja í sig veðr-
ið, ekki síst í útgáfu á jaðar-
tónlist sem seljist eðli síns
vegna ekki í milljónaupp-
lagi.
Villt pönk
Sigtryggur segir að Melt
Banana sé um margt sér-
kennileg sveit, en hún leiki
það villtasta pönk sem hann
háfi heyrst og sé með
óhemju kraftmikla söng-
konu í framlínunni. Hig-
hbridge sé aftur á móti
„ritual trans dans“, eins og
hann orðar það og Stillupp-
steypa sjálf stefni út í
þyngri tónlist. Á tíutom-
munni eru ný lög með Still-
uppsteypu, en einn af kost-
unum við vínylútgáfuna er
að ekki tekur nema tvær
vikur eða svo frá því staf-
ræn spóla fer utan þar til
plöturnar eru komnar til
landsins. Pólska útgáfan,
sem heitir Keep Checking
Speed and Completeness of
Urineflow Cut-off. Vænt-
anleg er frekari útgáfa af
Stilluppsteypu, en enskur
tölvulistamaður hefur sett
saman samfellt verk út
ýmsum Stilluppsteypulög-
um á annarri hlið sjö-
tommu, en Haefler tríóið
leggur undir sig hina hlið-
ina. Sú plata verður gefin
út í Þýskalandi og Sig-
tryggur á von á að hún eigi
enn eftir að auka hróður
Stilluppsteypu, því Haefler
tríóið njóti vinsælda víða í
Evrópu og mikils um vert
að fá að fljóta þar með.
Sigtryggur segir þá Still-
uppsteypuliða hafa áttað
sig á því fyrir löngu að best
sé að gera hlutina sjálfir,
en ekki bíða eftir því að
aðrir taki við sér. Vínylút-
gáfan er kjörin til þess að
bregðast skjótt við útgáfuá-
huga og hann segist reynd-
ar ekki skilja af hveiju fleiri
sveitir fari ekki þá leið, því
vínyllinn sé fráleitt dauður,
það sanni þróun í Evrópu,
Japan og Bandaríkjunum.
EKKI ber mikið á hljóm-
sveitinni Stilluppsteypu á
tónleikasviðinu, en því af-
kastameiri er sveitin í út-
gáfu, ef ekki á sjálfri sér
þá erlendum sveitum og
innlendum á vegum FIRE-
samvinnuútgáfunnar. Fyr-
ir skemmstu gaf FIRE
þannig út tíutommu með
japönsku öðlingssveitinni
Melt Banana, en Stillupp-
steypa á þar einnig nokkur
lög, og belgíska sveitin
Highbridge er næst á dag-
skrá. Skammt er síðan
pólska útgáfan Oduh Rec-
ords gaf út sjötommu með
Stilluppsteypu.
Sigtryggur Sigmarsson
er einn aðstandenda
Stilluppsteypu og hann
segir að útgáfan gangi vel
ekki. síst fyrir þá sök að
plöturnar eru gefnar út á
^vínyl.
Hann seg-
ir að Still-
uppsteypa
sé komin í
þannig
samstarf
með ýms-
um er-
lendum
sveitum að
útgáfan borgi sig nánast
fyrirfram. „Með því að
vinna með hljómsveitum
sem unnið hafa sér orð
eftir Árna
Matthíasson
HLJÓMAR OG HRYIMJAIMDI
TECHNO er í eðli sínu tak-
mörkuð tónlist því þó setja
megi saman hljóma og
hrynjandi á óteljandi vegu
finnst mörgum sem sumir
séu ævinlega að fást við
sömu hugmyndina. Þá er
bráðnauðsynlegt að hafa
við höndina menn eins og
Dave Clarke.
Saga Dave Clarke er lík-
lega dæmigerð fyrir
flesta danstónlistarmenn;
hann. hreifst í upphafi af
taktinum því honum fannst
gáman að dansa, fór síðan
að velta fyrir sér tónlist-
inni, fékk að taka í og á
endanum komst ekkert
annað að en eigin tónsköp-
un.
Fyrstu útgáfur Daves
Clarkes vöktu á honum
athygl, enda bráðskemmti-
legt techno með ígripum í
hipphopp, ambient, tripp-
hopp og breakbeat. Hann
lætur allar reglur lönd og
leið, segist reyndar hafa í
hávegum þá reglu að gera
bara það sem hann langar,
hvort sem hann er að leika
annarra tónlist sem plötu-
snúður eða taka upp í
hljóðveri. „Þegar ég fer í
hljóðver hef ég ekki hug-
mynd um hver niðurstaðan
verður; það kemur ekki í
ljós fyrr en lagið er til-
búið.“ Fyrstu útgáfurnar,
tvær tólftömmur, báru það
þó ekki með sér að vera
tilviljanir við takkana og
allra síst fyrsta breiðskíf-
an, Archive One, sem kom
út fyrir nokkru og er með
helstu útgáfum ársins.
Dave Clarke hefur
verið iðinn í baráttu
gegn fíkniefnaneyslu
sem tröllriðið hefur
breskri dansmenningu
og segir reyndar að
þeir sem þurfi vímu-
gjafa til að geta notið
tónlistar hans ættu
að finna sér annað að
gera.
Tecnho-
bolti Dave
Clarke.