Morgunblaðið - 18.07.1996, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMM'L'UDAGUR 18. JÚLÍ1996 35
f «L
Wjegiré
lilþúmir-
[vamtutl koiturinn, Kfnainnih,
hffitfall Imrra cfM Ímaf e»a
aífrUa mal' bam*£nhv*én.bqftrmwfyrtrb£n
■
Örþuanur
þynnd en 20 mm
* Stór og bjartur fjögurra tínu
skjár fyrir íöiur, tákn og bókstafi
• Innbygyðurdiktaíónn
• 20 númera endurvslsrnjnnj
* Orkumæíír fyrír rafhlöðu á skiá
POSTUR OG SÍMI
SöfudeíW Ármúia 27. simi 550 7800
Þjöí'^jsturrxíóstöð Kxiriy!unn:: iúrrti 550 6691
, Þjónustumiðstöð i Kidqustrastj, «m: 550 ff>7-
L ogápöstogsimstöðvurriurnlarxja
n * # umboðið
Budweiser
á oÁJc
KÆi’r-
’-OMmunoo
ENDAÐU DÆMIÐ MEÐ RETTRI UTKOMU!
n W 9 umboðið
Budweiser
Suöurlandsbraut 4A
AÐSENDAR GREINAR
Stjórnarskrár- og mannréttíndabrot
gagnvart heyrnarlausum börnum
UMBOÐSMAÐUR
barna hefur nýverið
komist að þeirri niður-
stöðu að stjórnvöld hafi
bæði brotið ákvæði ís-
lensku stjórnarskrár-
innar og ákvæði alþjóð-
legra mannréttinda-
sáttmála með því að
hafa ekki viðurkennt
táknmál sem móðurmál
heyrnarlausra barna.
Þetta er þungur dómur
yfir menntamálaráðu-
neyti. Þar á bæ hefur,
eins og álit umboðs-
manns barna ber með
sér, ekki verið skilning-
ur á málefnum heyrn-
arlausra barna, ráðuneytið hefur
ekki virt sjálfsögð mannréttindi
barnanna og núverandi ráðherra
menntamála hefur fyrir nokkru tek-
ið ákvörðun sem hefur þær afleiðing-
ar að það táknmáisumhverfi sem
Vesturhlíðarskóli hefur reynt að
byggja upp á skólalóðinni heyrir
senn sögunni til. Það er að vonum
að umboðsmaður barna skori á
menntamálaráðherra „að sýna skiin-
ing og vilja í verki með því að eiga
frumkvæði að því að íslenskt tákn-
mál verði viðurkennt af löggjafans
hálfu sem móðurmál heyrnarlausra
barna á leikskóla- og grunnskóla-
aldri,“ eins og segir orðrétt í bréfi
umboðsmanns barna til ráðherra,
dags. 12. júní síðastliðinn.
Undirritaður sagði lausri stöðu
sinni sem skólastjóri Vesturhlíðar-
skóla 1. júní síðastliðinn þegar ljóst
var að táknmálsumhverfi skólans
yrði fórnað með því að veita öðrum
nemendahópi, sem ekki talar tákn-
Gunnar
Salvarsson
mál, aðgang að skóla-
lóðinni. Ofan í kaupið
bættist að ráðuneytið
kaus að sniðganga
skólastjórnendur við
þessa ákvarðanatöku.
Ég mat það svo að mér
væri ekki unnt að
starfa áfram við þær
aðstæður þegar mark-
mið í starfinu væru frá
mér tekin og þegar mér
væri sýnd sú lítilsvirð-
ing að hafnað væri
samráði um ákvarðanir
sem snerta starfs-
umhverfi skólans. Ég
lét þess jafnframt getið
greinargerð sem ég
sendi fjölmiðlum að nýting fyrrum
heimavistarhúsa skólans í þágu
heyrnarlausra væri eitt af lykilatrið-
um skólastefnunnar og ákvörðun
ráðuneytis opinberaði skilningsleysi
embættismanna þess . í málefnum
heyrnarlausra.
Menntamálaráðherra vísaði þeim
ásökunum á bug. Umboðsmaður
barna hefur staðfest fullyrðingu
mína. Menntamálaráðuneytið hefur
ekki einasta brotið gegn ákvæðum
mannréttindasáttmála heldur líka
stjórnarskrá landsins. Þegar um-
boðsmaður barna fellir slíkan áfellis-
dóm yfir íslensku stjórnvaldi verður
að svara því hver sé ábyrgur fyrir
slíkum mannréttindabrotum? Hver
ber ábyrgðina á því að slík mismun-
un var látin viðgangast árum sam-
an? Og síðast en ekki síst: Hvernig
ætlar menntamálaráðuneytið að
bregðast við áliti umboðsmanns
barna? Ætlar ráðuneytið enn að
fórna eina táknmálsumhverfi heyrn-
Það verður eftir því tek-
ið, segir Gunnar Sal-
varsson, hvernig ráð-
herra bregst við áliti
umboðsmanns barna.
arlausra barna á íslandi? Ráðherra
myndi sýna skilning sinn og vilja í
verki best með því að hætta við fyrir-
huguð áform og taka höndum saman
við þá sem vilja styrkja táknmálsum-
hverfi heyrnarlausra barna.
Móðurmálið er hveijum einstakl-
ingi dýrmætt. Þetta þarf ekki að
segja íslendingum. Móðurmál heyrn-
arlausra, íslenska táknmálið, er
heyrnarlausum jafn dýrmætt og ís-
lenskan okkur. Hvers vegna eigum
við íslendingar svo örðugt með að
skilja þá staðreynd? íslendingar eru
oft fljótir að fordæma mannréttinda-
brot sem framin eru í útlöndum.
Þegar vitnast um slík brot hér heima
vekur það minni athygli og þegar
barátta heyrnarlausra fyrir viður-
kenningu á táknmáli er nefnd í þessu
samhengi kjósa flestir að þegja
þunnu hljóði.
Það verður eftir því tekið hvernig
ráðherra bregst við áliti umboðs-
manns barna.
Höfundur er skólasijóri
Vesturhlíðarskóla.
SKÓVERSLUNIN
SKÓVERSLUNIN m
KRINGLUNNI
t^GLUGGIHN
9345 LAUGAVEGI 61 SÍMI 551 0655 REYKJAVÍKURVEGI 50 SÍMI 566 4275
SAG E M