Morgunblaðið - 13.07.1996, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1996
Kolyvanov
til Bologna
RÚSSNESKI miðheijinn Igor
Kolyvanov hefur gengið til
liðs við ítalska 1. deildarliðið
Bologna. Kolyvanov, sem hef-
ur leikið fimm sl. keppnis-
tímabil með Foggia, fær 38,4
millj. ísl. kr. í árslaun hjá fé-
laginu. Hann mun leika við
hliðina á sænska landsliðs-
manninum Kennet Anders-
son, sem kom til Bologna frá
Bari fyrir stuttu.
Backley er
á góðu róli
BRESKI spjótkastarinn Steve
Baekley, sem hefur verið
meiddur á hásin, er greinilega
búinn að ná sér og er á góðu
róli. Hann varð sigurvegari í
spjótkastkeppni á stigamóti á
Crystal Palace-vellinum í
London í gærkvöldi - kastaði
spjótinu 80,43 m, 83,10 m,
80,50 m og 85,58 m. Ný-Sjá-
lendingurinn Gavin Love-
grove varð sigurvegari, 87,42
m og Þjóðveijinn Andreas
Linden þriðji, 82.12.
Michael Green frá Jamaíka
vann Linford Christie á sjón-
armun í 100 m hlaupi, 10,26
sek. Þetta er i annað sinn á
þremur dögum sem Christie
tapar á sjónarmun.
■ Merlene Ottey frá Jamaíka
náði besta tíma ársins í 200 m
hlaupi kvenna á móti í Sviss
í gærkvöldi, 22,09 sek.
John God-
ina kastaði
kúlunni
21,25 m
BANDARÍSKI kúluvarparinn
John Godina varpaði kúlunni
21,25 m á móti á Drake-leik-
vellinum í Westwood í Kali-
forniu á fimmtudaginn. Hann
jafnaði sinn besta árangur í
ár, sem hann setti innanhúss.
Landi hans, Steve Albert,
varð annar með 19,83 m og
Bretinn Sean Pickering þriðji,
með 18,83 m. Godina náði
góðum köstum — 20,84,20,57,
21,03,20,50,21,12 og 21,25 m.
LAUGARDAGUR 13.JULI
SUND / OL í ATLANTA
BLAÐ
Reuter
Ólympíumeistarinn í 1.500 metra skriðsundi, Ástralinn Kieren Perkins, er kominn
til Atlanta með það að markmiði að verja titil sinn. Perkins, sem setti glæsilegt
heimsmet í greininni í fyrra, hefur undirbúið sig af krafti fyrir leikana síðustu daga
og notar hann m.a. til þess þetta sérstaka tæki, sem sést hér að ofan, en það
sendir reglulegar upplýsingar um tíðni hjartsláttar Perkins til þjálfara hans.
KORFUKNATTLEIKUR
Fellibylur-
inn Berta
plagar Pétur
og Sigurð
Þeir reyna í síðasta sinn
við Ólympíulágmörkin á
móti í La Grange
Fellibylurinn Berta hefur sett strik í reikninginn
hjá íslensku frjálsíþróttamönnunum, sem eru
við æfingar í Athens, fyrir utan Atlanta í Banda-
ríkjunum. Pétur Guðmundsson, kúluvarpari, og
Sigurður Einarsson, spjótkastari, ætluðu að
freista þess að ná ÓL-lágmörkunum í Norður-
Karólínu í dag, en mótinu hefur verið frestað
vegna Bertu. „Það er mjög slæmt að missa þetta
mót,“ sagði Gísli Sigurðsson, þjálfari íslenska
ólympíuhópsins. „Pétur og Sigurður taka þátt í
öðru móti, ásamt Jóni Arnari Magnússyni, sem
fer fram í La Grange fyrir sunnan Atlanta. Mót-
ið er ekki nægilega sterkt, þannig að við verðum
að einbeita okkur við að ná upp sem bestri
stemmningu. Þetta er síðasta tækifæri þeirra
Péturs og Sigurðar til að sanna sig. Sigurður fer
ekki til Bahamaeyja, eins og fyrirhugað var, þar
sem hætt var við að keppa i spjótkasti þar -
aðeins þrír til fjórir keppendur voru skráðir til
leiks. Guðrún Amardóttir keppir aftur á móti þar
í 400 m grindahlaupi.“
Pétur verður að kasta kúlunni 19,50 m og Sig-
urður spjótinu 79 m til að tryggja sér rétt til að
keppa fyrir hönd íslands á OL í Atlanta, sem
hefjast eftir viku.
Opna breska í beinni
SJÓNVARPSSTÖÐIN Sýn verður með beinar
útsendingar frá opna breska meistaramótinu í
golfi um næstu helgi. Mótið er eitt það stærsta,
sem haldið er ár hvert og taka þar þátt marg-
ir af frægustu kylfingum heims. Lýsing verður
I höndum þeirra Páls Ketilssonar og Úlfars
Jónssonar en útsendingar hefjast klukkan
12:00 bæði á laugardag og sunnudag.
Þá hefur Sýn gert samning við Knattspyrnu-
samband íslands og Samtök 1. deildarfélaga
um beinar útsendingar frá leikjum i deildinni
og verður fyrsti leikurinn, sem sýndur verður
beint, úr 9. umferð Islandsmótsins um næstu
helgi.
Shaq O’Neal til Lakers?
Larry Johnson hugsanlega á förum til Knicks í skiptum fyrir Mason og Lohaus en Jordan fer hvergi
Nýjustu fregnir frá Bandaríkj-
unum herma að hinn geysi-
öflugi miðheiji Orlando Magic,
Shaquille O’Neal, sé að öllum líkind-
um að flytja sig yfir landið þvert
og endilangt, alla leið til Los Angel-
es, og hyggist þar gaiiga til liðs
við hið fornfræga félag L.A. Lak-
ers. Shaquille, sem leika mun með
bandaríska „Draumaliðinu" á
Ólympíuleikunum í Atlanta síðar í
þessum mánuði, er 216 cm á hæð
og 135 kíló og mun hann koma til
með að fylla skarð Júgóslavans
Vlade Divac hjá Lakers, en Divac
er nú farinn til Charlotte Hornets
í skiptum fyrir nýliðann Kobe Bry-
ant.
í gær rann upp sá dagur, sem
félög í NBA-deildinni mega bytja
að ræða sín á milli um kaup og
sölur á leikmönnum og telja menn
í Bandaríkjunum næsta öruggt að
mikið verði um hræringar í deild-
inni á næstu dögum og vikum.
Ef af samningi Shaqs við Lakers
verður, sem talið er mjög líklegt,
mun hann að öllum líkindum verða
fyrsti maðurinn í sögu körfuboltans
til að skrifa undir samning upp á
100 milljónir dollara, sem eru litlir
6,7 milljarðar íslenskra króna.
Af öðrum frægum köppum, sem
að öllum líkindum eru á faraldsfæti
um þessar mundir, má nefna Charl-
es Barkley, sem verið hefur í her-
búðum Phoenix Suns síðastliðin
Qögur ár. Hann er nú sagður vera
að ganga til liðs við Hakeem
Olajuwon og félaga í Houston Rock-
ets og verður Houston-liðið þá án
efa firnasterkt á komandi keppnis-
tímabili. Þá munu samningaviðræð-
ur milli New York Knicks og Charl-
otte Hornets um leikmannaskipti
komnar á lokastig, en sagt er að
Anthony Mason og Brad Lohaus
séu á förum frá Knicks til Hornets
í skiptum fyrir hinn gríðarlega
sterka Larry Johnson.
Fréttir frá Bandaríkjunum bárust
hins vegar þess efnis í gærkvöldi
að meistarar Chicago Bulls hefðu
lagt drög að eins árs samningi við
ókrýndan konung körfuknattleiks-
ins, Michael Jordan, og það er því
ljóst að Jordan verður um kyrrt hjá
Chicago í að minnsta kosti eitt ár
til viðbótar.
Margt þykir nú benda til þess lið
NBA-deildarinnar verði þó nokkuð
öðruvísi skipuð á komandi keppnis-
tímabili en undanfarin ár og velta
menn því óneitanlega fyrir sér hvað
verði um þær stórstjörnur, sem
höfðu lausa samninga eftir síðasta
keppnistímabil, kappa á borð við
Gary Payton, Reggie Miller, Alonzo
Mourning og Juwann Howard.
Hvort þessir strákar munu flytja
sig um set fyrir næsta keppnistíma-
bil eins og svo margir aðrir leik-
menn NBA-deildarinnar, kemur
væntanlega í ljós á næstunni, en
eitt er víst, að körfuknattleiksunn-
endur um heim allan verða að byija
að venja sig við að sjá margar af
uppáhaldsstjörnunum sínum klæð-
ast keppnistreyjum annarra liða en
þær eru vanar.
KAPPAKSTUR: A HRAÐFERÐ MEÐ BRETAIMUM DAMON HILL / C4
\
f