Morgunblaðið - 09.07.1996, Qupperneq 1
b
r\ r>
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1996
JMtangtttiÞlafcift
■ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ
BLAÐ
FRJALSIÞROTTIR
Vala setfti heimsmeft
unglinga í Stokkhólmi
VALA Flosadóttir, ÍR, setti glæsilegt íslands- og Norðurlandamet
fullorðinna og heimsmet unglinga í stangarstökki á alþjóðlegu
stigamóti í Stokkhólmi í gærkvöldi. Vala stökk 4,15 m í bráða-
bana en bandaríska stúlkan Stascy Dragila felldi. Þær þurftu að
há bráðabana, þar sem í keppninni sjálfri felldu þær 4,15 eftir
að hafa báðar stokkið yf ir 4,10 m í annarri umferð. Fyrra heims-
met unglinga átti þýska stúlkna Nastya Ryshich, 4,12 m.
Vala stökk fyrst í bráðabana-
keppninni og fór örugglega
yfir, en Dragila náði ekki að lyfta
sér yfir rána. Vala hafði áður stokk-
ið 4,10 m utanhúss - á móti í Reims
í Frakklandi á dögunum, hún á
best innanhúss 4,16 m. Á mótinu
í Reims setti Emma George frá
Ástralíu heimsmet, 4,42 m. George
felldi 4,15 m í gærkvöldi, en tók
ekki þátt í bráðabanakeppninni þar
sem hún sleppti að reyna við 4,10
m eftir að hafa stokkið 4,05 m og
varð að sætta sig við þriðja sætið.
Vala og bandaríska stúlkan
Stacy Dragila hafa æft saman í
Malmö að undanförnu.
Johnson á 19,77
Á sama móti hljóp Bandaríkja-
maðurinn Michael Johnson á sjötta
besta tíma sögunnar í 200 metra
hlaupi er hann kom í mark á 19,77
sekúndum. „Ég var mjög öruggur
i dag [í gær] og hef trú á að ég
geti hlaupið 200 metrana á 19,50,“
sagði Joímson, en þetta var hans
síðasta keppni fyrir Ólympíuleikana
í Atlanta. Auk hans hafa fjórir
hlaupið 200 metrana á skemmri
tíma, Bandaríkjamennirnir Mike
Marsh, Carl Lewis og Joe DeLoach
og ítalinn Pietro Mennea.
Af öðrum frjálsíþróttaköppum
sem þátt tóku á mótinu í Svíþjóð
er það helst að frétta að Bretinn
Toni Jarrett var dæmdur úr keppni
í 110 metra grindahlaupi fyrir að
þjófstarta tvisvar. Bandaríkjamað-
urinn Allen Johnson sigraði í hlaup-
inu á 13,25 sekúndum en heimsmet-
hafinn Colin Jackson kom næstur.
■ Úrslit / B11
GUÐRÚN Arnardóttlr er tllbúln í slaglnn á ÓL í Atlanta
Gudrún bætti Islands-
metið í200 m hlaupi
Pétur og Sigurður enn langtfrá sínu besta
Guðrún Arnardóttir, fijálsíþrótta-
kona úr Ármanni, bætti eigið
íslandsmet í 200 metra hlaupi á ftjáls-
íþróttamóti í La Grange í Georgíu-
fylki á sunnudag. Hún hljóp á 24,01
sek. og bætti metið um 0,17 sekúnd-
ur. Að sögn Gísla Sigurðssonar, þjálf-
ara íslenska ólympíuhópsins, er Guð-
rún í mjög góðri æfingu um þessar
mundir og því ætti tími hennar í 200
metra hlaupinu ekki að koma á óvart.
Hún keppir í 400 metra grindahlaupi
á Ólympíuleikunum í Atlanta, en- 200
metra hlaupið er aukagrein hjá henni.
íslenska ólympíuliðið í frjálsíþrótt-
um er nú við æfingar í Athens, sem
er um 60 mílur austan við Atlanta.
Að sögn Gísla er æfingaaðstaðan þar
mjög góð og hafa æfingar gengið
vel. „Það er frekar heitt héma, eða
um 32 gráður. Það er gott að fá tíma
til að aðlaga sig hitanum áður en
kemur að leikunum sjálfum. Það er
ljóst að Martha er dottin út úr hópn-
um en vonandi ná Pétur og Sigurður
lágmarkinu í tírna," sagði Gísli.
Sigurður Einarsson keppti í spjót-
kasti á sama móti og Guðrún og kast-
aði lengst 74,68 metra, en ólympíu-
lágmarkið er 79,90 metrar. Hann
mun keppa aftur um næstu helgi og
ef hann nær ekki lágmarkinu þar fer
hann til Bahama og keppir þar 15.
júlí og er það síðasti möguleiki hans
á að ná lágmarkinu fyrir ÓL.
Pétur Guðmundsson keppti einnig
á mótinu um helgina. Hann varpaði
kúlunni 18,84 metra og var eins og
Sigurður töluvert frá ÓL-!ágmarkinu,
sem er 19,50 metrar. Pétur fær eitt
tækifæri í viðbót og verður það á
móti í Norður-Karolínu um næstu
helgi.
Jón Amar Magnússon, tugþraut-
arkappi, tók þátt í spjótkasti og
kringlukasti á sama móti. Hann kast-
aði spjótinu 61,70 metra og var einum
metra frá sínum besta árangri og
kastaði kringlunni 48,82 metra en á
best 51,30 metra.
GOLF: ÍVAR HAUKSSON MEÐ TVÖ VALLARMET / B5
M 06. 07.1996
Fjöldi
vinninga
Vinnings-
upphæð
Vinningar
3 af 6
+ bónus
Samtals;
Þríilflldæl, vinnirigui
Vertu víðbúlnín) vinnlngí
1. vinninQiti
,>1 að V'n<’
1. vinningur cr émtíaður 200 mílijbnir kr.
Hoildaivinhlii(j0up|)hwð;
VINNINGSTÖI.UIL
VIKIJNA
iiifíjntHirliin í Lotlþi 'i/iö vor hpypl'
ti win KIHfai«f*l f ftpvf*iAvtl' I yr
|tn I VlklntlnlOHólmt n mofýlih vr>i!
n f»t| 'má u°'n 'áó fyilr nó fihnn VÞlOi
mllljönlr krönn
Vinningar Fjöldi vlnninga Vinnings- upphæö
1.5 af 5 0 3.531.429
O 4af 5 fl c. piús G 614.160
3.4»'5 68 8.620
4. 3af 5 2.359 580
Samtals: 2.428 6.099.969
4-