Morgunblaðið - 21.07.1996, Síða 1
Papey
Papey er þekktust þeirra eyja sem
eru úti fyrir austurströnd íslands.
Papeyjarferðir ehf. bjóða upp á
daglegar ferðir út í eyjuna og það
er sagt að fólk eigi ekki að láta
tækifæri til slíkrar ferðar framhjá
sér fara.
Það er sérstök upplifun að þeys-
ast yfir endalausa snjóbreiðu á
sérútbúnum bíl eða hangandi
aftan i á skiðum.
SUNNUDAGUR 21. JÚLÍ 1996 BLAÐ C
Reyklausar
sigare
AUKNAR kröfur um bann
w*
við reykingum í flugi hafa valdið flugfélögum sem
vilja gjaman þóknast farþegum sínum, jafnt reyk-
ingarfólki sem öðrum, miklum heilabrotum. Þýskt
flugfélag, Augsburg Airways hefur fundið ansi
frumlega lausn á vandamálinu með því að gefa
farþegum sérstakar „reyklausar sígarettur."
Bandaríski tóbaksframleiðandinn R.J. Reynolds
Tobacco Co. er að láta prófa sígarettumar, en sam-
kvæmt upplýsingum þaðan, felst nýjungin í því að
hita tóbakið í stað þess að brenna það. Aðferðin
leiðir til þess að reykurinn frá sígarettunum verður
90% minni en með hefðbundnum reykingum. Að
auki mun magn tjöru og nikótíns vera í lágmarki.
Stofnun Náttúruskóla í Mývatnssveit í undirbúningi
Ferdamenn gera
kröfu um fræðslu
„NATTURUSKOLI í Mývatnssveit
myndi lengja ferðamannatímann
hér auk þess sem þannig yrði kom-
ið til móts við auknar kröfur ferða-
manna um fræðslu,“ segir Þórður
Höskuldsson, ferðamálafulltrúi í
Mývatnssveit, en undanfarið ár hef-
ur starfshópur unnið að undirbún-
ingi að stofnun slíks skóla.
„Sveitin er heimsfræg fyrir sína
sérstöku náttúru og er paradís
þeirra sem vilja skoða og skilja.
Náttúruskóli myndi mæta þeim
áhuga sem svæðið vekur hjá fróð-
leiksfúsum ferðalöngum, skólahóp-
um og vísindamönnum. Honum yrði
ætlað að sinna óskum þessara hópa
og um leið að auka hróður svæðis-
ins á þessi sviði.“
Að sögn Þórðar hafa þegar farið
fram kannanir á óskum erlendra
hópa um fræðslu og hann segir nið-
urstöðumar staðfesta að þörfin sé
til staðar. „Það er ekki ljóst hvenær
skólinn verður settur á stofn, en það
er mikill hugur meðal ferðaþjónustu-
aðila á svæðinu að nota þetta tæki-
færi til þess að lengja ferðamanna-
tímann og nýta þær fjárfestingar
sem lagt hefur verið út í.“
Fræðslufyrirlestrar
í lok júlí verður gerð tilraun með
almenningsfræðslu í Mývatnssveit
þar sem ferðafólki verður boðið
uppá aðgengilega fyrirlestra um
jarðfræði íslands með sérstakri
áherslu á NA-land. Fyrirlestrarnir
verða í upplýsingamiðstöðinni og
taka 1-2 klukkutíma hver. Fyrirles-
ari verður Ari Trausti Guðmunds-
son jarðeðlisfræðingur og verða
fyrirlestrarnir á íslensku, norsku,
ensku og þýsku. Aðgangseyrir er
500 kr.
„Þetta er kjörið tækifæri fyrir
aðstandendur til þess að kanna jarð-
veginn og fyrir þá ferðamenn sem
hafa hug á að skoða náttúruperlur
Mývatnssveitar er upplagt að sækja
fyrirlestur og fá þannig bættan
skilning á því svæði sem skoða
skal,“ segir Þórður. Dagana 28. 29.
og 30. júlí verða fyrirlestrar kl 17
og 21 og 31. júlí verður fyrirlestur
kl 17. ■
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
NÁMASKARÐ í Mývatnssveit.
KULUSUK
► S AMV INNUFERÐIR-Land-
sýn og íslandsflug bjóða nokk-
ur sæti í dagsferðir til Kulusuk
á Grænlandi á tilboðsverði
14.900 kr. í júlímánuði.
Farið er frá Reykjavíkur-
flugvelli kl. 9.45 og lent í
Kulusuk við Ammassalik fjörð
eftir tveggja tíma flug. Þar
taka fararsljórar á móti hópn-
um. Eftir skoðunarferð um
Kulusuk er möguleiki á að
sigla með litlum, opnum bát-
um út á flugvöll. Lending í
Reykjavík er áætluð kl.18.
Innifalið í verði er flugfar,
skattar, máltíðir um borð og
leiðsögn um þorpið.
FLÓRÍDA
►SJÖ ferðum verður bætt við
sumaráætlun Flugleiða til
Orlandó í haust. Fyrsta ferðin
verður 11. september og síðan
vikulega á þriðjudögum. Frá
þeim tíma verður því flogið
tvisvar í viku, á sunnudögum
og þriðjudögum, frá Keflavik
til Orlandó á Flórídaskaga.
Sérstök tilboð á ákveðna
gististaði standa farþegum til
boða á næstunni í Orlandó og
á fleiri stöðum, t.d. Sarasota
og St. Petersburg. ■
■ ■:.
eða
Stóra Austurlandaferðin, 5. okt. 3 vikur
Perlur Austurlanda í einni ferð: Draumaeyjan BALI,
viðskiptaundrið SINGAPORE, brennipunktur Austurlanda
HONG KONG á tímamótum, besti verslunar- og
skemmtistaður Austurlanda BANGKOK,
á ótrúlegum kjörum. Fá sæti laus.
Ferð ársins „TÖFRAR 1001 nætur“
17. okt. 3 vikur.
Sérkennilegur, heillandi heimur Austurlanda.
Ótrúleg fegurð á frábæru verði. Örfá sæti laus.
Sigling á Karíbahafi eða sæluvika
á draumaeynni Dominikana
Siglingar á nýjustu skemmtiskipum heimsins. Enn nokkrir
klefar lausir á tilboði 2 fyrir 1.
Umboð á íslandi: CARNIVAL CRUISE LINES.
Dvöl á fegurstu eyju Karíbahafs með öllu inniföldu á
PUERTO PLATA VILLAGE NÝTUR SÍAUKINNA VINSÆLDA.
Spennandi valkostur á verði Evrópuferðar. Ferðir allt árið.
Okkar sambon
- þinn ba9ur
FERÐASKRIFSTOFAN
PRIMAr
HEIMSKLUBBUR
INGOLFS
Austurstræti 17, 4. hæð 101 Reykjavík,
sími 56 20 400, fax 562 6564