Morgunblaðið - 21.07.1996, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 21.07.1996, Qupperneq 1
80 SÍÐUR B/C/D 164. TBL. 84. ÁRG. SUNNUDAGUR 21. JÚLÍ1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Olympíuleikar hafnir í Atlanta Morgunblaðið/Kristinn 200 tútsíar sagðir myrtir í Búrundí Nairobí. Reuter. ÓLYMPÍULEIKARNIR í Atl- anta voru settir í fyrrinótt að íslenskum tíma við hátíðlega athöfn sem þótti glæsilegt sjón- arspil. Hnefaleikamaðurinn Muhammed Ali valdist til að tendra ólympíueldinn en hann beitti sér mjög í réttindabaráttu blökkumanna líkt og einn fræg- asti sonur Atlantaborgar, Mart- in Luther King. Einn af há- punktum setningarhátíðar er innganga ólympíusveita á leik- vanginn. A myndinni gengur íslenski hópurinn inn með f rjálsíþ r óttamanninn Jón Arnar Magnússon í broddi fylkingar en hann var fánaberi. Á mynd- London, Bclfast. Rcutcr. TIL harðra átaka kom í fyrrinótt í borginni Omagh vestur af Belf- ast á Norður-írlandi eftir kröfu- göngur, annars vegar kaþólikka og hins vegar mótmælenda. Átök lögreglu við göngumenn stóðu í þrjár stundir og hlaust af mikið tjón á byggingum og bifreið- inni eru (f.v.) Kolbeinn Pálsson aðalfararstjóri, Vésteinn Haf- steinsson fijálsíþróttamaður, Elsa Nielsen badmintonkona, Birgir Guðjónsson læknir, Guð- rún Arnardóttir frjálsíþrótta- kona, Sævar Stefánsson flokks- stjóri sundmanna, Elín Sig- urðardóttir sundkona, Mati Kir- mes þjálfari, Jón Arnar Magn- ússon, Helgi Haraldsson flokks- stjóri frjálsíþróttamanna og Jónas Huang Weicheng, þjálf- ari. Auk þeirra gengu inn sund- mennirnir Eydís Konráðsdóttir og Logi Jes Kristjánsson. ■ Glæsilegt sjónarspil/6 um. Átta menn, sjö þeirra frá Norður-írlandi, voru leiddir fyrir dómara í gær í London og ákærð- ir fyrir áform um sprengjutilræði. Þeir voru handteknir í síðustu viku og fannst í fórum þeirra efni og búnaður til að smíða 36 sprengjur. TALSMAÐUR stjórnarhersins í Búrundí, Jean-Bosco Darad- angwe, sakaði uppreisnarmenn hútúmanna um að hafa myrt allt að 200 tútsa í fjöldamorði í Bung- endana-flóttamannabúðum í hér- aðinu Gitega í gær. Hermt er að vaxandi skæruhernaður stríðandi fylkinga kosti um eittþúsund manns lífið daglega í Búrundí. Ásakanir Daradangwe fengust ekki staðfestar af óvilhöllum aðil- um en hann sagði ennfremur að 500 tútsíar lægju særðir eftir að- gerðir uppreisnarmanna hútúa. Ekki fylgdi fréttum hversu margir tútsar voru í búðunum en um er að ræða fólk sem flúið hafði heim- kynni sín vegna ógnaraldarinnar í Búrundí. Fyrr í þessum mánuði sökuðu hútúar stjórnarherinn, sem að mestu er skipaður tútsíum, um að hafa drepið allt að 300 hútúa í Gitega-héraðinu. Skæruhernaður hútúa er sagður hafa færst í aukana í Búrundí að Friðaráætlun hef- ur ekki komist til framkvæmda undanförnu. Erlendir stjórnarer- indrekar segja, að á degi hveijum láti allt að eittþúsund manns lífið af völdum átakanna. Álitið er að ekki færri en 150.000 manns hafi látið lífið í Búrundí frá því deilur tútsía og hútúmanna blossuðu upp fyrir um þremur árum. Veikburða samstarf Fréttir af nýjum ofbeldisverkn- aði draga úr vonum um að hið veikburða samstarf hersins og stjórnarinnar, sem stendur á brauðfótum vegna átakanna, eigi eftir að bera árangur við að lækka öldur í landinu. Friðaráætlun sem vestrænar ríkisstjórnir hafa lýst stuðningi við hefur enn ekki náð fram að ganga en samkvæmt henni er hermönn- um frá Eþíópíu, Úganda og Tanza- níu ætlað að tryggja að hún nái fram að ganga. Sylvestre Ntiban- tungany forseti, sem er hútúmað- ur, og Antoine Nduwayo forsætis- ráðherra, sem er tútsíi, náðu sam- komulagi um friðaráætlunina á afrískum leiðtogafundi, sem háður var í Arusha í Tanzaníu fyrir mánuði. Talsmaður flóttamannastofnun- ar Sameinuðu þjóðanna í Sviss sagði í gær, að stjórnarher Búr- undí hefði í fyrradag umkringt Kibezi-flóttamannabúðirnar í norðvesturhluta Búrundí í þeim tilgangi að hrekja 15.000 rúand- íska hútúa þaðan. Hefðu milli fjög- ur og fimm þúsund flúið til fjalla umhverfis en 1.800 verið fluttir yfir landamærin til Rúanda með herbílum. Um 6.000 flóttamenn hefðu verið umkringdir þar sem þeir héldust við á íþróttaleikvangi við búðirnar. Atök á Norður-Irlandi Heilsu- spillandi hávaði 10 TIMBUKTU 18 REYKJAVÍK KUALA LUMPUR STALSMBJAN STINNARI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.