Morgunblaðið - 11.07.1996, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 11.07.1996, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR MUNDU svo að það verða vandræði ef þú heldur þig ekki á mottunni, góði . . . Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn í Laugardal Sam- keppni um nafn á kópinn SELKÓPURINN í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugar- dal var settur inn í fyrrakvöld í síðasta skipti og segir Tómas Óskar Guðjónsson forstöðu- maður garðsins, gert ráð fyrir að hann fái að leika lausum hala með hinum selunum hér eftir. I gær voru tekin niður skilrúm í tjörninni á milli hans og hinna selanna. Selurinn hefur braggast betur en á horfðist, eins og fram hefur komið, og segir Tómas gesti garðsins hafa spurt mikið um líðan hans. Mikið spurt um kópinn ^Rúmlega þúsund manns koma hvern virkan dag í garð- inn og flestir sem þangað koma forvitnast um kópinn, vilja sjá hann og fylgjast með honum og eru aðstæðum hans kunnugir eftir að hafa lesið um lífsbaráttu hans í fjölmiðl- um. Hann er orðinn fjölskyldu- eign ef svo má segja,“ segir hann. Tómas segir Fjölskyldu- og húsdýragarðinn hafa ákveðið að efna til samkeppni á meðal almennings um nafn á kópinn, sem er urta, og fái sá sem er hlutskarpastur árskort í garð- inn til að fylgjast með kópnum. „Mig langar að leyfa almenn- ingi að ljúka sögunni fyrst hún hefur farið eins vel og raun ber vitni. Eg er viss um að mörgum dettur eitthvert snið- ugt og gott íslenskt nafn í hug Mórgunblaðið/Ásdís HEBA Sigurðardóttur gefur selkópnum. sem má gjarnan tengjast lífs- baráttu kópsins, og ekki sakar að hafa í huga að hann á örlít- ið eldri hálfsystur sem hefur heldur ekki hlotið nafn. Urtan er skaprík og lætur hvorki hina selina vaða yfir sig né okkur, mislíki henni eitthvað,“ segir hann. Þeir sem eru áhugasamir um nafngiftina geta að sögn Tómasar sent tillögur sínar fyrir 20. júlí með pósti eða sím- bréfi til Fjölskyldu- og hús- dýragarðsins við Holtaveg, eða komið þeim þangað á ann- an hátt. Sólstöðuhópurinn Sumarhátíð í hjartans einlægni Ingi Bæringsson SUMARHÁTÍÐIN „í hjartans einlægni", sem Sólstöðuhóp- urinn gengst fyrir, verður haldin helgina 19. til 21. júlí næstkomandi á Laugalandi í Holtum. í boði verður mikill flöldi námskeiða af ýmsum toga fyrir börn, unglinga og fullorðna. Ingi Bæringsson vímu- efnaráðgjafi er í fram- kvæmdanefnd _ Sólstöðu- hópsins ásamt Ásu Helgu Ragnarsdóttur, leikara og kennara, og hjónunum Ingu Stefánsdóttur sál- fræðingi og Sigurði Ragn- arssyni sálfræðingi. Hann var spurður að því hver væri hugmyndin með hátíðinni. „Upphafiega kom hugmyndin frá Ingu og Sigurði, sem langaði til að fara á útihátíð með börnin en fundu ekkert sem þeim fannst freistandi fyrir fjölskylduna. Þessi hefðbundna útihátíðarstemmning á sumrin á íslandi er ekki mjög spennandi þannig að þau ákváðu að halda sína eigin útihátíð. I framhaldi af því höfðu þau sam- band við mig og Ásu Helgu og skriðan fór af stað.“ - Hvernig gekk hátíðin í fyrra? „Hún gekk mjög vel. Að vísu var ekki alveg fullt hjá okkur en stemmningin var frábær og allir sem voru þarna nutu þess alveg í botn. Hátíðin byggir á virkni þátttak- enda. Enginn kemur og skemmtir fólki heldur tekur fólk þátt í starfi og ieik sem það hefur gaman af. í boði eru 25 námskeið fyrir full- orðna, þijú unglinganámskeið og níu barnasmiðjur. Allir sem að þessu koma gefa vinnu sína. Það á einnig við um framkvæmdanefndina og nám- skeiðshaldara. Þannig að það eru allir þarna í sama tilgangi - að skemmta sér og öðrum. Bæði þeir sem halda námskeiðin og hinir sem sitja þau.“ - Hvaða námskeið verða í boði? „Það er langt mál. Ég get nefnt sem dæmi „Fyrirgefninguna og ástina", þar sem Pálmi Matthías- son prestur er fyrirlesari, „Þú og Bítlarnir - að skoða sjálfan sig og aðra í gegnum tónlist og texta . Bítlanna“ með Vilhelm Norðljörð sálfræðingi, „Hagnýt leiklist" með Eddu Björgvinsdóttur og Gísla Rúnari Jónssyni, „Nýr karlmaður á 21. öld“ sem eingöngu er ætlað karlmönnum eldri en átján ára og fyrirlesari er Bragi Skúlason prestur. Svona gæti ég haldið áfram í allan dag. Það verða níu barnasmiðjur, þ.e. vísindasmiðja, leiksmiðja, tón- smiðja, trésmiðja, íþróttasmiðja, sköpunarsmiðja, litla leiksmiðjan fyrir 0-4 ára, þrautasmiðja og föndursmiðja. Svo er unglingadagskrá. Þeir eru með sérstakt samkomutjald og tjaldsvæði út af fyrir sig. Tvö námskeið eru sérmerkt ungling- um, þ.e. trumbusláttur af lífi og sál, sem Hafþór Gestsson heldur, „Ævintýraförðun - leikhúsförðun og fleira“, með Önnu Tohr og Pétri Steini og „Námskeið í kvik- myndagerð", með Sigurbimi Aðal- steinssyni." - Verða fleirí uppákomur? „Já, þegar námskeiðunum lýkur verða kvöldvökur og sameiginleg- ar stundir, þar sem verður sungið ► INGI Bæringsson er fæddur árið 1955. Hann hefur fengist við ýmis störf til sjávar og sveita. Hann vann m.a. hjá Sól hf. um árabil, stundaði sjó- mennsku og vann við verksmið- justörf í Noregi. Hann hefur unnið sem vímu- efnaráðgjafi á Tindum, með- ferðarheimili fyrir unga vímu- efnaneytendur, síðastliðin sex ár. Á þessu ári var hann skipað- ur deildarstjóri á Tindum. Ingi byrjaði að starfa með Sólstöðuhópnum fyrir tveimur árum. Hann hefur m.a. tekið þátt í að skipuleggja fyrirlestra og undirbúa og sjá um sumar- hátíðirnar. og dansað. Einnig verður sett upp félagslegt markaðstorg, heilsubar o.fl. Unglingarnir munu halda sund- laugarpartí og einnig munu þeir fara upp að Heklu til að dansa, syngja og skemmta sér við varðeld fram eftir nóttu.“ - Verður þetta í fylgd fullorð- inna? „Já, það verður a.m.k. undir um- sjá. Ánnars er engin ástæða til að hafa áhyggjur, enda er þetta vímu- laus hátíð. Hvaða hópur er Sólstöðuhópurinn? Sólstöðuhópurinn hefur staðið fyr- ir fyrirlestraröð í Norræna húsinu síðastliðna tvo vetur og á sér það markmið að koma af stað hreyf- ingu í átt að betra lífi. Einnig á að stuðla að því, í hjart- ans einlægni, að hvetja til að við lifum saman í sátt og sýnum hvert öðru virðingu, traust og ábyrgð. Gildi eins og nánd, sameining, virðing og friður eru hugmyndir sem við viljum ýta á eftir í sam- félaginu. Við viljum líka hækka gildismat gleðinnar, samstöðunnar og sam- heldninnar og annarra þeirra gilda sem stuðla að fegurra mannlífi. Sumarhátíðin „í hjartans ein- lægni“ er liður í þessu. Það er hátíð þar sem kynslóðirnar mæt- ast, starfa og leika saman án vímu- efna.“ - Hversu margir koma að und- irbúningi hátíðarinnar? „Þetta er erfið spuming. Við erum fjögur sem erum í forsvari. Síðan eru nefndir sem sinna ýmsum þátt- um. Til dæmis er unglingahópur sem skipuleggur unglingadagskrá, dagskrámefnd sem skipuleggur kvöldvökur og sameiginlegar uppákomur, o.s.frv. - Verður þetta árlegur viðburð- ur? „Já, ef vel tekst til núna.“ Dansað og sungið upp við Heklu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.