Morgunblaðið - 21.07.1996, Side 1

Morgunblaðið - 21.07.1996, Side 1
MUSSO BREYTT FYRIR 38 TOMMUR - GM OG OPEL I PÓLLANDI - LIÐVAGN TIL SVR - ALDARAFMÆLIBÍLA- IÐNAÐAR - JEPPI FRÁ VOLVO - VÉLRÆNN AKSTUR * LADA Afor rounhœfur kosturl ÁRMÚLA 13, SÍMI: 568 1200 BEINN S(MI: 553 1236 1@Oi FHAMTlDIN srcc/sr A HlFDtNNt Tryggðu þér nýjan fjölskyldubíl núna. Þýsk gæði á ótrúlega lágu verði. im-im Nýbýlavegur 2 Síwl: 554 2600 SLK á markað næsta haust MERCEDES-BENZ SLK, nýr sportbíll þýska eðalbílaframleiðandans, kemur á markað í haust. Þetta er tveggja sæta bíll og hægt verður að velja um tvær vél- ar, 2,0 1, fjögurra strokka, 186 hestafla og 2,3 1 vél með forþjöppu sem skiiar 193 hestöflum. SLK er með nýstárlegum bónaði, svo- kölluðu vario-stálþaki. Með rafstýrðum búnaði er liægt breyta bílnum á auga- bragði úr opnum bíl í lokaðan bíl. Bíllinn vegur 1.270 kg, er 3.995 mm langur, aðeins um 500 mm styttri en C-línu stall- bakurinn. SLK er með ýmsum nýjum bún- aði eins og t.a.m. TIREFIT en með honum má gera við sprungna hjólbarða til bráða- birgða á örfáum mínútum. í bílnum er búnaður sem skynjar hvort barnasæti er í farþegasætinu. Við árekstur gefur bún- aðurinn merki til líknarbelgsins sem blæs ekki út ef barnasæti hefur verið komið fyrir í farþegasætinu. Bíllinn er sérstak- lega styrktur, einkum gluggapósturinn, og veitir farþega og ökumanni hámarks- vemd ef bíllinn veltur. ALDARAFMÆLI BÍLAIÐNAÐAR 50 ÞÚSUND manns, bílaframleiðend- ur, seljendur og bíleigendur, komu saman í Detroit í síðasta mánuði til þess að minnast upphafs bandarísks bílaiðnaðar. 100 ár eru síðan J. Frank og Charles Duryea hófu framleiðslu á bílum í borginni. í Detroit var að finna eina stærstu fornbíla- sýningu sem haldin hefur verið. Þar voru 1.500 klassískir forn- bílar, allt frá endurgerð af 1896 árgerð Duryea að framtíðarlegum hugmyndabílum. Um 35.000 manns röðuðu sér upp með- fram Eight Mile Road í Detroit til þess að fylgjast með fombíla- sýningunni. 1.500 FORNBÍLUM var ekið eftir götum Detroit borgar þegar þess var minnst að 100 ár eru síðan Duryea bræðurn- ir hófu framleiðslu á bílum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.