Morgunblaðið - 16.07.1996, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 16.07.1996, Qupperneq 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR • Prentsmiðja Morgunblaðsins Þríðjudagur 16. júlí 1996 Blað C Bilaðar skólplagnir BILAÐAR skólpleiðslur í grunni eiga eftir að angra húseigendur meira og meira á næstu árum, segir Sigurður Grétar Guð- mundsson í þættinum Lagna- fréttir. f skólplögnum, yfir 40 ára gömlum, er oft margt farið að gefa sig. /17 ► Skjólveggir og sólpallar SÓLPALLAR með skjólveggj- um eru unaðsreitir og gróður dafnar betur í görðum, þar sem skjólveggir eru settir upp, segir Bjarni Ólafsson í þættinum Smiðjan. Þar er fjallað um smíði sólpalla og skjólveggja í máli og myndum. / 22 ► Ú T T E K T Eldhús- innréttingar ELDHÚSIÐ hefur verið í stöðugri þróun, einkum á síðari árum. Nú er lögð meiri áherzla á en áður, að innréttingin sé þægileg í notkun. Kemur þetta fram í viðtali Guðrúnar Guðlaugs- dóttur við Guðbjörgu Magnús- dóttur innanhússarkitekt. — Eldhús er að mínu viti vinnustofa en ekki stáss- stofa, segir Guðbjörg. — I sumum tilvikum eru við- kvæmir viðir notaðir í borð- plötur í eldhúsum. Slíkt ber að varast. Það gengur ef til vill, þegar ein manneskja annast eldhússtörfín, en eins og þróunin hefur orðið, er þetta óheppilegt. Heimilisfólk allt, þar með tal- in börn, tekur nú fullan þátt í eldhússtörfum, svo sem matar- gerð af ýmsu tagi. Til þess þarf að taka tillit, þegar efni eru val- in í innréttingar. Þær þurfa að þola misjafna umgengni. Fólk vill eldhús, sem býður upp á möguleika á meiri samvinnu en áður hefur tíðkazt. Nú er lögð mikil áherzla á, að fletir á vinnu- borðum séu rúmir, þannig að fleiri en einn geti athafnað sig þar. Það nýjasta eru svokallaðar vinnueyjar, sem fleiri en einn geta staðið við í einu og unnið hlið við hlið við undirbúning máls- verðar. Að mati Guðbjargar mætti gefa eldhúsinu meira rými við hönnun húsa, en yfirleitt er gert nú. /16► Sveiflur í ávöxtunar- kröfu húsbréfa T ALSVE RÐ AR sveiflur hafa ver- ið í ávöxtunarkröfu húsbréfa á und- anförnum misserum. Síðastliðið haust fór hún ört lækkandi, en í des- ember tók hún að hækka á ný og komst í 5,90% um miðjan janúar. I febrúar lækkaði hún nokkuð, en hækkaði síðan að nýju. I byi’jun apr- íl fór hún svo aftur ört lækkandi og komst niður í 5,54% í apríllok. Fyrstu vikuna í maí fór ávöxtun- arkrafan svo aftur hækkandi og 24. maí komst hún í 5,67%. Eftir það fór hún aftur lækkandi og komst niður í 5,38% í júní, en lægri hefur ávöxtun- arkrafan ekki verið á þessu ári. Það sem af er júlí hefur hún farið hækk- andi á ný og var á föstudag komin í 5,50%. Lækkuií1 ávöxtunarkröfunnar í júní má m. a. rekja til tilkynningar stjómvalda um innlausn á A-flokk- um spariskírteina, en margir fjár- festar töldu líklegt, að vextir á lang- tímabréfum gætu lækkað við inn- lausnina. Vitað var, að við innlausn spari- skírteinanna myndi mikið íjármagn koma inn á markaðinn, sem leita myndi í skuldabréf. Fjárfestar eins og lífeyríssjóðir og aðrir reyndu þá að tryggja sér skuldabréf til lengri tíma, þar með talin húsbréf. Þessi þróun leiddi til lækkunar á ávöxtun- arkröfu langtímabréfa, þar með talið húsbréfa. Hækkun ávöxtunarkröfunnar undanfarna daga má m. a. skýra með því, að fjárfestar hafi þegar verið búnir að ráðstafa hluta þeirra spari- skírteina, sem var í innlausn, til kaupa á lengri skuldabréfum. Einnig hefur aukizt framboð annarra bréfa, sem keppa við húsbréf, t. d. skulda- bréfa fjárfestingarlánasjóða og sveitarfélaga. Líkur eru á að um tímabundna hækkun ávöxtunarkröfunnar sé að ræða. Erfitt er samt að fullyrða nokkuð um það með vissu, hvort ávöxtunarkrafan muni hækka eða lækka á næstunni, fyrr en markað- urinn hefur jafnað sig eftir innlausn spariskírteinanna. Avöxtunarkrafa* húsbréfa júlí 1995 til 12. júlí 1996 5,3 1995 ' ávöxtunarkrafa við kaup 5,2 |----1 ~\------1---1----Þ 1996 I-----------1-----------1-----------1-----------1-----------1------------1 JASONDJ FMAMJ J E I G N A L Á N 5KAIMDIA VILTU SKULDBREYTA EQA STÆKKA VIÐ ÞIG? Byggðu á Fasteignaláni Skandia Kostir Fasteinnalána Skandia Lánstími allt að 25 ár. Hagstæð vaxtakjör. Minni greiðslubyrði. Stuttur svartími á umsókn. Dæmi um mánaðarlegar aíborganir af 1.000.000 kr. Fasteignaláni Skandia* M-xtir(%) lOár 15 ár 25 ár 7,0 11.610 8.990 7.070 7,5 11.900 9.270 7.500 8,0 12.100 9.560 7.700 Miðað cr við jafngrciðslulán. *Auk vcrðbóta Skandia LAUGAVEGI 17 0 • SÍMI 5-4 0 50 BO • FAX 540 50 B1

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.