Morgunblaðið - 10.07.1996, Síða 1
72 SÍÐUR B/C/D/E
154. TBL. 84. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Hert
kvik-
mynda-
eftirlit
Canberra. Reuter.
ÁSTRALIR tilkynntu í gær, að
opinbert eftirlit með kvikmynd-
um og sjónvarpsdagskrá yrði
hert vegna fjöldamorðanna í
Port Arthur í apríl. Meðal þess,
sem gert verður, er að koma
fyrir rafrænum ofbeldissíum í
nýjum sjónvarpstækjum.
Byssumaður varð 35 manns
að bana í ferðamannabænum
Port Arthur á Suður-Tasmaníu
28. apríl. í kjölfarið fylgdu mikl-
ar deilur um ofbeldi í fjöl- og
afþreyingarmiðlum.
Efnisflokkun breytt
Richard Alston, samgöngu-
ráðherra Ástralíu, sagði að yfir-
völd myndu ennfremur breyta
efnisflokkun og endurskoða eft-
irlit í ljósi tilmæla frá nefnd sem
skipuð var til að rannsaka of-
beldi í rafrænum íjölmiðlum
eftir fjöldamorðin.
Samkvæmt nýju skipulagi
eftirlits með kvikmyndum og
myndböndum mætti til dæmis
banna sýningar á ofbeldiskvik-
myndum á borð við bandarísku
myndina Fædda morðingja
(Natural Born Killers).
Reuter
Göngu-
menn
stöðvaðir
JOHN Taylor, varaformaður
Sambandsflokks Ulsters, eins
flokks mótmælenda á Norður-
írlandi, skoraði á John Major
forsætisráðherra í gær að aftur-
kalla bann við kröfugöngu svo-
nefndra Oraníumanna sem leitt
hefur til mestu óeirða í landinu
um árabil. í gærmorgun hafði
þó dregið verulega úr þeim en
eftir stóðu brunnin hús og bílar.
Oraníumenn hafa lengi haft þann
sið að minnast sigurs mótmæl-
enda á kaþólikkum á 17. öld með
því að ganga um hverfi
kaþólskra í bænum Portadown
en kaþólskir menn líta á það sem
niðurlægjandi ögrun. Að þessu
sinni komu óeirðalögreglumenn
í veg fyrir, að mótmælendur
legðu leið sína um kaþólska
hverfið.
Stríðið í Tsjetsjníju
blossar upp aftur
---»-♦.-
Netanyahu í
Bandaríkjunum
Almenn
orð um frið
I lögreglufylgd úr skóla
Alexander Lebed, yfirmaður
rússneska öryggisráðsins, segist til
viðræðu um aðskilnað landsins
Moskvu. Reuter.
BRESKA lögreglan handtók í gær
mann, sem grunaður er um að
hafa sært þrjú ung börn og fjórar
konur með sveðju í Wolverhamp-
ton í Englandi í fyrradag. Heitir
hann Horett Irving Campbell, 32
ára gamall. Ekki hefur enn tekist
að hafa uppi á banamanni eða
banamönnum níu ára gamallar
stúlku, sem myrt var í Liverpool,
og hefur föður hennar verið
sleppt en lögreglan tók hann til
yfirheyrslu. Hafa þessir atburðir
skotið fólki skelk í bringu, einkum
foreldrum ungra barna. Þessi
kona fékk lögreglufylgd þegar
hún sótti börnin sín á leikskólann.
■ Árásarmanns leitað/18
MIKIL átök voru í gær miili rúss-
neskra hermanna og skæruliða í
Tsjetsjníju, þau mestu í sex vikur,
og ljóst, að kosningarnar í Rúss-
landi og ákvarðanir Borís Jeltsíns
forseta hafa engu breytt um
ástandið í landinu. Alexander
Lebed, yfirmaður rússneska ör-
yggisráðsins, segir í viðtali, sem
birt var í gær, að hann sé tilbúinn
til að ræða fullan aðskilnað
Tsjetsjníju og rússneska sam-
bandslýðveldisins.
Átökin í Tsjetsjníju hófust eftir
að yfirmaður rússneska herliðsins
skipaði skæruliðum að sleppa öll-
um rússneskum hermönnum, sem
þeir hefðu í haldi, fyrir miðjan dag
í gær. Ella yrðu hafnar loftárásir
á þá. Segja Rússar, að skæruliðar
hafi svarað skilmálunum með því
að lífláta nokkra gísla og hafi þá
verið látið til skarar skríða. Voru
mestu bardagarnir við bæinn Gekhi.
Spenna hefur vaxið mjög í
Tsjetsjníju og saka hvorir aðra um
að bijóta samninga um að rúss-
neskir hermenn verði famir á brott
1. september.
Vill ræða sjálfstæði
Lebed, yfirmaður rússneska ör-
yggisráðsins, segir í viðtali við ít-
alska dagblaðið La Repubblica, að
hann sé tilbúinn til að ræða að-
skilnað Tsjetsjníju en segist þó
telja, að Tsjetsjenum muni farnast
betur innan rússneska ríkjasam-
bandsins. Lebed hefur nú
Tsjetsjníjuvandann á sinni hendi
eftir að Jeltsín rak Pavel Gratsjov
varnarmálaráð-
herra úr emb-
ætti.
Mikil átök
virðast eiga sér
stað að tjalda-
baki í Kreml um
embætti í nýju
stjórninni, en í
gær skipaði
Jeltsín Níkolaj
Kovaljov yfirmann leyniþjón-
ustunnar. Kemur hann í stað Mík-
haíls Barsúkovs, sem var rekinn
um leið og Gratsjov. Gratsjov vís-
aði í gær á bug ásökunum um
spillingu og sagði, að þær væru
runnar undan rifjum Lebeds, sem
vildi koma sínum manni, hershöfð-
ingjanum ígor Rodíonov, í emb-
ætti varnarmálaráðherra.
Ekki bankahrun
Sergei Dúbínín, seðlabankastjóri
í Rússlandi, sagði í gær, að orðróm-
ur um yfirvofandi bankakreppu í
landinu væri ástæðulaus. Viður-
kenndi hann þó, að sumir bankar
ættu í erfiðleikum og á mánudag
tók seðlabankinn yfir einn stærsta
bankann í Rússlandi, Tverúnivers-
albank.
Alexander Lívshíts, helsti efna-
hagsráðgjafi Jeltsíns, sagði í gær,
að hugsanlega yrðu nýir menn
skipaðir til að fara með stjórn efna-
hagsmála í landinu. Sagði hann,
að lítil verðbólga gæti ekki lengur
verið eina markmiðið, nú yrði að
leggja áherslu á aukna framleiðslu
og fjárfestingu.
Washington. Reuter.
BENJAMIN Netanyahu, forsætis-
ráðherra ísraels, lýsti yfir í gær,
eftir fund með Bill Clinton, forseta
Bandarikjanna, að stjórn sín stefndi
að því að semja um frið við ná-
grannaríkin.
Þeir Clinton og Netanyahu rædd-
ust við í tvo klukkutíma í gær og
svöruðu síðan spurningum frétta-
manna. Sagði Netanyahu, að stjórn
sín vildi frið og væri hann fús að
eiga fund með Sýrlandsforseta.
Sumir ísraelskir fréttaskýrendur
höfðu spáð því að Netanyahu myndi
blíðka Bandaríkjastjórn með því að
lofa að eiga fund með Yasser Ara-
fat, leiðtoga Palestínumanna, og
tilkynna brottflutning ísraela frá
Hebron en lítið þótti að græða á
svörum hans við spurningum um
þessi atriði.
------♦"♦—♦-----
Rússar
áhyggjufullir
Moskvu, Sar^jevo, Belgrad. Reuter.
TALSMAÐUR Sameinuðu þjóð-
anna lýsti í gær yfir stuðningi við
þau orð yfirmanns Öryggis- og
samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE)
að koma yrði í veg fyrir framboð
Serbneska lýðræðissambandsins,
flokks Radovans Karadzic, léti hann
ekki af formennsku. Rússar kváð-
ust hins vegar áhyggjufullir vegna
yfirlýsinga ÓSE.
Grígorí Karasín, talsmaður rúss-
neska utanríkisráðuneytisins, sagði
rússnesk yfirvöld „afar áhyggjufull
vegna þess sem ætti sér stað í
tengslum við hið svokallaða
Karadzic-vandamál“. Gaf hann í
skyn að Rússar teldu að með
ákvörðun Karadzic um að afsala sér
völdum til varaforseta Bosníu-
Serba, væri nóg að gert.