Morgunblaðið - 11.07.1996, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11.JÚLÍ1996 49
Landsmótið
á Lauga-
landi
Frá Rósu Aðalsteinsdóttur:
LANDSMÓT Sambands íslenskra
harmoníkuunnenda var haldið dag-
ana 21. og 22. júní sl. að Lauga-
landi í Holtum. Mér þykir miður að
svo lítið hefur verið fjallað um þenn-
an atburð í fjölmiðlum a.m.k. ekki
á þann hátt sem mér þykir við hæfi.
Skipulagning og framkvæmd móts-
ins var með þvílíkum ágætum, að
sómi var að. Sjónvarpsáhorfendur
fengu aðeins að sjá hinn heimsfræga
snilling Vladimir Cuchran augnablik
á skjánum í lok ellefufrétta. Hann
hélt fræðslufyrirlestur fyrri dag
mótsins og ógleymanlega tónleika
þann síðari. Þarna var einnig stadd-
ur ítalskur snillingur, Renzo Ruggi-
eri, en hann lék báða dagana við
mikinn fögnuð þeirra sem á hlýddu.
Urðu margir mótsgestir vitni að
þeim einstæða atburði er þessir tveir
menn, sem báðir eru heimsþekktir
harmoníkuleikarar, spiluðu saman,
óundirbúið. Þeir sýndu, svo ekki
varð um villst, að harmoníkan er
ótrúlega fjölhæft hljóðfæri og að
hægt er að leika á hana bæði klass-
iska tónlist, jazz og þar að auki allt
frá danslögum til þjóðlaga. Fingra-
fími þessara snillinga var svo ótrúleg
að maður trúði varla sínum eigin
augum og eyrum. Tónleikar voru
báða dagana og komu þar fram
hátt S tuttugu hljómsveitir alls stað-
ar að af landinu.
Hljóðfæraleikararnir voru af báð-
um kynjum og á öllum aldri, sumir
mjög ungir. Hámark þessara tón-
leika var svo þegar á annað hundrað
harmoníkuleikarar söfnuðust saman
á og umhverfís sviðið og spiluðu hið
fallega lag Valdimars Auðunssonar
„Nótt á fjöllum“ en allur salurinn
söng með, undir öruggri forystu
Jóns Smára Lárussonar, einsöngv-
ara, frá Hvolsvelli. Báðir dagamir
enduðu svo með dansleikjum, þar
sem hljómsveitirnar skiptust á um
að leika fyrir dansi. Ég yfirgaf svæð-
ið þakklát fyrir indæla daga og með
óm af stórkostlegri tónlist í höfðinu.
Harmoníkufélag Rangæinga á
þakkir skildar fyrir vel undirbúið og
vel framkvæmt mót.
RÓSA AÐALSTEINSDÓTTIR,
Stóru-Mörk.
eru ódýr og einfold lausnj
HÚSASMIÐJAN
Súðarvogi 3-5 • Slmi 525 3000
Helluhrauni 16 • Sími 565 0100
—i Þú ákveður hvemig gluggamirþínir eiga að
líta út og við sníðum jyrir þig efnið. Þetta
gefur þér möguleika á að hafa gluggana
algjörlega eftirþínu höfði. Ósamsettir
gluggar frá Húsasmiðjunni spara tíma, efni
ogjyrírhöfn og henta í öll hús.
.þú gefur okkur upp málin og við
skilum þér tilbimum gluggaeiningum.
en&labornín
Bankastræti 10 - Sími 552-2201