Morgunblaðið - 11.07.1996, Blaðsíða 1
FERÐAIVIÁL
Flugleiöir hefja
nýja sókn /4
FYRIRTÆKI
Hugbúnaöarsala
E]S tekur flugið /6
SJÁVARLEÐUR
Hafin þróun á
þorskleöri /8
VIDSKIFn MVINNULÍF
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 1996 BLAÐ U
Ríkisbréf
í útboði Lánasýslu ríkisins á rík-
isbréfum í gær bárust 37 tilboð,
alls að fjárhæð 1.107 miHjónir
króna, í óverðtryggð bréf til 3
til 5 ára. Tilboðum var tekið í
ríkisbréf til 5 ára fyrir 417 millj-
ónir króna að nafnverði og 3 ára
bréf fyrir 30 milljónir. Meðal-
ávöxtun samþykktra tilboða í 5
ára ríkisbréf er 8,84% og í 3 ára
bréf 7,49%.
Kjötkaup
Kjötumboðið hf. hefur keypt AM
kjöt á Reyðarfirði ásamt slátur-
leyfishöfum á Austurlandi, Líf-
eyrissjóði Austurlands og Reyð-
arfjarðarhreppi. Nýir eigendur
AM lgöts hafa gefið fyrirtækinu
nafnið Kjötkaup.
Hugbúnaður
Skrá um íslensk fyrirtæki í hug-
búnaðargeiranum er komin út á
ensku. Fjárfestingarskrifstofa
íslands, Samtök iðnaðarins, Sam-
tök íslenskra hugbúnaðarfyrir-
tækja, Aflvaki hf. og Utflutnings-
ráð stóðu saman að útgáfunni
og er hægt að fá eintök hjá Ut-
flutningsráði.
SÖLUGENGIDOLLARS
GRIKKLAND <<> 9,1%
ITALiA
4,4%
SPANN
3,8%
PORTUGAL
| | ESB-ríki
Önnur ríki
1,0% NOREGUR
1,0% SVlÞJÓÐ
0,8% FINNLAND
0,7% SVISS
0 0,2% JAPAN
Meðaltal ESB-ríkja
2,7%
Viðskiptalönd íslands*] 2,0%
Verðbólga
í nokkrum
ríkjum
Hækkun
neysluverðsvísitölu frá
maí 1995 til maí 1996
Sjá nánar frétt bls. 2D
' Mæld með gengisvog Seðlabankans
3 mánaða breyting -
-12 mánaða breyting
a—-ji.—, 1
II Verðbólgan á íslandi 1994-júlí 1996
Vísitala neysluverðs
l’94 ' H'94 ' lll'94 ' IV'94 l’95 ' ll’95 ' lll'95 ' IV’95 l’96 ' H'96 '
Marel inn á
hanclarískan
kjötmarkað
NÝTT dótturfyrirtæki Marels hf.
tekur til starfa um næstu mánaða-
mót. í árslok 1995 stofnaði Marel
dótturfyrirtækið Marel USA í
Bandaríkjunum. Sigurpáll Jónsson,
deildarstjóri tæknideildar Marels,
hefur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri Marels USA.
Helstu verkefni nýja fyrirtækis-
ins er markaðssetning á búnaði frá
Marel fyrir bandarískan kjötiðnað.
Þar á meðal eru vogir, flokkunar-
búnaður, skurðarvélar og fram-
leiðslueftirlitskerfi.
Marel USA mun auk þess veita
Johnson Food Equipment, banda-
rísku umboðsfyrirtæki Marels í
búnaði fyrir kjúklingaiðnað, tækni-
legan stuðning bæði hvað varðar
sölumál og þjónustu við notendur
tækja í kjúklingaiðnaði. Pétur Rafn
Pétursson hefur starfað hjá þeim
frá síðasta ári og haft umsjón með
tæknilegum stuðningi við neytend-
ur en kemur til starfa hjá Marel
USA um næstu mánaðamót.
Kansas miðsvæðis fyrir
kj ötmarkaðinn
Nýja starfið leggst vel í Sigur-
pál, „Markaðurinn lítur vel út og
við höfum náð góðri fótfestu í
kjúklingaiðnaðinum þessi þrjú ár
sem við höfum selt til Bandaríkj-
anna í gegnum umboðsaðila okkar
á þeim markaði.
Með Marel USA styrkjum við
þá starfsemi og bætum kjötiðnaðin-
um við, sem er mjög frábrugðinn
kjúklingaiðnaðinum. Okkar fram-
leiðsla á að henta vel þrátt fyrir
að vera upprunalega hönnuð fyrir
fiskiðnað, því henni hefur verið
breytt þannig að hún nýtist kjötiðn-
aðinum.
„Höfuðvígi kjötiðnaðarins er í
fylkjunum í kringum Kansas. Þess
vegna verður Marel USA með skrif-
stofu þar. Auk þess eru höfuðstöðv-
ar umboðsfyrirtækis okkar á svip-
uðum slóðum.
Bandarískur kjötiðnaðurinn er
að mörgu leyti þægilegri til mark-
aðssetningar en sá evrópski. Hann
er mjög stór, svipaðar fram-
leiðsluaðferðir og neysluvenjur og
eitt tungumál sem allir skilja. Ef
vel gengur á þeim bandaríska þá
bætum við Evrópumarkaði við.“
Þriðja dótturfyrirtækið
Marel USA er þriðja
dótturfyrirtæki Marels hf. Hin selja
framleiðslu Marels í fiskiðnaði.
„Stofnun Marels USA kemur til
vegna þess að við hjá Marel teljum
hagsmunum okkar best borgið með
eigin fyrirtækjum í stað umboðs-
aðila. Slík fyrirtæki einbeita sér að
sölu á eigin framleiðslu í stað þess
að hjá umboðsaðilum dreifist at-
hyglin á fleiri framleiðendur. Auk
þess er miklu frekar hægt að virkja
þau til þess að aðlaga sig að vöru-
þróun en umboðsaðila,“ segir
Sigurpáll að lokum.
■ Útflutningur/B2
kir og þarfir sparii} áreigenda eru mismunar
Það sem hentar einum lientar ekki öðrum.
Við leggium metnað okkar
í að finna réttu leiðina fyrir þig
Verðbréfafulltrúar VIB
eru starfandi i útibúum lslandsbanka við
Lœkjargötu, Háaleitisbraut og Suðurlands-
braut, i Kringlunni, og á Kirkjusandi, og
utan Reykjavíkur í Keflavík, Vestmanna-
eyjum, Hafnarfirði, á Akureyri og á
Selfossi.
Á myndinni er Guðný Eysteinsdóttir,
verðbréfafulltrúi í útibúi íslandsbanka
við Suðurlandsbraut.
VERÐBREFAMARKAÐURISLANDSBANKA HE.
• Aðili að Verðbréfaþingi íslands •
Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sími: 560-8900. Myndsendir: 560-8910.