Morgunblaðið - 19.07.1996, Qupperneq 1
V
1996
FÖSTUDAGUR 19.JÚLI
BLAD
OLYMPIULEIKARNIR
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Beðið og vonað
SIGURÐUR Einarsson og Pétur Guðmundsson bíða báðir enn og vona að þeir geti keppt á Ólympíuleikunum.
Shaq til Lakers
SHAQUILLE O’Neal einn af miðherjum „Drau-
maliðs 3“ og leikmaður Orlando Magic undanfar-
in fjögur ár undirritaði í gær sjö ára samning
við Los Angles Lakers. Fær hann tæplega 8
milljarða króna í laun fyrir þetta sjö ára tíma-
bil. Samningur hans er sá hæsti sem gerður
hefur verið við leikmann INB A-deildinni.
Guðrúnu gekk
illa á Bahama
GUÐRÚN Amardóttir keppti á móti á Bahama-
eyjum á mánudaginn og hljóp þá 400 m grinda-
hlaup á rúmum 58 sekúndum. Nákvæmari tími
fékkst ekki staðfestur í gær en þetta er langt
frá hennar besta. í slandsmet Guðrúnar frá því
í vor er 54,93 sek.
Guðrún kom ekki fyrr en í fyrrakvöld frá
Bahama og Morgunblaðið náði ekki í hana í
gær, áður en blaðið fór í prentun. Skv. upplýsing-
um blaðsins úr íslenska ólympíuhópnum voru
þjálfarar hópsins ekki mjög hissa þó henni gengi
ekki betur vegna andlegs áfalls sem hún varð
fyrir á sunnudaginn; hún lenti þá í árekstri og
virðist ekki hafa náð sér andlega áður en hún
hélt til Bahama. Ekið var á bíl sem Guðrún ók,
hún slapp hins vegar algjörlega ómeidd en varð
fyrir andiegu áfalli sem hún virðist ekki hafa
jafnað sig af áður en til keppninnar kom.
Jón Arnar æfði
fyrir setninguna
JÓN Arnar Magnússon, tugþrautarkappi, verður
fánaberi íslendinga við setningarathöfnina i
kvöld. Hún hefst kl. 20.30 að staðartíma, kl. hálf
eitt aðfararnótt laugardags að íslenskum tíma
og lýkur 17 mínútum yfír miðnætti þegar klukk-
an verður 17 mín. yfir fjögur á íslandi. Jón Arn-
ar hefur verið f borginni Athens, skammt norður
af Atlanta, undanfarið ásamt öðnim islenskum
f rjálsíþróttamönnum við æfíngar en kom til Atl-
anta í fjrradag til að æfa fyrir setningarathöfn-
ina.
Æfingin í fyrrakvöld stóð frá kl. 19 til mið-
nættis og faimst Jóni það full langt. Setningarat-
höfnin var æfð í heild og fánaberarnir biðu á
íþróttaleikvangi sem er við hlið Ólympíu vallar-
ins, eins og þeir gera í kvöld, þar tÚ kom að
þeim. Litlu munaði að fáninn færi inn á leikvang-
inn á undan Jóni; honum var skipað að bíða
eftir á hinum vellinum, siðan leið og beið og
rétt áður en ísland var kynnt kom í Ijós að ís-
lenski fáninn var löngu kominn á hinn staðinn.
Jón tók þvi á rás og náði að ganga með fánann
inn á völlinn eins og hann gerir i kvöld.
Sigurður lær annað tækifæri
Stefán Jóhannsson þjálfari gagnrýnir íslensku ólympíunefndina og FRÍ fyrir vinnubrögðin
Skapti
Hallgrímsson
skrífar frá
Atlanta
Sigurður Einarsson spjótkastari
tekur þátt í móti í Marriette,
útborg Atlanta, á sunnudaginn og
freistar þess að ná
lágmarkinu fyrir
Ólympíuleikana.
Sigurður ætlaði að
keppa á sama stað
í fyrrakvöld, þegar Pétur Guð-
mundsson kúluvarpari, keppti en
vegna veðurs var keppni hætt í
miðju móti. Eftir að þrumur og eld-
ingar höfðu hrellt keppendur og
áhorfendur um stund fór að helli-
rigna og á skammri stundu var allt
á floti á vellinum.
Pétur kastaði kúlunni 19,17
metra í fyrrakvöld og er úr leik.
Svo virðist a.m.k., en forráðamenn
Óí hér í Atlanta vildu raunar ekki
tjá sig um það mál í gær. Talið er
að hann muni jafnvel kasta aftur á
sunnudag, en enginn hefur viljað
leiða getum að því hvort Pétur fái
að keppa á ÓL nái hann að kasta
yfir lágmarkinu þá. Hann sagðist
hins vegar í fyrrakvöld vilja fá að
vita hjá Óí hvort hann ætti enn
möguleika, áður en hann tæki
ákvörðun um hvort hann keppti á
sunnudag. Það er aftur á móti mat
Óí og viðmiðunarnefndar Fijáls-
íþróttasambandsins (FRI) að rétt
sé að leyfa Sigurði að kasta á
sunnudag.
Gagnrýni
Pétur og Stefán Jóhannsson
þjálfari gagnrýna vinnubrögð ís-
lensku ólympíunefndarinnar gagn-
vart Pétri og Sigurði en þeir hafa
æft saman í Alabama. „Við vorum
báðir búnir að ná lágmarki og æfð-
um í allan vetur með leikana í huga.
Vorum í mjög erfiðum æfingum og
ætluðum að toppa núna á leikunum.
Svo voru allt í einu sett skilyrði um
að við yrðum að ná lágmarkinu
aftur. Við heyrðum það fyrst 3.
júlí að að „sambærilegur árangur“
eins og talað hafði venð um væri
„sami árangur". Stressið hefur því
verið mikið síðustu daga en ef við
hefðum vitað þetta hefðum við létt
æfingarnar miklu fyrr,“ sagði Pétur
við Morgunblaðið.
Stefán, sem þjálfað hefur Pétur
og Sigurð, hefur oft lýst því yfir
hve óhress hann sé með að honum
var ekki gert kleift að dvelja hjá
þeim ytra við æfingar í vetur, en
hann kom til þeirra fyrir fáeinum
dögum. „Ég met stöðuna þannig
að Pétur er ekki í toppformi, að
mestu leyti vegna meiðslanna sem
hann varð fyrir í vor. En einnig út
af því að tæknivinnan hefur verið
í algjöru lágmarki hjá honum enda
hefur Pétur staðið í þessu að mestu
leyti einn. Það var ekki áhugi á því
hjá FRÍ að senda mig út í ein-
hverja mánuði," sagði Stefán við
Morgunblaðið eftir mótið í fyrra-
kvöld.
Pétur og Sigurður eru á styrk
frá ólympíusamhjálpinni og njóta
þjálfunar á hennar vegum í Alab-
ama. Stefán var inntur eftir því
hvort drengirnir hefðu ekki getað
notið leiðsagnar einhvers annars
þjálfara fyrst hann komst ekki ut-
an. Hann sagði þá vera með þjálf-
ara sem væri góður i kraftþjálfun
en ekki þegar kæmi að tækninni.
Æfingamiðstöðin í Alabama fengi
ekki mjög mikla peninga til að
greiða þjálfurum og því væri
ástandið þar eins og raun bæri vitni.
En skýtur það ekki skökku við
að hjá jafn fjársterkum aðila og
ólympíuhreyfingunni sé svona í
pottinn búið? Sættir ólympíusam-
hjálpin sig við að menn sem hún
styrkir æfi við þessar aðstæður?
Stefán segir að æfingamiðstöðvar
sem þessi séu víða og peningarnir
til skiptanna séu ekki meiri en svo
að ekki séu sérfræðingar við þjálf-
un í öllum greinum á öllum stöðun-
um. „Það hefði ekki kostað mjög
mikið að hafa mig hér í þrjá mán-
uði. Peningaleysi var borið við en
það hefði verið hægt að spara ann-
ars staðar, til dæmis varðandi æf-
ingabúðirnar í Athens," sagði Stef-
án og bætti við: „Ég fullyrði að
ef ég hefði verið hér í þijá mánuði
á þessu ári, frá því í maí, væru
þeir báðir í miklu betri æfingu,
sérstaklega tæknilega, en þeir eru
í dag. Það þýðir ekki að segja að
þetta sé bull og þvæla því það
hefur sýnt sig gegnum árin að
þetta er rétt. Ég var með Sigurð
í æfingabúðum bæði á meginlandi
Evrópu og heima sumarið 1992 og
það skilaði 5. sæti á Ólympíuleik-
unum þó svo hann hafi ekki verið
í jafn góðri líkamlegri æfingu og
nú.“
KNATTSPYRIMA: ÞORIUNDANURSUT BIKARKEPPNINNAR / C4