Morgunblaðið - 20.07.1996, Page 1

Morgunblaðið - 20.07.1996, Page 1
 Björn við setning- una LAUGARDAGUR 20. JULI BLAD 1996 Atlantal996 OL-veislan hafin í nótt voru Ölympíuleik- arnir í Atlanta settir með glæsisýningu að hætti heimamanna í Atlanta- borg í Bandaríkjunum. Liðlega tíu þúsund kepp- endur frá öllum heims- hornum eru komnir þar saman til þess að taka þátt í þessari sautján daga íþróttaveislu sem er sú mesta sem boðið hefur verið upp á í eitt hundrað ára sögu nútíma Ólympíu- leika. Sundkeppnin er ein af sex greinum sem hefjast í dag, en síðan rekur hver greinin aðra allt til enda. Hér á myndinni að ofan hafa tveir af keppendum Mexíkós í sunddansi tekið forskot á sæluna og sýna listir sínar i ólympíulaug- inni. Keppni í sunddansi hefst þó ekki fyrr en 30. júlí. BJÖRN Bjarna- son, menntamála- ráðherra, kom til Atlanta í fyrra- kvöld í tilefni Ólympiuleikanna og verður hér fram á sunnudag. Björn fylgist með Rúnari Alexand- erssyni i fimleika- keppniuni í dag og Vernharð Þor- leifssyni, júdó- manni, sem kepp- ir á morgun. Björn fylgdist með setningarat- höfninni í gær- kvöldi og fylgist hugsanlega með fleiri viðburðum í dag en fimleikun- um. Ólympíu- nefnd Islands ósk- aði eftir þvi að fulltrúi ríkis- stjórnarinnar yrði viðstaddur hluta leikanna og kveðst Júiius Haf- stein, formaður Óí, mjög ánægður með að Björn hafi brugðist svo vel við þeirra ósk. Elsa gegn tæ- lenskri stúlku DREGIÐ var i badmintonkeppni Ólympíuleikanna í Atlanta í gær og dróst Elsa Nielsen gegn tælenskri stúlku að nafni Somheruthai Jaroensiri. Það er ljóst að róðurinn kemur til með að verða nokkuð þungur fyrir Elsu en hún mun hefja keppni að morgni næstkomandi miðvikudags, 24. júlí. Reuter Jón Arnar Magnússon á lokaspretti undirbúningsins fyrir ÓL „Keppnisskeggið á eftir að koma á óvart“ Keppni í tugþraut hefst á miðviku- dag í þarnæstu viku, 31. júlí. Jón Arnar Magnússon er byijaður að safna skeggi og segist ætla að koma á óvart þegar hann birtist á leikvanginum á miðvikudagsmorgni. „Keppnisskeggið á eftir að koma á óvart,“ sagði hann við Morgunblaðið í ólympíuþorpinu í fyrrakvöld. Jón hefur áður látið klippa skegg sitt óvenjulega, t.d. á Evrópumeist- aramótinu innanhúss sem fram fór í Stokkhólmi í vetur. Þá mætti hann til leiks ineð nafn Mizuno klippt í skeggið á báðum vöngum, en nefnd- ur íþróttavöruframleiðandi styrkir Jón Arnar. Hann vildi ekki gefa neinar vísbendingar um hvernig skegg hans yrði klippt að þessu sinni, sagði þó vera búinn að ákveða það en fólk yrði að bíða til annars miðvikudags til að komast að leynd- ardómnum. Jón Arnar á afmæli meðan á leik- unum í Atlanta stendur, verður 27 ára 28. júlí, sunnudaginn áður en hann hefur keppni. „Ég á afmæli þennan dag en það verður að bíða fram yfir mánaða- mót með að halda upp á það og að kvöldi 1. ágúst kemur væntan- lega í ljós hver æfmælisgjöfin sem ég gef sjálfum mér verður. Hún verður vonandi góð.“ ■ Viðtal..C4/C5 ATLANTA-BRÉF: ÓLYMPÍULEIKARIGUFUBAÐI! / C9

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.