Morgunblaðið - 10.07.1996, Blaðsíða 1
1 ÞRAUTIRl
Heimilisfang:
MYNDASÖGUR
MOGGANS
Morgunblaðinu
Kringlunni 1
103 Reykjavík
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
MIÐ VIKUDA GUR 10.JUL11996
Islensk/frönsk
sumarkveðja
FRÆNDSYSTKININ Álfheiður, sem býr á íslandi, og
Kristján Óli, sem býr í París, sendu okkur myndir og
bréf. Myndin hennar Alfheiðar er af fjalli sem við
höldum jafnvel að sé ævintýrafjall því það er svo
skrautlegt og fallegt á litinn. Kannski þar sé bústaður
álfa og huldufólks. Álfheiði langar að senda sumar-
kveðju til allra sem hún þekkir og sérstaklega Krist-
jáns Óla frænda í París sem kemur ekki til Islands í
sumar en fær þó alltaf Myndasögur moggans sendar
alla leið til Frakklands. Kristján Öli sendir kveðjur til
allra á íslandi og mynd af fugli sem ég kann ekki að
nafngreina, en flottur er hann. Kærar þakkir fyrir
sendinguna, krakkar.
Krakkar
í sumar-
skapi
Á MYNDINNI sem
Hulda Magnúsdótt.ir,
Tómasarhaga 43,
teiknaði og sendi okk-
ur má sjá stelpur í snú
snú. Þær eru trúlega
snú snú-drottningar
því þær eru með kórón-
ur, og svo eru þær svo
glaðar á svipinn. Mynd-
ina nefnir Hulda Vor.
Hversu
gamall er
karlinn?
KARLINN á myndinni hef-
ur gleymt hversu gamall
hann er. Getur þú hjálpað
lionum? Ef þú leggur sam-
an tölurnar sem karlinn er
búinn til úr kemstu að hinu
sanna. Annars er svarið í
Lausnum.