Morgunblaðið - 10.07.1996, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1996 D 7
FRÉTTIR
„Detti veiðin niður
er ævintýrið úti í bili“
SR-Mjöl á Seyðisfirði
vinnur loðnu fyrir
allt að 10 milljónir á dag
SR-MJÖL á Seyðisfirði
hefur nú tekið á móti
um 10.000 tonnum af
ioðnu frá mánaðamót-
um. Unnið er úr um
1.000 tonnum á sólar-
hring, en verðmæti
þeirrar framleiðslu getur legið nálægt 10 milljónum dag hvern.- Þessi
mikla loðnuveiði nú skiptir bæði SR-Mjöl og Seyðisfjörð miklu máli, enda
eru margfeldisáhrifin af þessari verðmætasköpun mikil. Verið hitti Gunn-
ar Sverrisson, verksmiðjustjóra SR-Mjöls á Seyðisfirði að máli. Hann sagði
vertíðina fara vel af stað, en allt getur gerzt, þegar loðnan er annars
vegar. „Detti veiðin niður, er ævintýrið úti í bili,“ segir Gunnar.
„Við bræðum nálægt þúsund
tonnum á sólarhring og út úr því
fáum við rúm 300 tonn af mjöli og
lýsi,“ segir Gunnar. „Því miður hefur
verðið á lýsinu verið að falla veru-
lega að undanförnu. Staðan er ein-
faldlega þannig að þeir, sém eru
ekki með nægar lýsisgeymslur,
verða að losa sig við lýsið strax.
Annars eru þeir sjálfkrafa stopp og
þá er bara spurningin hvort betra
er að vera stopp eða losa sig við
lýsið á lægra verði. En kaupendur
eru mjög meðvitaðir um geymslu-
rými verksmiðjanna."
Litlar lýsisbirgðir
„Við áttum mjög lítið af Iýsi, er
vertíðin hófst, vorum við búnir að
selja það að mestu. Við höfum mik-
ið tankarými fyrir lýsi og lendum
því ekki í vandaræðum með lýsis-
birgðir á næstunni og svipaða sögu
er að segja af öðrum SR-verksmiðj-
um. Þeir, sem voru mikið í síldar-
bræðslu í vor, og hafa lítið tanka-
rými hljóta hins vegar að vera að-
þrengdir."
Verksmiðjan er mjög fullkomin,
en hún var byggð upp frá grunni
1990 til 1991 og síðan hefur stöðugt
verið unnið að því að bæta fram-
leiðsluna. Mjölið er þurrkað með
heitloftsþurrkun og því getur verk-
smiðjan framleitt hágæðamjöl, sem
og aðrar tegundir mjöls.
Nú setur áta hins vegar strik í
reikninginn, en illmöguiegt er að
framleiða hágæðamjöl úr slíku hrá-
efni. Auk SR-mjöls á Seyðisfirði,
framleiða Eskiljörður, Grindavík og
Krossanes mjöl með heitloftsþurrk-
un, slíkur búnaður er í uppsetningu
í Neskaupstað og fyrirhugað að setja
upp í Helguvík og á Akranesi.
Aukinna gæða stöðugt krafizt
Gunnar segir að það eigi eftir að
koma í ljós hvort nægur markaður
sé fyrir hágæðamjölið. Hann er á
því að svo muni verða, því kaupend-
ur krefjist stöðugt meiri gæða. Eftir-
spurn eftir slakara mjöli muni
minnka. „Ég er á því að þörfin fyrir
hágæðamjöl aukist í framtíðinni.
Kaupendur verða stöðugt meðvitaðri
um gæði og eru því í vaxandi mæli
tilbúnir til að greiða hærra verð fyr-
ir það. Verulegur verðmunur er á
standardmjöli og hágæðamjöli en
Gunnar Sverrisson
verðsveiflur eru hins vegar meiri á
standardmjöli."
Átan tfl vandræða
„Mér lízt vel á upphaf vertíðar.
Loðnan er greinilega komin lengra
í átinu en undanfarin ár. Hún er
óvenjustór ogfeit og engin smáloðna
saman við. Atan er það eina, sem
er til vandræða og fyrir vikið getum
við ekki geymt hráefnið eins lengi
og ella 'og verðum að halda aftur
af bátunum við veiðarnar.
Þegar bátarnir landa hér verða
þeir að bíða í sólarhring áður en
þeir fara út aftur, en biðin á Raufar-
höfn og Siglufirði er tveir sólarhring-
ar. Illmögulegt er að framleiða há-
gæðamjöl úr átuloðnu og vinnsla
gengur hægar í slíku hráefni.“
Þegar unnið úr nærri
100.000 tonnum
Verksmiðjan tók á móti 66.000
tonnum af loðnu á vetrarvertíð og
19.000 tonnum af síld. Nú er búið
að taka á móti rúmlega 10.000 tonn-
um og alls er því móttekið hráefni
komið upp í um 95.000 tonn. Alla
síðustu vertíð var unnið úr 120.000
tonnum af loðnu og síld, en mest
hefur verið unnið úr 130.000 tonnum
á einni vertíð eftir endurbyggingu
verksmiðjunnar. Haldi svo fram sem
horfir eru því verulegar líkur á að
unnið verði úr meira hráefni á þess-
ari vertíð en nokkru sinni áður. Alls
vinna 25 til 28 manns hjá SR-Mjöli
á Seyðisfirði í fastri vinnu.
Sumarloðnan gífurlega
þýðingarmikil
„Við erum alltaf að endurbæta
verksmiðjuna. Þegar líður á sumarið
verður soðeimingartækjum skipt út
og ný og betri tæki verða sett upp.
Svo erum við með verktaka við að
steypa upp sökkla og klæða mjölhús-
ið hjá okkur. Það er töluverð vinna
við það.
Það hefur gífurlega þýðingu fyrir
SR-Mjöl að fá góða sumarloðnuver-
tíð. Afkoma verksmiðjunnar verður
auðvitað betri, starfsmenn fá meiri
vinnu og bæjarfélagið miklar tekjur
af öllum þessum umsvifum. Þá selja
verzlanir kost um borð í skipin, olíu-
félögin fá mikil viðskipti, mikið er
að gera í viðgerðum og viðhaldi,
flutningum og svo framvegis. Það
er svona þó nokkurt líf þessa stund-
ina og milljónirnar streyma í gegn
um bæinn.“
Brothætt
„Ég held að við á Seyðisfirði get-
um verið sæmilega bjartsýnir, því
auk þess að loðnan fer svona vel af
stað, er mikið að gera í fiski hjá
Dvergasteini. Því er hins vegar ekki
að neita að þetta er mjög brothætt.
Það þarf ekki nema að veiðin bregð-
ist. Þá er þetta búið að stórum hluta.
Þá ríkir mikil óvissa um síldarvertíð-
ina, því Seyðfirðingar eiga engan
síldarkvóta, þó hér séu söltunar-
stöðvar. Mikil óvissa er um það hvort
þær fái síld til vinnslu í haust. Sú
þróun hefur einfaldlega orðið að
Seyðfirðingar hafa ekki eignast
kvóta af uppsjávarfiski, hvorki síld
né loðnu. Þetta skapar töluverða
óvissu, þegar líður á haustið, einkum
ef loðnuveiðin verður endaslepp,"
segir Gunnar Sverrisson.
Það sem eftir er af kvótanum í byrjun júli 1996 (17% eftir af kvótaárinu)
Þorskur,
veiðíheírnild,
102,0 þús. t,
Ný staða,
10,8 þús. t.
Ysa,
veiðiheimild,
52,0 þús. t,
Ný staða,
20,1 þús. t.
Ufsi,
veiöiheimíld,
65,4 þús. t,
Ný staða,
35,9 þúsj
Karfi,
veiðiheimild,
71,0 þús. t,
Ný staða,
6,2 þús. t.
Grálúða,
veiðiheimild
23,4 þús. t
Ný staða,
7,9 þús. t.
Skarkoli,
veiðiheimild,
14,0 þús. t,
Ný staða,
6,1 þús.
Uthafsrækja,
veiðiheimild,
67,1 þús. t,
Ný staða,
11,5 þús. t,
Innfjarðarækja,
veiðiheimild,
11,0 þús. t,
Ný staða,
436 tonn
Humar,
veiðiheimild
594 tonn
Ný staða,
250 tonn (.
Skel,
veiðiheimild,
9,3 þús. t,
Ný staða,
1,6 þús. t.
Síld,
veiðiheimild,
128,7 þús. t,
Ný staða,
4,5 þús. t.
Þetta yfirlit er endurbirt vegna mis-
taka í vinnslu. Loðna er hér undan-
skílin en nokkuð aðrar reglur gilda
um loönuveiðar en
veiðar á öðrum
fisktegundum.
Yfirvélstjóri óskast
á 150 tonna dragnóta- og netabát, með 650
hestafla aðalvél, sem gerður út
frá Hornafirði.
Upplýsingar í símum 852 0643 og 478 1838.
Þarf að geta hafið störf 1. ágúst.
KVlúlTABANKINN
Kvótabankann vantar þorsk til leigu og sölu
Þorskaflahámark til sölu
Sími 565 6412, fax 565 6372, Jón Karlsson.
Fiskiskiptil sölu
Til sölu er mb. Erlingur GK 212, skipaskrár-
númer 1430. Skipið er 27 brúttórúmlestir,
byggt úr eik árið 1973. Aðalvél er Volvo
Penta 300 ha (221 kw) frá árinu 1989. Skip-
ið selst með veiðileyfi en án aflahlutdeildar.
Lögmenn Garðar og Vilhjálmur,
Hafnargötu 31, Keflavík.
Sími421 1733. Bréfasími421 4733.
Fiskiskiptil sölu
Til sölu er mb. Þórir SF 77, skipaskrárnúmer
1236. Skipið er 125 brúttó rúmlestir, byggt
1973 og yfirbyggt 1986. Það selst með veiði-
leyfi en án aflahlutdeildar.
Lögmenn Garðar og Vilhjálmur,
Hafnargötu 31, Keflavík.
Sími421 1733. Bréfasími421 4733.
Söluskrifstofa - E.E.S.
Traustur aðili, sem hefur í hyggju að stofna
söluskrifstofu fyrir sjávarafurðir miðsvæðis á
Evrópska efnahagssvæðinu á hausti kom-
andi, óskar eftir að komast í samband við:
1. Framleiðslufyrirtæki á ferskum afurðum á
SV-horni landsins.
2. Framleiðendur, í öllum landshlutum, á
öðrum sjávarafurðum (frystum, söltuðum,
reyktum, niðurlögðum, o.s.frv.) í neyt-
endaaumbúðum.
3. Fjárfesta, sem hafa áhuga á að eignast
hlutafé og/eða leggja fram áhættufjár-
magn gegn góðri ávöxtun.
Áhugasamir gjöri svo vel að senda svar til
afgreiðslu Mbl., merkt: „EES - 96“, fyrir
22. júií nk.