Morgunblaðið - 07.07.1996, Side 1

Morgunblaðið - 07.07.1996, Side 1
Qanmörk Ódýrir bílaleigubílar fyrir íslendinga Tveggja vikna gjald: Opel Corsa, dkr. 2.995 Opel Astra, dkr. 3.590 Opel Astra st„ dkr. 3.990 Opel Vectra, dkr. 4.390 Innif. ótakm. akstur og tryggingar. Fáið nánari verðtilboð. Nýkominn sumarhúsalisti senriist ókeypis fjölbreytt úrvai sumarhúsa um alla Danmörk. lippt. á fslandi slmi 456-3745 Farþegar gera tilboð í ferðir Ferðaskrifstofan Ratvís býður viðskiptavin- um sínum að gera sér tilboð um fargjald, en á vegum skrifstofunnar er flogið einu sinni í viku til Algarve í Portúgal, og kostar til dæmis vika fyrir hjón með tvö börn um 34 þúsund krónur. Þorgrímur Þorgrímsson hjá Ratvís segir ferðaskrifstofuna vera með leiguflug hjá írska flugfélaginu CityJet, sem var valið flugfélag ársins í Bretlandi í fyrra fyrir góða þjónustu. Þorgrímur segir algengt að fólk leiti vel fyrir sér áður en það kaupi farmiða og kanni verðið víða. Ratvís hafi því ákveðið að bjóða fólki að gera tilboð i ferðirn- ar til Praia da Rocha og Albufeira á Portúgal. Mikið uppbyggingarstarf hefur verið unnið í ferða- málum á vestasta odda Evrópu, sunnanverðum Vestfjörðum. Þar hefur til dæmis á undanförnum árum verið unnið að ýms- um uppákomum til að laða að ferðamenn. 2 Látrabjarg SUNNUDAGUR 7. JÚLÍ 1996 BLAÐ C Sífellt fleiri ferðamenn líta til Strandasýslu og þar er ýmislegt í gangi til þess að mæta þessum aukna óhuga Rólegir nóttúruunnendur STRANDAMENN hafa undanfarið unnið ötullega að því að auka fram- boð á afþreyingu ýmiskonar fyrir ferðamenn á svæðinu. Að sögn Stefáns Gíslasonar, sveit- arstjóra, hafa tveir starfsmenn verið ráðnir til að vinna sérstaklega að ferðamálum. „Þessir vinna er styrkt af Nýsköpunarsjóð námsmanna og starfsmennimir, Jón Jónsson, þjóð- fræðingur og Rakel Pálsdóttir, þjóð- fræðinemi eru nú að vinna úr hug- myndum sem Jón setti fram þegar hann starfaði hér á síðasta ári. Þær ganga út á að kynna Strandasýslu út frá þjóðsögum og sögnum af svæð- inu. Við viljum markaðsetja það sem svæði náttúru og sögu og höfða til rólyndra náttúruunnenda.“ Sem dæmi um breytingar sem unnar væru í þessum anda nefndi Stefán nýlega opnun Café Riis í Hólmavík. Um er að ræða glæsilegt veitingahús í elsta húsi bæjarins sem var byggt 1897. Það er í uppruna- legri mynd að utan og í innréttingar er notaður rekaviður og úrskurður er áberandi, meðal annars galdra- stafir ýmiskonar. Að sögn Stefáns var það fyrsta verkefni Jóns og Rakelar þegar þau hófu störf í byijun júní að vinna at- burðadagatal fyrir sumarið. „Þá stóð svo sem ekki til að gera neitt, en svo fylltist dagatalið þar sem hver at- burðurinn rekur annan. Það voru hestaferðir, gönguferðir, Ijósmynda- samkeppni og sýningar, bryggjuhátíð á Drangsnesi og margt fleira. Svo hugsa menn líka lengra fram í tím- ann og það er til dæmis fyrirhuguð galdrasýning á Trékyllisvík á næsta ári.“ Strandirnar spennandi Stefán hafði ekki handbærar upp- lýsingar um fjölda ferðafólks sem hefði heimsótt Strandir undanfarin sumur, en sagði aukninguna greini- lega. „Áhugi fólks á þessu lands- svæði hefur aukist verulega en það hefur vantað einhveija afþreyingu fyrir ferðamenn. Nú er sú afþreying í boði. Það er of snemmt að spá fyr- ir um fjöldann í sumar, en mér sýn- ist þetta fara vel af stað, enda greini- legt að fólki þykir Strandirnar spenn- andi kostur." Aðspurður hvort hvala- og sela- skoðunarferðir væru í boði sagði Stefán að eitthvað hefði verið um bátsferðir frá Drangsnesi út í Gríms- ey, en alla jafna vantaði báta þannig útbúna að þeir mættu gera út á að flytja fólk. „Það er þó nóg að skoða hér. Eg fór til dæmis fyrir nokkrum dögum út í Grímsey á bát og sá að minnsta kosti tíu hvali á þessum stutta kafla." Gistimöguleikar eru góðir á Ströndum. Á Hólmavík eru gott tjaldstæði, auk þess sem þar eru gistiheimili með fjölbreyttum gisti- möguleikum. Þá er gistiheimili í Bjarnarfírði, en þangað er um hálf- tíma akstur norður frá Hólmavík. „Þar búa menn svo vel að hafa sund- laug, nokkuð sem er ekki hér í Hólmavík. í Bjamarfirði hafa menn unnið að ýmsum nýjungum í ferða- þjónustunni. Þær em á þessari nátt- úrulínu, til dæmis sumarbúðir og fjöl- skylduvikur þar sem fræðsla er í boði um náttúruna og fleira. Rétt. við Drangsnes er bændagisting og svo er hótel á Djúpuvík auk gisti- heimilis í Norðurfirði.“ Stefán segir að ekki sé um að ræða lúxusgistingu, heldur sé að- staðan í takt við þær áherslur sem menn hafa á ferðaþjónustunni í Strandasýslu. „Menn vilja kynna svæðið fyrir ferðafólki án þess að leggja út í mikinn stofnkostnað eða breyta ásýnd svæðisins í stórum at- riðum." PUNKTAR ► Jafningjafræðsla framhalds- skólanema og Samvinnuferðir- Landsýn hafa komið á fót ferðaklúbbnum FLAKK sem starfræktur verður í allt sum- ar. Klúbbfélagar, sem eru á aldrinum 15 til 21 árs gamlir, geta safnað punktum með ferðalögum innanlands til að fara í ódýrar ferðir til Beni- dorm á Spáni og Lundúnar- borgar. Ferðir FLAKK eru vímulausar, öll neysla áfengis og annarra vímuefna óheimil. ►Tvær utanlandsferðir eru skipulagðar og geta þeir sem hafa farið að minnsta kosti þrjár ferðir innanlands komist í þær á hagstæðu verði. 15. júlí verður flogið til Benidorm á vegum Samvinnuverða-Land- sýnar og stendur ferðin í viku, verðið er 19.800 krónur með gistingu og fararsljórn innifal- innk Lundúnaferðin stendur fjóra daga eða frá 27. - 30. ágúst og mun Páll Óskar Hjálmtýsson annast farar- stjórn. Ferðin kostar 15.800 krónur. ►Ferðir sem hægt er að fá punkta fyrir eru t.d. gönguferð á Fimmvörðuháls og ferð til Kulusuk á Grænlandi. HVERNIC Vikuferð til Færeyja. Verð pr. mann mlðað við fjóra ■ bíl í allt sumar. FRÁBÆR ' verð ^Jj BÓKAÐU STRAX, Ennþá laust í nokkrar ferðir Ffá kr.Z8.900,- Verð pr. mann miðað við fjögurra manna fjölskyldu með efgln bíl til Danmerkur eftir 4. júlí og heim frá Noregi í ágúst. 2 fullorðnlr og tvö böm yngri en 15 ára. *Verð á mann. Bifreíð innifalin V/SA ÞÚ IERÐ ÞÍNAR EIGIN LEIÐIR 25% AFSLÁTTUR ÚT TIL DANMERKUR 3. SEPTEMBER NORRÆNA FERÐASKRIFSTOFAN Laugavegur 3, S(mi: 562 6362 AUSTFAR H F Seyðisfirði, sími: 472 1111 Umboðsmenn um allt land iFYHiSTOFBFAtST

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.