Morgunblaðið - 17.07.1996, Blaðsíða 1
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ1996
Viðtal
3 Karl Sigurgeirs-
son fram-
kvæmdastjóri
á Hvammstanga
Aflabrögð
4 Aflayfirlit og
staðsetning
fiskiskipanna
Markaðsmál
6 Indverjar reyna
að laga sig að
markaðslögmál-
unum
Fiskmarkaðir
g Mikil söluaukn-
ing á innlendu
fiskmörkuðunum
UNNIÐ í RÚSSAFISKINUM
• FISKUR frá Rússlandi, mest
heilfrystur, hefur haidið uppi
stöðugri atvinnu í frystihúsi
Tanga hf. á Vopnafirði undanfar-
in misseri. Framleiddir eru sér-
flokkaðir lausfrystir bitar úr
flökunum, sem seldir eru vestur
um haf með góðum árangi, að
sögfn Friðriks Guðmundssonar,
framkvœmdastjóra Tanga.
Allt stefnir í eitt bezta
aflaár Islandssögunnar
I FISKAFLI okkar af ísland-
Aflinn á fiskveiðiárinu SlíSSÍS
um 1,6 milljónir tonna
ustu mánaðamót höfðu alls 1.404.000 tonn borizt á land. Inni í þessum tölum
er ekki veiðin úr norsk-íslenzka síldarstofninum og af Flæmska hattinum.
Sé hún tekið með er heildaraflinn orðinn nærri 1,6 milljónir tonna og stefnir
því eitt af beztu aflaárum sögunnar. Frá áramótum er aflinn orðinn tæplega
1,2 milljónir tonna að meðtalinni síld og rækju utan lögsögu til síðustu mán-
aðamóta, en síðan þá hafa meðal annars veiðzt um 150.000 tonn af loðnu.
Mestur afli Íslendinga á einu ári er 1.752.256 tonn.
Samkvæmt bráðabirgðatölum
F'iskistofu hafa 150.000 tonn af þorski
veiðzt á fiskveiðiárinu, en 137.500
tonn á sama tíma í fyrra. Minna hef-
ur veiðzt af ufsa, ýsu og karfa, en
meira af flestum öðrum tegundum.
Miklu munar að mun meira veiddist
nú af úthafskarfa en í fyrra. Botn-
fiskafli alls er því orðinn um 409.000
tonn, en var 391.000 tonn í fyrra.
Rækjuafli heldur áfram að aukast og
var nú orðinn rúmlega 67.000 tonn á
móti 59.000 á sama tíma í fyrra. Síld-
veiði er svipuð en nú höfðu veiðzt
794.000 tonn af loðnu á móti 554.000
í fyrra.
Sé litið á aflann frá áramótum er
þróunin svipuð, loðnan stendur að baki
aukningunni, en lítils háttar aukning
er einnig á bolfiskveiðum í heild.
Aflinn í júní varð alls 43.600 tonn,
sem er 13.600 tonnum meira en í júní
í fyrra. Þorskaflinn varð rúm 10.000
tonn, litlu meira en í fyrra, en ýsuafl-
inn 4.170 tpnn, sem er mun meira en
í fyrra. Uthafkarfaflinn nú varð
13.300 tonn, en aðeins 2.500 í fyrra.
Þá er enn veitt meira af rækju en
árið áður.
Samkvæmt upplýsingum fiskistofu
er rækjuafli íslenzkra skipa á
Flæmska hattinum orðinn 7.600 tonn
frá áramótum. Afli af norsk-íslenzku
síldinni í maí og júní varð 166.500
tonn, en var 174.000 í fyrra.
Fréttir Markaðir
Ágætis
ýsuveiði
• ÁGÆTIS veiði hefur yer-
ið hjá ísfisktogurum víða
við landið að undanförnu.
Mjög góð ýsuveiði var á
Látragrunni í júní og togar-
ar hafa fengið góðan þorsk-
afla suðaustur af landinu.
Skipsljórar sem Verið
ræddi við segja að allstaðar
sé þorsk að fá en flestir
forðist hann vegna kvóta-
leysis./2
Dauft
í Smugunni
• ENN hefur þorskurinn
ekki gefið sig til í Smug-
unni en þar eru nú stödd
13 íslensk skip og 6 skip á
leiðinni þangað. Kristján
Elíasson, stýrimaður á
Sigli, segir aflabrögðin
mjög léleg og engan fisk
kominn á svæðið ennþá.
Siglir hefur verið í Smug-
unni í 10 daga og aflinn
orðinn að sögn Kristjáns
um 12 tonn./4
Humarvertíð
víða að ljúka
• HUMARVERTÍÐIN er nú
víðast hvar á síðasta snún-
ingi enda afli verið fremur
lélegur í sumar og margir
bátar hættir veiðum þó enn
sé um mánuður eftir af
vertiðinni. Humarkvótinn
var á þessu fiskveiðiári 594
tonn og er nú búið að veiða
um 58% kvótans eða um 344
tonn. Humarútflytjendur
gæti því vantað afurðir til
að fylla gerða samninga í
vertíðarlok. Allir eru þó
sammála um að vertíðin í
ár sé mun betri en sú í
fyrra./8
Frekari veiðar
á síld í óvissu
• SÍLDVEIÐUM lauk
snögglega í júní eftir góða
veiði. Skipin hafa síðan snú-
ið sér að loðnuveiðum með
góðum árangri. Litlar líkur
eru á að skipin fari á ný til
síldveiða, nema loðnuveið-
im bregðist. Hjálmar Vil-
hjálmsson, fiskifræðingur,
segir að tvær síldargöngur
hafi komið vesturyfir hafið
í vor en ekki sé tímabært
að spá til um hvort önnur
þeirra kunni að ganga að
landinu í haust ./8
Meira utan af
óunninni ýsu
• ÚTFLUTNINGUR á
ferskri ýsu hefur aukizt
verulega það, sem af er ári.
Fyrstu 6 mánuðina höfðu
4.148 tonn verið seld á
brezku uppboðsmörkuðun-
um í Hull og Grimsby. Það
er 37% aukning frá síðasta
ári, en þá höfðu 3.029 tonn
farið utan fyrri helming árs-
ins. Langmest af ýsunni fór
utan í maí, 1.093 tonn, eða
rúmur fjórðungar heildar-
innar. í júnímánuði fóru svo
933 tonn utan, sem er meira
en fjórfalt það sem fór utan
í sama mánuði 1995. Verðið
á ýsunni er að meðaltali 111
krónur á kíló, og hefur það
hækkað um 4%. Ysuverð á
innlendum fiskmörkuðum
er 79 krónur.
Ysa seld á fiskmörkuðum
tonnaf
slægðum fiskf
1200
800
600
Minna utan af
ísuðum þorski
Þorskur seldur á fisk-
ENGLAND mörkuðum
• SALA á óunnum þorski
til Bretlands hefur dregizt
saman um 18% á fyrri helm-
ingi þessa árs miðað við
sama tíma í fyrra. Nú hafa
717 tonn farið út, en 871 í
fyrra. Verðið hefur hefur
lækkað um 9% og er nú 123
krónur á kíló. Þessi útflutn-
ingur hefur dregizt öi*t sam-
an undanfarin ár, en salan
innan lands hefur á hinn
bóginn aukizt. Verð á þorsk-
inum hér heima er 90 krón-
ur á kíló./6