Morgunblaðið - 11.07.1996, Blaðsíða 1
• '.«-7'?.^í.!•' í'i'IW™• ►'M1'' '
fltorjpmldaMfc
1996
FIMMTUDAGUR 11. JULI
BLAÐ
KNATTSPYRNA
GOLF
Marseille
lagt niður
Geir Sveinsson og félagar
í Evrópukeppnina
HANDKNATTLEIKSLIÐ Marseille, sem var
franskur meistari á síðustu leiktíð, hefur verið
lagt niður. Ástæðan er fjármálaóreiða. Félagið
gat ekki sýnt fram á að geta staðið við þær
skuldbindingar sem það hafði gert var fyrst
dæmt niður í 2. deild og gefinn ákveðinn frestur
til að koma fjármálunum í lag. Sá frestur er
útrunninn, án þess að nokkuð væri gert, og þá
var félaginu vísað úr deildarkeppninni og lagt
niður í kjölfarið.
Þetta þýðir að PSG, sem hafnaði í öðru sæti
í deildinni, tekur þátt í Evrópukeppni meistara-
liða, en Montpellier, lið Geirs Sveinssonar, fær-
ist upp um eitt sæti og fær þátttökurétt í borga-
keppni Evrópu á næstu leiktíð.
Wolde áfram
í svartholinu
STJÓRNVÖLD í Eþíópíu lýstu þvi yfir í gær að
þau hefðu tekið endanlega ákvörðun þess efnis
að fyrrum Ólympiumeistarinn í maraþonhlaupi,
Mamo Wolde, yrði ekki látinn laus úr fangelsi í
því skyni að hann geti verið heiðursgestur á
Ólympíuleikunum í Atlanta, sem hejast síðar í
þessum mánuði. Wolde hefur mátt dúsa í svart-
holinu í fjögur ár ákærður fyrir að hafa verið
viðriðinn aftökur á þúsundum ungra andstæð-
inga einræðisherrans fyrrverandi í Eþíópíu,
Mengistu Haile Mariam, á árunum 1978-79.
Alþjóða ólympíunefndin hefur nú um nokkurt
skeið reynt að fá Wolde lausan úr fangelsinu svo
hann geti mætt á Atlanta-leikana en hann sigr-
aði i maraþonhlaupi á leikunum í Mexíkó 1968
og hlaut svo bronsverðlaun í Mtinchen fjórum
árum síðar. Wolde er einn af aðeins fjórum
Eþíópíubúum sem hlotið hafa gullverðlaun á
Ólympíuleikum.
Ein kona frá íran á ÓL
í FYRST A skipti síðan byltingin var gerð í íran
árið 1979 senda þeir konu til keppni á Ólympíu-
leikum. Sú heitir Lida Fariman og keppir í skot-
fimi. Þetta tilkynnti Mohammad Ali Fereydouni
aðalþjálfari iranska landsliðsins í skotfimi fullur
stolts í vikunni. Einnig var tilkynnt að irönskum
konum væri aðeins leyft að keppa í hestaíþrótt-
um, skiðaiþróttum, skotfimi, skák og nokkrum
íþróttagreinum fatlaðra heima sem að heiman.
Astæðan er sú að í þessum greinum geta konurn-
ar haldið sig við venjubundinn klæðaburð íslam-
skra kvenna.
Morgunblaðið/Golli
Ég á mér lítinn, skrýtinn ..,
„ÉG á mér lítinn, skrýtinn skugga ...“ getur Zoran Ljubicic, leikmaður Grindavíkurliðs-
ins, verið að segja, þegar hann lék gegn Keflvíkingum í Keflavík í gærkvöldi. Karl
Finnbogason, varnarleikmaður Keflavíkurliðsins, hafði góðar gætur á Zoran og elti
hann eins og skuggi út um allan völl. Keflvíkingar fögnuðu sigri í Suðurnesjaslagnum, 2:1.
■ Leikurinn / C5
skammt
ÍSLENSKA drengjalandsliðið í golfi
er í 13. sæti að loknum fyrsta degi
Evrópumótsms sem nú fer fram í
Austurríki. í gær lék liðið á 362
höggum og er sveitin tveimur högg-
um á undan Frökkum sem eru í
fjórtánda sæti og einu höggi á eftir
heimamönnum sem eru í tólfta
sæti. Englendingar og írar eru efst-
ir og jafnir með 347 högg.
Friðbjörn Oddsson lék best ís-
lendinganna á. 69 höggum, þremur
undir pari en Örn Ævar Hjartarson
kom honum næstur á pari. Ómar
Halldórsson og Þorkell Sigurðsson
léku á einu yfir pari, Birgir Haralds-
son á 75 og Ottó Sigurðsson 77.
Ágæt spilamennska íslenska liðsins
dugði aðeins til þrettánda sætis því
að sögn fararstjóra var spila-
mennska liðanna almennt mjög
góð. Sá sem lék best allra í gær
var Walesbúi en hann fór hringinn
á 66 höggum, 6 undir pari.
Góð spila-
mennska
dugði
KORFUKNATTLEIKUR
Grikkimir sendir
heim frá Atlanta?
Eftir ólæti og dónalega fram-
komu gríska Ólympíuliðsins
í körfuknattleik í flugvélinni,
sem flutti leikmenn frá Aþenu til
New York í gær, hafa stjórnmála-
menn í Grikklandi nú krafist þess
að liðið verði kallað heim frá
Atlanta í snarhasti og því meinuð
þátttaka á Ólympíuleikunum.
Orsök vandræðanna mun vera
sú að leikmönnum var bannað
að reykja um borð í flugvélinni
en virtu þeir bannið að vettugi
og sýndu flugfreyjum ruddaskap
og böfðu í frammi ofsafengna
hegðun. Flugstjóri vélarinnar brá
þá á það ráð að biðja um að
öryggisverðir tæku á móti gríska
liðinu við komuna til New York
og var það aðeins fyrir tilstuðlan
gríska sendiherrans þar í borg
að ieikmenn sluppu við hand-
töku.
Iþróttamálaráðherra Grikk-
lands lítur málið mjög alvarleg-
um augum og krefst þess að lið-
ið verði kallað heim undir eins
þannig að nú gæti farið svo að
Grikkir verði fjarri góðu gamni
í körfuknattleikskeppni Ólymp-
íuleikanna, sem hefjast síðar í
þessum mánuði.
KNATTSPYRNA: ERTÍMIKR-INGA KOMINN? / C4