Morgunblaðið - 14.07.1996, Side 1
BÍLL SEMHEYRLR OG SÉR - LIÐVAGNÍHA UST - LAGUNA LANG-
BAKUR FRÁ RENA ULT - NÝTTHEMLAKERFIFRÁ SCANIA -
NÝR LT SENDIBÍLL - PEUGETO206 SMÍÐAÐUR ÍBRETLANDI
Skoda Felicia
Aðeins kr. 849.000,-
10Ol
MAMTlBIH AYCCIST A HIHMNMI
Tryggðu þér nýjan
fjölskyldubíl núna.
Þýsk gæði á ótrúlega
lágu verði.
Nýbýlavegur 2
Síml: 554 2600
1996
SUNNUDAGUR14. JÚLÍ
BLAÐ
Nýr LT sendibíll
Irá VW í haust
NÝR sendi- og farþegabíll frá Volkswagen, LT, verður fáanlegur
hjá umboðinu, Heklu hf., með haustinu en LT er sambærilegur
við Sprinter frá Mercedes Benz enda er búkur bílsins samvinnu-
verkefni þessara þýsku bílaframleiðenda. Marinó Björnsson sölu-
stjóri hjá Heklu segir að LT bíllinn sé ívið stærri og burðarmeiri
en Transporter og því sé hann góð viðbót við sendibílalínu
Volkswagen.
LT sendibíllinn verður frumsýndur á bílasýningu í Hannover í
haust og kemur hingað til lands fljótlega eftir það, líklega í októ-
ber. Hann verður í fyrstunni fáanlegur með 2,5 lítra, fimm strokka
og 102 hestafla dísilvél og frá byrjun næsta árs með 2,8 lítra,
fjögurra strokka og 125 hestafla dísilvél. LT er fáanlegur í lengd-
unum 4,83 m með þriggja metra hjólhafi, 5,58 m með 3,55 m
hjólhafi og 6,53 m og er hjólhafið þá orðið 4,02 metrar. LT bíllinn
e'r afturdrifinn. Flatarmál flutningarýmis er frá 4,3 og uppí 7
fermetrar og rúmmálið frá 7 og uppí 13,4. Burðargetan er frá
tæpu tonni upp í 1,5 tonn. Þá er hægt að taka hann með sætum
og útbúa hann sem 9 manna bíl auk farangursrýmis og Marinó
Björnsson segir hann líka vel fallinn til að innrétta eftir eigin
höfði kaupenda, t.d. þeirra sem vilja fá smárútu. Verð liggur
ekki fyrir ennþá.
Jaguar á móti BMW
TÖLVUTEIKNIN G þessi af
Jaguar sýnir hvaða hugmyndir
fyrirtækið hefur um nýjan,
aifturhjóladrifinn bíl sem ætlað
er að keppa við BMW 3- og
5-línuna. Bíinum, sem kallast
nú X200, er einnig ætlað að
fara inn á þann markað sem
Mercedes-Benz C- og E-línan
keppir á. Áformað er að selja
X200 á markað 1998.
Nýlt rafeindo-
hemlakerfi
Scania
SCANIA hefur hannað nýja gerð
rafeindahemlakerfis fyrir vöruflutn-
ingabíla sem talsmenn fyrirtæksis-
ins segja að muni auka verulega
umferðaröryggi. Kerfið byggist á
rafeindastýrðum diskahemlum á öll-
um hjólum dráttarbílsins sem stýrir
nákvæmlega hemlunarátakinu á
hvert hjól og eykur viðbragðsflýtinn
og tilfinningu bílstjórans fyrir
hemlafetlinum.
Scania segir að kerfið bjóði upp
á meiri hægingu og skemmri
stöðvunarvegalengd en hefðbundinn
hemlabúnaður. Scania kynnti bún-
aðinn á umferðaröryggisráðstefnu í
Södertalje í Svíþjóð í vikunni.
Kerfið var þróað í samvinnu Scan-
ia og Bosch í Þýskalandi. Það verð-
ur fyrst kynnt í nýrri 4-línu Scania
í október nk. Scania segir að nýja
hemlakerfið minnki stöðvunarvega-
lengdina um sjö metra sé bílnum
ekið á 80 km hraða á klst. fullhlöðn-
um. Auk þess á kerfið að auðvelda
bílstjóranum að stjórna bílnum af
mikilli nákvæmni við hemlun, jafn-
vel við slæmar aðstæður.
Snemma á næsta ári býður Scan-
ia einnig öryggisbelti sem er byggt
í bílsætin. Óryggisbeltin verða
staðalbúnaður í bíla á Evrópumark-
aði og sem staðalbúnað verður einn-
ig hægt að fá beltastrekkjara og
líknarbelg í stýri.
Framstuðari Seania langflutn-
ingavörubíla er hannaður sem
árekstravörn fyrir fólksbíla. Stuðar-
inn er hafður í sömu hæð og stuðar-
ar á hefðbundunum fólksbílum.
Prófanir Scania hafa leitt í ljós að
þessi búnaður hefur tilætluð áhrif
þegar fóiksbíl er ekið á kyrrstæðan
vörubíl á 60 km hraða á klst.
...oröaðu þaö við Fálkann
Þekking Reynsla Þjónusta
FÁLKINN
SUOURUNDSBRAUT 6,108 REYKJAVIK, SlMI; 881 4070. FAX
...