Morgunblaðið - 18.07.1996, Síða 1
KNATTSPYRNA
Morgunblaðið/Golli
Þórir Sigfússon
tekur við þjálfun
Fylkismanna
FYLKISMENN gengxi í gærmorgun frá samning-
um við Þóri Sigfússon, fyrrum leikmann ogþjálf-
araKefiavíkur, þess efnis að Þórir taki við þjálf-
un Árbæjarliðsins en eins og kunnugt er var
Magnúsi Pálssyni, fyrrum þjálfara, sagt upp
stðrfum hjá félaginu á mánudag eftir slakt gengi
Fylkis það sem af er sumri.
Kolbeinn Finnsson, formaður knattspyrnu-
deiidar Fylkis, sagðist binda miklar vonir við
nýja þjálfarann og hafa trú á að hann muni ná
að rífa liðið upp úr þeirri lægð, sem það hefur
verið í imdanfarið og Þórir sjálfur sagðist hlakka
mikið til að takast á við nýja starfið. „Eg tel að
það búi mun meira i þessu liði en það hefur
verið að sýna í sumar og ég mun leggja mig
allan fram við að snúa liðinu f rétta átt. Það er
að visu alltaf erfitt að taka við liði í fallbaráttu
og því vafalítið mikil vinna framundan, en það
þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn og ég
hef fulla trú á að þetta fari allt að smella sam-
an,“ sagði Þórir í gær.
Fylkismenn verma um þessar mundir næstn-
eðsta sæti 1. deildar með aðeins þrjú stig, hafa
einungis unnið einn leik í deiidinni það sem af
er sumri - gegn Breiðabliki í fyrsta leik. Margir
eru þó sama sinnis og Þórir, að mun meira búi
í Fylkisliðinu en það hefur sýnt hingað til, og
verður því fróðlegt að fylgjast með því hvort
nýja þjálfarnum tekst að koma strákunum úr
Árbænum á réttan kjöl.
Norman gerir
325 milljóna
boltasamning
GOLFLEIKARINN Greg Norman ætti ekki að
verða í fjárhagsvandræðum á næstunni þótt
honum takist ekki að verða i efsta sæti á kom-
andi mótum. Ástæðan er sú að í gær gerði hann
samning við framleiðanda Maxfli golfbolta og
tryggir samningurinn honum 325 milljóna króna
tekjur fyrir það eitt að leika með nýrri tegund
bolta sem fyrirtækið er að setja á markað. Þessi
bolti heitir Maxfli XS.
„Ég vil ekkert segja um hvað ég fæ í minn
hlut fyrir samninginn, en eitt get ég þó sagt,
þetta er einn verðmætasti samningur sem ég
hef gert um ævina,“ sagði Norman. „Ljóst er
að ég mun leika með þessum bolta fram á næstu
öld,“ bætti hann við brosandi. „Ég lief verið að
prófa þennan bolta á þessu ári og Ijóst er að
hann er góður og högg mín með honum eru
lengri en áður.“
ÍAmeð
góða stöðu
fyrir seinni
leikinn
„ÉG er sáttur við sigurinn en
hefði viljað fá eitt mark í viðbót.
Þriðja markið hefði getað gefið
manni meiri ró fyrir síðari leik-
inn,“ sagði Guðjón Þórðarson,
þjálfari Skagamanna, eftir sigur-
inn á Sileks á Skipaskaga í gær-
kvöldi. Skagamenn unnu 2:0 og
myndin sýnir þegar Bjarni Guð-
jónsson kom Islandsmeisturun-
um á bragðið skömmu fyrir hlé.
Mihajlo Bibercic innsiglaði sigur-
inn í seinni hálfleik. Eyjamenn
standa einnig ágætlega að vígi
þrátt fyrir að hafa tapað 2:1 í
Eistlandi.
■ Leíkirnir/C4-C5
OLYMPIULEIKARNIR I ATLANTA
Pétur verður ekki með
PÉTUR Guðmundsson, kúluvarpari, kastaði 19,17 metra á móti í
Marrietta, útborg Atlanta, í gærkvöldi og missti þar með af tæki-
færi til að komast á Ólympíuleikana. Pétur náði a-lágmarki í fyrra
- lágmarkið er 19,50 metrar - en Ólympíunefnd íslands fórfram
á að hann næði því aftur í ár. Pétur er vonsvikinn og segist vilja
fá fleiri tækifæri til að ná lágmarkinu aftur. Af því virðist hins
vegar ekki verða. Júlíus Hafstein, formaður Ólympíunefndar ís-
lands, vildi ekki tjá sig um málið, sagði að það yrði rætt nánar f
dag og á morgun. Sigurður Einarsson spjótkastari átti einnig að
keppa á mótinu en ekki var komið að honum þegar fresta varð
keppni vegna vatnsveðurs. Mótinu verður haldið áfram á sunnu-
dag og þar verður Sigurður væntanlega á meðal keppenda.
Kúluvarp var aukagrein á mót-
inu í gær og keppendur tveir.
Pétur sigraði og setti vallarmet en
það var ekki nóg.
„Það- er annað mót
Skapti hér 21. júlí. Það
Haligrimsson sakar ekki að sækja
fráAtlanta Þ^ð til Ólympíu-
nefndar að keppa þá og reyna að
ná lágmarkinu. En ég viðurkenni
auðvitað að þetta er ekki nógu
gott ár hjá mér,“ sagði Pétur við
Morgunblaðið á mótsstað í gær-
kvöldi.
En hvað skyldi hann telja að
hái sér? „Ég er ekki nógu „sta-
bíll“; get átt góð köst og get átt
slæm. En ég er að koma til.“ Pét-
ur var meiddur í hægri mjöðm í
átta vikur í vor og síðan tóku
meiðsl í lófa kasthandar sig upp,
meiðsl sem gerðu honum lífið leitt
í fyrra, „en það er komið í lag.
Meiðslin skemma hins vegar fyrir
mér að þvi leyti að vegna þeirra
er ég ekki í nægilegra góðri
keppnisæfingu."
Pétur er óhress með íslensku
ólympíunefndina. „Samkvæmt
reglum Alþjóða ólympíunefndar-
innar verður að ná a-lágmarki á
tímabilinu 1. janúar 1995 til 16.
júlí 1996. Ég náði þessu lágmarki
tvisvar á þeim tíma - í hvort
tveggja skiptið í fyrra - en hef
lengst kastað 19,37 í keppni í ár.
En ef kúluvarpskeppnin á síðustu
Ólympíuleikum er skoðuð sést að
19,65 dugðu þá inn í úrslit pg
standardinn er lægri núna. Ég
spái því að 19,30 dugi að þessu
sinni þannig að ég er viss um að
ég ætti mikla möguleika á að ná
inn í úrslitin. Það þyrfti ekki nema
aðeins lengra kast en þetta í dag.
Svo þegar komið er í úrslit getur
allt gerst. Urslit í frjálsíþi-óttum
á Ólympíuleikum eru oft óvæ'nt.“
Tæknin er ekki nógu góð hjá
Pétri um þessar mundir en hann
segist þó hafa kastað kúlunni
19,73 metra í upphitunarkasti á
móti í La Grange sl. laugardag og
á sýningu, strax eftir þá keppni,
sveif kúlan 19,52 metra hjá hon-
um. En í keppni hefur hann ekki
náð því sem forráðamenn Óí og
FRÍ fara fram á.
j
KNATTSPYRNA: ÞORÐUR HAFNAÐITILBOÐIFRA FERENCVAROS / C8