Morgunblaðið - 12.07.1996, Side 1
mndims
■ MINNINGAR ÞIMGSVEIMA/2 ■ LÆRA BUTASAUM AISLANDI/3
■ VELLÍÐAIM í STEIKJANDI HITA/6 ■ ERU GLÆSIMENMIN EFTIR-
SÓKNARVERÐ7/6 ■ UMDEILDAR AUGLÝSINGAR UM TÖLVULEIKI/8
Morgunblaðið/Ásdís
SYSTURNAR og flugfreyjurnar
Lilja, Berglind og Erna
Sigurðardætur.
Systkina-
tríó í sömu
atvinnu-
grein
ÞEGAR kemur að því að velja sér
starfsvettvang eru möguleik-
arnir nær óþrjótandi. Það er
því líklega fremur sjaldgæft
að systkini velji sér sams
konar ævistarf. Slikt gerist
þó og Hulda Arnljótsdóttir,
námsráðgjafi, segir það bera
vott um mikla samstöðu og sam-
hygð innan fjölskyldu þegar
systkini ráðast til samskonar
starfa.
Daglegt líf hafði spurnir af
þremur systrum sem allar starfa
sem flugfreyjur, þremur
bræðrum sem eru vörubílstjórar
og þremur bræðrum
sem eru læknar.
Hvítar tennur
með öllum mögulegum ráðum
UNDANFARIN ár hefur það færst í vöxt að fólk
láti lýsa tennurnar sínar svo þær verði hvítari.
Kristín Heimisdóttir, tannlæknir, segir ástæðuna
kannski fyrst og fremst þá að yfir heildina séð sé
tannástand fólks mun betra nú á tímum, en oft
áður, og því sé fólk farið að líta á heilbrigðar tenn-
ur sem sjálfsagðan hlut. Það velti því meira fyrir
sér hvernig tennurnar líti út, til dæmis hvort þær
séu nógu hvítar. Kristín nefnir einnig að fyrir
nokkrum árum hafi komið ný og betri efni á mark-
aðinn til að lýsa tennur og hafi það ekki síður
áhrif á það hve margir sækist eftir hvítari tönnum.
Kristín upplýsir að algengast sé að lýsa tennur
með því að smíða eins konar plasthlíf eða svokall-
aða skinnu yfir tennur í efri og neðri góm, sem
fólk sofi síðan með á næturnar. „A hverju kvöldi
áður en farið er að sofa er sett ákveðið efni í skinn-
una sem veldur því að tennumar lýsast. Þetta er
endurtekið í viku og jafnvel lengur ef þess gerist
þörf. Meðferðin gefur hins vegar ekki alltaf varan-
legan árangur og gæti þurft að endurtaka hana
öðru hveiju,“ segir Kristín. Hún bætir því við að
lýsing tanna geti stundum haft aukaverkanir í för
með sér, til dæmis geti tennur orðið viðkvæmari
fyrir hitabreytingum, en það vari yfirleitt ekki
nema í nokkra daga eftir lýsingu.
Frá 10 þúsund krónum
Kristín segir að margar ástæður séu fyrir því
að tennur dökkni í fólki. „Fyrst og fremst dökkna
tennur með aldrinum, en einnig geta allir dökkir
drykkir, eins og til dæmis kaffi eða te valdið því
að tennur verða brúnni. Þá hafa reykingar mjög
slæm áhrif á tennur og lit þeirra," segir Kristín.
Það er misjafnt hvað kostar að láta lýsa á sér
tennurnar, en hjá tannlæknastofum fengust þær
upplýsingar að meðferðin kosti frá tíu þúsund krón-
um. ■