Morgunblaðið - 10.07.1996, Blaðsíða 1
HJOLREIÐAR / FRAKKLANDSKEPPNIN
Reuter
ÞJÓÐVERJIIMN Erik Zabel, iengst til hægri, kom fyrstur í mark í Frakklandskeppninni í gær, er hjólað var frá
Tórínó á Ítaiíu til Gap í Frakklandi. Daninn Bjarne Riis, sem hefur forustu í keppninni eftir tíu áfanga, hefur trú
á því að hann geti fagnað sigri í París þegar upp verður staðið. Úrslit / C2
Rúnar skipti úr
Víkingi í Hauka
RÚNAR Sigtryggsson gekk í gær frá félaga-
skiptum úr Víldngi í Hauka. Hann sagðist
hafa áður rætt við Val og Stjörnuna en Hauk-
ar hefðu orðið fyrir valinu. „Ég vil spila 11.
deild því 2. deildin er ekki burðug,“ sagði
hann við Morgunblaðið. „Haukar eru með
gott lið og góða stjórn og ég var kominn á
síðasta snúning með að skipta því æfingar
hefjast 22. júlí.“
Haukar hafa einnig fengið Magnús Sig-
mundsson frá ÍR og Sigurð Þórðarson frá
Selfossi. Gunnar Gunnarsson, leikmaður og
þjálfari, verður þjálfari Elverum í Noregi en
Sigurður Gunnarsson var ráðinn þjálfari í
staðinn.
Þjálfari Grinda-
víkur í leikbann
SAUTJÁN meistaraflokksmenn voru úr-
skurðaðir í leikbann á fundi aganefndar KSÍ
í gær. Þar af voru þrír leikmenn í 1. deild -
Guðmundur Torfason, þjálfari Grindavikur-
liðsins, Rútur Snorrason, IBV, og Rúnar P.
Sigmundsson, Stjöra-
unni, eins leiks bann
vegna fjögurra gulra
spjalda. Einn leikmað-
ur var úrskurðaður I
tveggja leikja baim
vegna brottvísunar,
Guðmundur Hákonar-
son, Þór, eins leiks
bann vegna brottvísun-
ar fengu Michael Pa-
yne, Fram, Ólafur Öra
Oddsson, Haukum,
Arai Þór Eyþórsson,
HK, Dragoslav Stojanovic, KVA, Sveinn H.
Steingrímsson, SM, og Þórir Jónsson, Fjölni.
Börkur Edvaldsson, Gróttu, Guðjón Björas-
son, HK, Bjarni Már Hafþórsson og Jón Þór
Eyjólfsson, ÍR, Kjartan Hjálmarsson, Leikni
R., Pálmar Guðmundsson, Reynir S., og Sigur-
geir Trausti Höskuldsson, Skautafélagi
Reykjavíkur, fengu eins leiks bann vegna fjög-
urra gulra spjalda.
Þrettán leikmenn yngri flokka fengu leik-
bann, tveir leikmenn 3. flokks fengu tveggja
leikja bann vegna brottvísunar og tveir leik-
menn 4. flokks eins leiks bann vegna brottvís-
unar.
MANNVIRKI/LAUGARDALUR
Samið um hönnun og verkfræði
þáttinn vegna nýrrar stúku
Knattspyrnusamband íslands
skrifaði undir samning við
Verkfræðistofu Sigurðar Thorodd-
sen hf., VST, og Teiknistofuna
hf., Ármúla 6, í gær vegna verk-
fræðiþáttar og allrar hönnunar við
nýja stúku við Laugardalsvöll og
breytingar á núverandi stúku.
Fyrirtækin eiga að skila teikning-
um til bygginganefndar 29. ágúst
nk. og er ráðgert að bjóða út 1.
áfanga verksins 9. september en
framkvæmdum við hann á að vera
lokið 1. júní á næsta ári.
Eins og Morgunblaðið greindi
frá í liðinni viku ákvað borgarráð
að ganga til samninga við KSÍ um
framkvæmdir og rekstur Laugar-
dalsvallar í 15 ár og tekur sam-
bandið við rekstrinum 1. janúar á
Morgunblaðið/Ásdís
FRÁ undirskrift samningsins, Frá vinstri: Bjarni Snæbjörnsson og Gísli Halldórsson frá Telkni-
stofunni, Eggert Magnússon, formaður KSÍ, Magnús Bjarnason, byggingastjóri KSÍ, og Viðar
Ólafsson og Níels Indriðason frá VST.
næsta ári. Samkvæmt samning-
num tekur KSÍ m.a. að sér að
koma upp nýrri yfirbyggðri stúku
fyrir allt að 3.500 áhorfendur og
setja jafnmörg sæti í núverandi
stúku auk þess að sjá um aðrar
nauðsynlegar breytingar. Eggert
Magnússon, formaður KSÍ, sagði
við Morgunblaðið að samið hefði
verið við fyrrnefnd fyrirtæki um
að þau legðu fram teikningar með
gerða kostnaðaráætlun í huga.
Hann sagði að í fyrsta áfanga
væri ekki aðeins gert ráð fyrir
endurbótum á gömlu stúkunni
heldur miklum breytingum á að-
stöðu fijálsíþróttamanna í Bald-
urshaga. í því sambandi nefndi
hann sérstaklega að komið yrði
fyrir 60 m hlaupabraut.
■
MHHH
TVÆR EIGINKONUR FORMANNAIISLENSKA OLYMPIUHOPNUM / C2